Innlent

Aldrei meiri umferð á þjóðvegum

MYND/AFP

Umferð á þjóðvegum landsins var meiri í sumar en nokkru sinni fyrr, samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar. Heldur dró úr umferð í fyrrasumar og var það meðal annars rakið til bensínhækkana. Mikil umferð í sumar er rakin til þess að mun fleiri Íslendingar ferðuðust innanlands í sumarleyfum sínum en undanfarin ár og mun meira er um að erlendir ferðamen komi á eigin vegum og noti bílaleigubíla eða eigin bíla í stað þess að fara í svonefndar pakkaferðir með rútubílum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×