Innlent

Lentu í árekstri undir áhrifum

Tveir voru fluttir á slysadeild og síðan í fangageymslur eftir árekstur tveggja bíla á Nýbýlavegi í nótt. Mennirnir voru í öðrum bílnum, en ökumann hins bílsins sakaði ekki. Báðir eru mennirnir grunaðir um áfengis- og fíkniefnaneyslu. Bílarnir stórskemmdust og varð að fjarlægja þá með kranabíl. Tveir menn sem óku bíl sínum upp á umferðareyju í miðborginni í nótt eru líka grunaðir um áfengis- og fíkniefnaneyslu og gista fangageymslur. Á vettvangi sögðust þeir ýmist hafa verið báðir undir stýri eða hvorugur og var annar framburður þeirra eftir því.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×