Landsvirkjun braut lög með greiðslum Ingimar Karl Helgason. skrifar 4. september 2009 12:33 Landsvirkjun.
Landsvirkjun braut lög með því að greiða fyrir skipulagsvinnu Flóahrepps, vegna virkjana í Neðri-Þjórsá. Þetta kemur fram í úrskurði samgönguráðuneytisins. Samkvæmt úrskurðinum er engin heimild í lögum fyrir því að Landsvirkjun greiði sveitarfélögum fyrir vinnu við aðalskipulag. Fréttastofa upplýsti í vikunni um milljóna greiðslur frá Landsvirkjun, til Skeiða- og Gnúpverjahrepps og hundruð þúsunda sem sveitarstjórnarmenn fengu, vegna ýmissa funda. Málið tengist fyrirhuguðum virkjunum Landsvirkjunar í Neðri Þjórsá. Tvær eiga að vera í Skeiða- og gnúpverjahreppi; ein í Flóahreppi. Fram hefur komið að Flóahreppur fékk háar greiðslur frá Landsvirkjun, meðal annars var borgað fyrir skipulagsvinnu; samkvæmt samningi milli hreppsins og Landsvirkjunar. Það stenst hins vegar ekki lög. Samgönguráðuneytið, sem fer með sveitarstjórnarmál, segir í nýjum úrskurði, að sú grein samkomulags hreppsins og Landsvirkjunar, sem fjallar um greiðslur Landsvirkjunar fyrir skipulagsvinnu sé ólögmæt. Í samningi Landsvirkjunar og Skeiða og Gnúpverjahrepps, sem fréttastofa hefur undir höndum, er svipað ákvæði um að Landsvirkjun borgi skipulag þar. Þá segir jafnframt í úrskurði ráðuneytisins að ekki sé gert ráð fyrir því í lögum að hægt sé að semja um það fyrirfram að tiltekinn aðili beri allan kostnað af deiliskipulagi. Þá sé það ótvírætt að í skipulags- og byggingalögum sé engin heimild til þess að aðrir en sveitarfélag beri kostnað vegna aðalskipulags. Upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar sagði í fréttum í gær að þetta væri túlkunaratriði.
Mest lesið Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Veður Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Erlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Fleiri fréttir Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Sjá meira