Innlent

Tekinn tvisvar á sama klukkutíma

Ökumaður var tekinn tvisvar á sama klukkutímanum í nótt fyrir of hraðan akstur. Annars vegar á Breiðholtsbraut á hundrað kílómetra hraða og hins vegar á Reykjanesbraut á 110 kílómetra hraða. Þá var annar stöðvaður í nótt eftir að hann mældist á 140 kílómetra hraða við Smáralind.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×