Innlent

Sluppu ótrúlega vel eftir bílveltu

Þrjú ungmenni sluppu ótrúlega vel, að sögn vitnis, eftir að bíll þeira valt þrjár til fjórar veltur út af Vatnsendavegi við Vífilsstaðavatn á tólfta tímanum í gærkvöldi. Þau voru öll flutt á slysadeild Landspítalans til aðhlynningar og eitt þeirra gisti á Landspítalanum í nótt til eftirlits. Tildrög slyssins eru enn ókunn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×