Fleiri fréttir

Brotist inn í Réttarholtsskóla

Brotist var inn í Réttarholtsskóla í Reykjavík í nótt og þaðan stolið flatskjá. Þjófurinn braut rúðu í skólastofu til að komast inn.

Fjölmennri leit lauk farsællega

Fjölmennt lið björgunarsveitarmanna fann á sjötta tímanum í morgun annan tveggja manna, sem leitað hefur verið að inn af Hvalfjarðarbotni síðan á miðnætti.

Gætum misst unga lækna og hjúkrunarfræðinga úr landi

Gjörbreytt staða er komin upp hjá ungu heilbrigðis­starfsfólki vegna niðurskurðar í heilbrigðiskerfinu. Atvinnumöguleikar nýútskrifaðra lækna og hjúkrunarfræðinga hafa skerst verulega hér á landi og hætta er talin á að þessi hópur þurfi að leita annað í auknum mæli.

Hundrað fá ekki framlengda samninga

Meira en hundrað starfsmenn Landspítalans fá ekki endurnýjaða ráðningarsamninga við spítalann í ár. Fyrstu samningarnir renna út um næstu mánaðamót.

Lagt til að upplýsingaskylda ráðherra verði færð í lög

Nefnd þriggja lögfræðinga undir forystu Bryndísar Hlöðversdóttur, aðstoðarrektors á Bifröst, hóf í júní í fyrra skoðun á gildandi lagareglum um eftir­lit Alþingis með framkvæmdarvaldinu og mat á hvort breytinga væri þörf. Niðurstöðurnar liggja fyrir í tæplega 300 blaðsíðna skýrslu sem kynnt var í gær. Þær eru eindregnar. Breytinga er þörf.

Stoppa í 63 milljarða gat

Löng hefð er fyrir því að lítið kvisist út um útfærslu fjárlagafrumvarpsins. Við lifum hins vegar á tímum þar sem hefðir skipta litlu og síðan í júní hefur legið fyrir að ríkisstjórnin hyggst bæta afkomu ríkissjóðs um 63,4 milljarða króna á næsta ári. Í skýrslu fjármálaráðherra um jöfnuð í ríkisfjármálum 2009-2013 er tónninn sleginn og Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að í grófum dráttum verði farið eftir þeirri skýrslu.

Segir tóma blekkingu að Noregur standi utan ESB

„Það er tóm blekking að Noregur standi utan við Evrópusambandið,“ sagði Fredrik Sejersted, formaður Evrópuréttarstofnunar Óslóarháskóla, á morgunverðarfundi um stöðu Noregs í Evrópu sem haldinn var í Norræna húsinu í gær.

Vekur vonir um sigur á AIDS

Alþjóða heilbrigðisstofnunin WHO og Alnæmisstofnun Sameinuðu þjóðanna segja að tilraunir í Taílandi með nýtt bóluefni gegn alnæmi hafi gengið vel og lofi mjög góðu.

Taka ekki á forsendubresti

Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, tekur undir tillögur ASÍ um úrbætur á lögum um greiðsluaðlögun og annað sem tengist skuldavanda heimilanna. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Gísli sendi frá sér í gær. Hann segir að fagna beri frumkvæði ASÍ og samantektinni, sem sé í ágætu samræmi við úrbótatillögur hans.

Framleiðendur velta tíu milljörðum króna

„Við höfum rætt um það í langan tíma að stofna samtök. Þegar við skoðuðum málið af alvöru á þessu ári kom það okkur í opna skjöldu hvað þessi iðnaður er stór,“ segir Jónas Björgvin Antonsson, framkvæmdastjóri tölvuleikjafyrirtækisins Gogogic.

Leggja milljarða í nýtt einkasjúkrahús

Stefnt er að því að einkarekið sjúkrahús sem mun sérhæfa sig í mjaðma- og hnjáliða­aðgerðum á erlendum ríkisborgurum verði opnað hér á landi síðla árs 2011 eða snemma árs 2012.

Tillögum um styttu vísað frá

Borgarráð vísaði í gær, með atkvæðum meirihlutans, frá tillögum Vinstri grænna og Samfylkingar um að borgin beitti sér fyrir uppsetningu minnismerkis um Helga Hóseasson á horni Langholtsvegar og Holtavegar. Fulltrúar minnihlutans höfðu lagt fram hvor sína tillöguna.

Fleiri drekka íslenska vatnið

„Þetta er mikil viðurkenning fyrir okkur,“ segir Jón Ólafsson, stjórnarformaður Icelandic Water Holdings, sem framleiðir átappað vatn á flöskum undir merkjum Icelandic Glacial. Um ár er síðan fyrirtækið stækkaði við sig í Þorlákshöfn.

Mátti banna rekstur einkastofu

Hæstiréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Landspítalanum hafi verið heimilt að banna yfirlæknum með stjórnunar­skyldur á spítalanum að reka einnig sjálfstæðar læknastofur samhliða störfum sínum fyrir spítalann. Hæstiréttur sýknaði í gær spítalann af kröfu yfirlæknis um viðurkenningu á því að spítalanum hafi verið þetta óheimilt.

Obama vill lesa betri dagblöð

Forseti Bandaríkjanna hefur hug á að gera lagafrumvarp til að auðvelda dagblöðum að sporna gegn þeirri hnignun sem þau standa frammi fyrir. Til greina mun koma að dagblöðin, í breyttu rekstrarformi, fái skattaívilnanir. Fari svo verði þau ekki rekin í ágóðaskyni.

Alcoa býst við niður­stöðu um helgina

Alcoa býst við að fá upplýsingar um afstöðu ríkisvaldsins til þess hvort stjórnvöld ætli sér að framlengja viljayfirlýsingu um álver á Bakka, sem rennur út um mánaðamót, á fundi sem Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa, á með Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra um helgina.

Blaðamannafélagið harmar uppsagnir á Morgunblaðinu

Blaðamannafélag Íslands harmar fjöldauppsagnir á Morgunblaðinu í nýrri ályktun sem félagið sendi frá sér undir kvöld. Þeir sem lengst hafi unnið hjá blaðinu og sagt var upp störfum í dag hafi verið þar í um fjörutíu ár. Á sama tíma og ritstjórum blaðsins er fjölgað í tvo sé gífurlegri reynslu og þekkingu nærri tuttugu blaðamanna kastað á glæ í nafni hagræðingar.

Sigurður Már Jónsson ritstjóri Viðskiptablaðsins

Sigurður Már Jónsson hefur verið ráðinn ritstjóri Viðskiptablaðsins, eftir því sem fram kemur á fréttavef VB. Haraldur Johannessen ritstjóri hverfur til starfa á Morgunblaðinu eins og kunnugt er. Sigurður Már hefur starfað á Viðskiptablaðinu frá árinu 1995 og hefur verið aðstoðarritstjóri blaðsins síðustu ár. Pétur Árni Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Mylluseturs, útgáfufélags Viðskiptablaðsins og tengdra miðla.

Gísli orðinn áskrifandi að Morgunblaðinu

Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi gerðist áskrifandi að Morgunblaðinu í dag eftir langt hlé. Gísli segir frá þessu á vefsíðu sinni. Þar segir hann jafnframt að stúlkan á símanum hafi sagt sér að flesta daga væru uppsagnir og nýjar áskriftir á pari. Eftir að tilkynnt var um nýjan ritstjóra væru nýjar áskriftir töluvert fleiri en uppsagnir.

Lögreglan fann stera og marijuana

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðaði í gær tollayfirvöld við húsleit vegna gruns um sölu á sterum. Nokkuð magn af sterum og fjármunum fundust við húsleitir auk þess sem Tollstjórinn lagði hald á nokkuð magn ólöglegs varnings.

Fjöldi fólks hefur orðið fyrir skemmdum á húsnæði

Rauðri málningu var í nótt skvett á einbýlishús Hreiðars Más Sigurðssonar fyrrum forstjóra Kaupþings en þetta er í þriðja sinn sem það er gert. Fjöldi slíkra atvika hafa orðið á síðustu mánuðum og rifjaði Guðný Helga upp hvaða skemmdarverk hafa verið unnin á eigum áberandi manna í viðskiptalífinu á árinu.

Óánægðir áskrifendur rifu kjaft við rangan aðila

„Ég er búin að fá sex símtöl á hálftíma frá fólki sem ætlar að segja upp áskrift af Morgunblaðinu," segir Eydís Huld Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Huglausna sem rekur starfsemi á sviði upplýsingatækni, rekstri tölvukerfa og lausna m.a. fyrir fjármálafyrirtæki.

Spurningalistinn á íslensku myndi kosta 10 milljónir

Utanríkisráðuneytið hefur sent Bændasamtökunum svar við fyrirspurn þeirra um að fá afhenta íslenska útgáfu spurningalista framkvæmdastjórnar ESB. Ráðuneytið segir í svarbréfi að það hafi ekki í hyggju að leggja í þýðingu spurningalistans og ber m.a. fyrir sig kostnaði sem ráðuneytið áætlar að sé um 10 milljónir króna og verkið taki 2-3 mánuði að vinna. Með opinberri birtingu spurninganna telur ráðuneytið sig hafa gert almenningi kleift að kynna sér innihald þeirra með aðgengilegum hætti

Mosfellsbær vill einkasjúkrahús og hótel

Mosfellsbær og forsvarsmenn PrimaCare hafa verið í viðræðum um samvinnu varðandi byggingu og rekstur á nýju einkareknu sjúkrahúsi og hóteli því tengt í bænum samkvæmt tilkynningu sem Mosfellsbær sendi frá sér.

Formaður BÍ fagnar uppsögn sinni

„Ég er glöð að vera í þeim góða hópi fólks sem þarf að yfirgefa Morgunblaðið við þessar aðstæður sem nú eru uppi,“ segir formaður Blaðamannafélags Íslands, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, en henni var sagt upp á Morgunblaðinu í dag auk fjölda starfsmanna eins og Vísir greindi frá í morgun.

Vill eftirlit með Ólafi Ragnari

Björn Bjarnason fyrrum dómsmálaráðherra og þingmaður segist áður hafa lagt til að utanríkisráðuneytið eigi vitni að viðtölum Ólafs Ragnars við erlenda fjölmiðla. Þetta segir Björn í tilefni þess að Bloomberg-fréttasjónvarpið hafði rangt eftir forsetanum í viðtali í gær að hans eigin sögn. Björn segir að eftirlitsmaðurinn gæti þá að minnsta kosti staðfest, að Ólafur Ragnar hefði ekki sagt neina vitleysu við fréttamanninn.

Biden og Obama ræddu um Ísland

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, og Joe Biden, varaforseti, ræddu nýverið um árangur Íslendinga á vettvangi hreinnar orku sem og tæknikunnátta Íslendinga. Þetta kom fram í samtali varaforsetans og Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, í kvöldverðarboði í gær þar sem þeir voru meðal gesta.

Skýra þarf lög um rannsóknarnefndir og ráðherraábyrgð

Vinnuhópur forsætisnefndar Alþingis um eftirlit þingsins með framkvæmdarvaldinu telur að skýra þurfi lög um ráðherraábyrgð og rannsóknarnefndir. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu vinnuhóps sem forsætisnefnd fól í fyrrasumar að fara yfir núgildandi lagareglur um eftirlit Alþingis með handhöfum framkvæmdarvalds og leggja mat á hvort breytinga væri þörf.

Formanni Blaðamannafélagsins sagt upp hjá Morgunblaðinu

Formanni Blaðamannafélagsins og blaðamaður hjá Morgunblaðinu, Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur, hefur verið sagt upp störfum hjá blaðinu. Þegar hefur fjölda starfsmanna verið sagt upp vegna víðtækra skipulagsbreytinga og telja þeir hátt á annan tug.

ASÍ kynnir viðamiklar tillögur um lausnir á skuldavanda

Alþýðusamband Íslands hefur kynnt tillögur sínar um lausnir á skuldavanda heimilanna en sambandið kynnti ríkisstjórn Íslands hugmyndirnar í gær. Í frétt á heimasíðu ASÍ segir að þrátt fyrir góðan ásetning í upphafi hafi ýmsir gallar komið fram á greiðsluaðlögun fyrir fólk í alvarlegum fjárhagsvanda.

Stýrivextir áfram háir vegna AGS

Lilja Mósesdóttir þingmaður Vinstri grænna lýsir yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands um óbreytta stýrivexti. Seðlabankinn tilkynnti í morgun að stýrivextir væru óbreyttir og eru því enn 12%.

Kaldavatnslaust á Álftanesi

Í hádeginu varð bilun á aðveituæð kaldavatnsins á Álftanesi og því verður kaldavatnslaust fram eftir degi. Fram kemur í tilkynningu frá Orkuveitunni að unnið sé að viðgerð.

Ákvörðun Seðlabankans kemur ekki óvart

Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir það vera vonbrigði að Seðlabankinn hafi ekki tilkynnt um lækkun stýrivaxta í morgun. Að sama skapi komi sú ákvörðun ekki á óvart því bankinn vinni náið með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sem leggi ekki áherslu á lækkun stýrivaxta heldur að gjaldeyrishöftum verði aflétt. Ekki sé hægt að gera hvoru tveggja. Eygló bendir á að ríkisstjórn Geirs Haarde og Seðlabankinn hafi komið á gjaldeyrishöftum.

Áhugi Norðmanna styrkir Drekasvæðið

Iðnaðarráðherra segir áhuga Norðmanna á olíuleit við Jan Mayen styrkja Drekasvæðið. Forstjóri Sagex Petroleum segir mikla óvissu, áhættu og kostnað fylgja olíuleit á báðum svæðunum.

Krabbameinslyf kláruðust á Landspítalanum

Björn Zoëga forstjóri Landspítalans segir það gerast af og til að seinkun verði á flutningum á lyfjum milli landa sem geri það að verkum að ekki séu til lyf fyrir sjúklinga. Aðstandandi manns sem er í krabbameinsmeðferð á spítalanum hafði samband við fréttastofu og undraðist að ekki hefði verið hægt að gefa honum lyf í gær. Maðurinn fékk engar skýringar á hversvegna lyfin væru ekki til né hvenær von væri á þeim. Ekki alvarlegt vandamál segir Björn.

Samfylkingarfélög og Framsóknarfélög sameinast

Samfylkingarfélögin á Ólafsfirði og í Siglufirði hafa verið sameinuð í eitt félag, Samfylkingarfélag Fjallabyggðar. Framsóknarmenn hafa einnig tilkynnt um sameiningu félaga sinna í bæjarfélaginu sem tekur til starfa um næstu áramót. Sveitarfélagið Fjallabyggð varð til við sameiningu Ólafsfjarðar og Siglufjarðar árið 2006.

Kallar eftir þýðingum á spurningalista ESB og svörum stjórnvalda

Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, vill að spurningalisti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins ásamt svörum íslenska ríkisins verði þýddur á íslensku og sendur alþingismönnum. Hann segir að þingmenn verði fá sem besta mynd af málinu og því verði að þýða spurningarnar og svörin. Bændasamtök Íslands hafa óskað eftir því að spurningalistinn verði þýddur á íslensku.

Davíð og Haraldur á stjórnarfundi Árvakurs í gær - uppsagnir hafnar

Samkvæmt heimildum Vísis þá gengu Davíð Oddsson og Haraldur Johannessen á fund stjórnar Árvakurs í gærdag. Þeir komu um miðbik fundarins. Ekki er ljóst hvað var rætt þar en stjórnarfundur var einnig haldinn á þriðjudaginn. Starfsmannafundur hefur verið boðaður klukkan hálf fimm í dag.

Framleiðandi AK-47 á leið á hausinn

Stærsti vopnaframleiðandi Rússlands sem kallast Izhmash stendur frammi fyrir gjaldþroti. Fyrirtækið er þekktast fyrir að framleiða Kalashnikov vélbyssuna sem einnig er þekkt undir nafninu AK-47. AK-47 er útbreiddasta vélbyssa sögunnar og hefur hún komið við sögu í flestum ef ekki öllum stríðum sem háð hafa verið frá lokum seinni heimstyrjaldarinnar.

Íslenskur þorskur í úrslitum í Bretlandi

Spennan er heldur betur farin að magnast í keppninni um besta „Fish ´n´Chips“ staðinn í Bretlandi. Nú eru einungis sex staðir eftir í keppninni en flestir hafa sterkar skoðanir á því hvernig best sé að útbúa þennan þjóðarrétt Breta.

Sjá næstu 50 fréttir