Innlent

Neitar að láta fyrrum forstjóra FME kenna sér viðskiptalögfræði

Valur Grettisson skrifar
Jónas Fr. Jónsson, fyrrum forstjóri Fjármálaeftirlitsins og stundarkennari við HR.
Jónas Fr. Jónsson, fyrrum forstjóri Fjármálaeftirlitsins og stundarkennari við HR.

Nemandi í Háskólanum í Reykjavík sendi fimmtíu og einum samnemenda og yfirstjórn skólans tölvupóst á dögunum þar sem hann baðst undan að sitja tíma sem Jónas Fr. Jónsson, fyrrum forstjóri Fjármálaeftirlitsins kennir.

Neminn heitir Fjalar Sigurðarson og er almannatengslafulltrúi. Áður var hann dagskrágerðarmaður hjá Ríkissjónvarpinu.

Jónas Fr. kennir kúrs í MBA námi sem heitir Business Law and Corporate Responsibility. Á íslensku gæti það útlagst sem fyrirtækjalögfræði og viðskiptasiðfræði

Í póstinum sem Fjalar sendi á samnemendur og skólayfirvöld spyr hann hvort það sé hægt að ætlast til þess að fyrrum forstjóri Fjármálaeftirlitsins fjalli á hlutlægan og akademískan hátt um lögin, fyrirtækið, löggjafar- og framkvæmdarvaldið, eftirlitsaðilana og atburðina sem hér urðu.

Þegar Vísir hafði samband við Fjalar sagðist hann ekki vilja dragast inn í þessa umræðu persónulega. Hann neitaði því að tjá sig um málið og segir það á milli sín og skólayfirvalda.

Forstöðumaður námsins, Aðalsteinn Leifsson, segir að eftir að pósturinn var sendur út þá hafi nemendur sest niður með honum og deildarforseta og rætt málið opinskátt. Meðal annars hafi Fjalar setið fundinn þar sem aðkoma Jónasar að kennslu var rædd.

Í kjölfarið fór gæðaráð árgangsins yfir málið en í því sitja fulltrúar nemenda.

„Við ákváðum að halda okkar striki. Ein af ástæðunum fyrir því að Jónas hefur kennt þennan kúrs í mörg ár er sú að hann hefur einstaka reynslu og hefur framúrskarandi þekkingu og menntun á þessu sviði," segir Aðalsteinn en Jónas hefur lengi verið stundarkennari við skólann.

Námið sem um ræðir er á sviði félaga-, samkeppnis- og samningaréttar en fjallar ekki um fjármálahrunið sem slíkt. Annar kennari, Ketill Berg Magnússon, sérfræðingur í viðskiptasiðfræði, kennir þann hluta námskeiðsins sem snýr að siðferðislegum álitamálum.

Að sögn Aðalsteins tók skólinn sjálfur ekki formlega afstöðu í þessu máli umfram að Aðalsteinn sem forstöðumaður námsins varð við bón Fjalars um að sitja ekki tíma hjá Jónasi, þar sem hann gat setið í sambærilegum áfanga í meistaranámi í lagadeild skólans. Enginn annar nemandi hefur beðist undan að sitja í tímum kenndum af Jónasi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×