Innlent

Ráðherra kallar eftir upplýsingum um mál Landsvirkjunar

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, mun á næstu dögum óska eftir frekari upplýsingum vegna skipulagstillögu Skeiða- og Gnúpverjahrepps, líkt og kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2. Það er gert í ljósi úrskurðar samgönguráðuneytisins um að Flóahreppi hafi ekki verið heimilt að semja við Landsvirkjun um greiðslu kostnaðar vegna skipulagsvinnu sveitarfélagsins vegna virkjana við Neðri-Þjórsá. Í samtali við fréttastofu sagðist Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, telja þetta vera nýja túlkun á lögum.

Umhverfisráðuneytið hefur til skoðunar skipulagstillögu vegna breytinga á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps sem sveitarfélagið hefur óskað staðfestingar umhverfisráherra á, að fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Þar segir að í rammasamkomulagi milli sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps og Landsvirkjunar varðandi undirbúning, byggingu og rekstur Hvamms-, Holta- og Urriðafossvirkjunar standi:

„Landsvirkjun mun greiða allan sameiginlegan útlagðan kostnað sveitarfélagsins vegna undirbúnings virkjana s.s. kostnað vegna skipulagsbreytinga og vinnu við útgáfu framkvæmdaleyfisins. Komi til ófyrirséða atvika á verktímum virkjananna, sem leiða munu til útgjaldaauka sveitarfélagsins munu aðilar hafa samráð um greiðslu þess kostnaðar."






Tengdar fréttir

Greiðslur Landsvirkjunar til sveitarstjórnarmanna út úr kortinu

„Þetta lyktar ekki vel,“ segir formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands um greiðslur Landsvirkjunar til sveitarstjórnarmanna sem greint var frá í kvöldfréttum Stöðvar 2. „Mér finnst þetta vera út úr kortinu,“ segir formaðurinn.

Landsvirkjun braut lög með greiðslum

Landsvirkjun braut lög með því að greiða fyrir skipulagsvinnu Flóahrepps, vegna virkjana í Neðri-Þjórsá. Þetta kemur fram í úrskurði samgönguráðuneytisins. Samkvæmt úrskurðinum er engin heimild í lögum fyrir því að Landsvirkjun greiði sveitarfélögum fyrir vinnu við aðalskipulag.

Forstjóri Landsvirkjunar: Við brutum ekki lög

Samgönguráðuneytið hefur úrskurðað að Landsvirkjun hafi brotið lög með því að greiða fyrir skipulag vegna virkjana við Neðri-Þjórsá. Forstjóri Landsvirkjunar telur þetta nýja túlkun á lögum.

Landsvirkjun greiddi sveitarstjórnarmönnum fyrir skipulagsvinnu

Landsvirkjun greiddi fyrir fundarsetu sveitarstjórnarmanna í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, um fyrirhugaðar virkjanir í hreppnum. Hver sveitarstjórnarmaður fékk 200 þúsund krónur, segir fyrrverandi sveitarstjóri. Oddviti hreppsins staðfestir að hafa fengið greiðslur frá Landsvirkjun, í gegnum hreppinn, en er ósáttur við að vera sakaður um mútuþægni.

Flóahreppur fékk einnig greiðslur frá Landsvirkjun vegna skipulagsvinnu

Flóahreppur, hefur eins og Skeiða- og Gnúpverjahreppur, fengið greiðslur frá Landsvirkjun vegna skipulagsvinnu. Upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar segir að greiðslur til sveitarfélaganna séu að öllu í samræmi við lög og vísar því á bug að þær séu óeðlilegar.

Ekki mútugreiðslur

„Þarna er lítið sveitarfélag að takast á við gríðarlega stórt verkefni sem kostar mjög mikið og það er ekkert óeðlilegt að það sé farið fram á það við framkvæmdaaðila að hann greiði kostnað sem fellur á sveitarfélagið," segir Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, um greiðslur Landsvirkjunar til sveitarfélaga vegna fyrirhugaðra virkjana. Ekki sé um mútugreiðslur að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×