Innlent

Annasamt hjá sjúkraflutningamönnum

Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur haft í nógu að snúast í dag og farið í rúmlega 60 sjúkraflutninga frá því klukkan átta í morgun. Að meðaltali þurfa sjúkraflutningamenn að sinna á bilinu 30 til 40 slíkum útköllum á hverri dagvakt sem er á frá klukkan átta á morgnanna til átta á kvöldin.

Í flestum tilfellum hefur verið að ræða almenn veikindi, að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu. Þá er skoðunartæki bilað í húsnæði Landsspítalans í Fossvogi og hefur þurft að flytja ófá sjúklinga í húsnæði spítalans við Hringbraut vegna þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×