Innlent

Óttast að maður hafi höfuðkúpubrotnað við Gígjökul

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar var send á staðinn. Mynd/ Vilhelm.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var send á staðinn. Mynd/ Vilhelm.
Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli var kölluð út, ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar, fyrir stundu vegna manns sem slasaðist við Gígjökul, sem er skriðjökull í norðanverðum Eyjafjallajökli. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu er talið að maðurinn hafi höfuðkúpubrotnað þegar hann varð fyrir grjóthruni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×