Óttast að læknar og hjúkrunarfræðingar flýi land 4. september 2009 18:51
Framkvæmdastjóri Lækninga á Landspítalanum útilokar ekki að nýútskrifaðir læknar og hjúkrunarfræðingar muni flýja land. Þá er ljóst að spítalinn mun ekki geta endurnýjað tækjakost sinn á næstu árum vegna stórfellds niðurskurðar. Stjórn Landspítalans kynnti niðurskurðaraðgerðirnar á fjórum starfsmannafundum í morgun. Þær hagræðingar sem gripið var til fyrr á þessu ári hafa að nokkru leyti gufað upp vegna veikingar krónunnar. Þremur skurðstofum verður lokað og þá verður reynt að lækka innkaupa- og bifreiðakostnað og breyta sólarhringsdeildum í dagdeildir. Með þessum aðgerðum næst fram 400 milljón króna sparnaður en á næsta ári þarf spítalinn hins vegar að skera niður um 1200 milljónir og það verður ekki gert án þess að skerða þjónustu. „Ég held að það sé ekki hjá því komist með svona mikinn niðurskurð að þjónustan skerðist eitthvað. Við reynum auðvitað að forgangsraða innan spítalans og reyna sjá til þess að þjónustan skerðist sem minnst," segir Björn Zoëga, framkvæmdastjóri lækninga hjá LSH. Aðgerðirnar munu bitna hvað verst á ungu heilbrigðisstarfsfólki þar sem tímabundnar ráðningar verða ekki endurnýjaðar og þá verður ekki ráðið í störf þeirra sem hætta vegna aldurs. Verulega hætta er á að nýútskrifaðir læknar og hjúkrunarfræðingar neyðist til að flýja land vegna þessa. „Já það er auðvitað möguleiki að það gerist. Við verðum aðeins að sjá til hvernig rætist úr hjá okkur á næstu mánuðum og hvaða möguleika þetta fólk hefur," segir Björn. „Það eru fleiri vinnustaðir á Íslandi heldur en Landspítalinn en við reynum að taka ábyrgð á þessu fólki eins mikið og við getum." Þá er einnig ljóst að spítalinn getur ekki ráðist í kaup eða endurnýjun á tækjabúnaði á næstu árum. „Það hefur verið mjög naumt skammtað fé til tækjakaupa á spítalanum síðustu fimm til sex árin og jafnvel lengur. Það hefur gert það að verkum að við höfum verið að kaupa tæki á afborgunum og það hefur leitt til þess að við höfum næstum því engan pening til þess að kaupa tæki á næstu árum," segir Björn.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Fleiri fréttir Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Sjá meira