Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sádi-Arabar bjóða bæði kyn velkomin í háskóla Sádi-Arabar hafa opnað sinn fyrsta háskóla sem stendur stúdentum af báðum kynjum opinn. 24.9.2009 08:08
Atlantsolía lækkaði um tvær krónur Atlantsolía lækkaði í morgun verð á bensíni um tvær krónur á lítrann og dísilolíu um eina krónu. Bensínlítrinn þar kostar nú 182,40. Lækkunin er rakin til lækkunar á innkaupsverði. 24.9.2009 07:57
Níu ára fangelsi fyrir skotárás á McDonald's Félagi í vélhjólasamtökunum Vítisenglum í Danmörku og tveir menn sem bíða inngöngu í samtökin hafa verið dæmdir í níu ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps þegar þeir gerðu skotárás á þrjá menn úr annarri vélhjólaklíku á McDonald's-stað í Árósum fyrir tæpu ári. 24.9.2009 07:35
Nýjar smyglleiðir frá Mexíkó Mexíkóskir smyglarar leita sífellt nýrra leiða til að koma ólöglegum innflytjendum og fíkniefnum til Bandaríkjanna og nýjasta aðferð þeirra er að sigla meðfram Kyrrahafsströndinni frá Mexíkó og taka land á fáförnum slóðum á strandlengju Kaliforníu. 24.9.2009 07:24
Indverjar finna vatn á tunglinu Indverjar hafa fundið vatn á tunglinu, fyrstir manna. Þetta gerðist í fyrsta tunglleiðangri þeirra en þar var á ferð ómannað könnunarfar með búnað sem sérstaklega var ætlað að leita að ummerkjum um vatn. 24.9.2009 07:22
Mafíukrókódíll upptækur Lögregla í Napólí á Ítalíu gerði krókódíl í eigu mafíuforingjans Sergio Di Mauro upptækan við húsleit á heimili hans í síðustu viku. 24.9.2009 07:18
Páfi heimsækir Breta á næsta ári Benedikt XVI páfi heldur í opinbera heimsókn til Bretlands á næsta ári og verður það í fyrsta sinn síðan 1982 sem páfi heimsækir landið. 24.9.2009 07:17
Fíkniefnaakstur og 30 grömm heima Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði ökumann í gærkvöldi, grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna. Í kjölfarið fundust 30 grömm af amfetamíni ásamt neysluáhöldum, við húsleit heima hjá honum. 24.9.2009 07:13
Þremur veitingastöðum lokað klukkan tvö Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lét loka þremur veitingastöðum í Reykjavík í nótt, þar sem þeir voru opnir lengur en leyfi gera ráð fyrir. 24.9.2009 07:12
Togbátur í vanda á Breiðafirði Hundrað og áttatíu tonna togbátur lenti í erfiðleikum á Breiðafirði í gærkvöldi og kallaði skipstjóri eftir aðstoð. 24.9.2009 07:10
Ljósmyndavörum stolið í innbroti Brotist var inn í fyrirtæki í Reykjavík í nótt og þaðan stolið talsverðu af nýjum myndavélum og ýmsum dýrum ljósmyndavörum. 24.9.2009 07:03
30 tonn af kókaíni í sýrópinu Þrír Íslendingar sem handteknir voru í sumar og sátu um tíma í gæsluvarðhaldi, Ársæll Snorrason, Gunnar Viðar Árnason og Sigurður Ólason, voru taldir tengjast einu stærsta fíkniefnamáli sem upp hefur komið í heiminum. Í málinu lagði lögreglan í Ekvador hald á um 600 brúsa af melassa, eins konar dökku sýrópi, sem búið var að blanda í tæplega 30 tonnum af hreinu kókaíni. Efnin voru á leið til Evrópu og voru metin á hundruð milljónir dollara. 24.9.2009 07:00
Verðið lækkar erlendis Heimsmarkaðsverð á hráolíu féll um tæp fjögur prósent og fór undir sjötíu dali á tunnu í gær eftir að bandaríska orkumálaráðuneytið birti vikulega tölur um olíubirgðir í landinu. 24.9.2009 06:00
Þrýstingur á Seðlabankann „Það standa öll spjót á Seðlabankanum. En ég á ekki von á öðru en að tekin verði skynsamleg ákvörðun í þessu máli,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands (ASÍ). Forystumenn ASÍ og Samtaka atvinnulífsins (SA) funduðu með fulltrúum ríkisstjórnarinnar í ráðherrabústaðnum í gær. Vaxtaákvörðunardagur Seðlabankans er í dag. 24.9.2009 06:00
Þakka guði fyrir að við vöknuðum ekki „Þetta er nánast alveg eins og innbrotið sem Fréttablaðið sagði frá um síðustu helgi. 24.9.2009 06:00
Lögin gera ekki ráð fyrir netinu Breyta ætti lögum svo dómstólar fái heimildir til að láta fjarskiptafyrirtæki loka á vefsíður sem brjóta gegn vernd einkalífsins. Þetta er meðal þess sem lagt er til í bréfi Persónuverndar til dómsmálaráðherra. 24.9.2009 05:00
Þúsundum nauðgað ár hvert Skipulagðar nauðganir á konum og börnum eru aðför gegn mannréttindum sem alþjóðasamfélagið ætti að beita sér gegn með enn frekari hætti en gert er nú, segir Stefán Ingi Stefánsson, fra 24.9.2009 05:00
Æfa vegna hryðjuverkaógnar Alþjóðleg æfing sprengjusérfræðinga stendur fyrir dyrum á gamla varnarliðssvæðinu við Keflavíkurflugvöll og í höfninni við Helguvík. Í ár taka Noregur, Frakkland, Þýskaland, Holland, Bandaríkin og Bretland þátt í æfingunni en jafnframt sprengjusveit Landhelgisgæslunnar, alls um áttatíu manns. 24.9.2009 04:00
Össur ræðir um lán og ESB í New York Lánveitingar Norðurlandanna til Íslands voru til umræðu á fundi Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra með norrænum og baltneskum starfsbræðrum sínum í New York í Bandaríkjunum í gær. 24.9.2009 04:00
Horfur á að húsnæðisverð lækki meira Þróun í efnahagsumhverfi heimilanna bendir ekki til neins annars en að húsnæðisverð lækki á næstu mánuðum og umsvifin á íbúðamarkaðnum haldi áfram að vera lítil. Þetta segir í greiningu Morgunkorns Íslandsbanka. 24.9.2009 04:00
Um 100 milljónir gætu sparast Mun fleiri Íslendingar nota önnur lyf til meðferðar á beinþynningu en þau sem ódýrust eru og mælt er mest með. Ef notkun þessara lyfja væri með sama hætti á Íslandi og í Noregi og Danmörku væri mögulegt að lækka lyfjakostnað um 100 milljónir króna á ársgrundvelli. Þetta kemur fram í nýútgefnu fréttabréfi lyfjadeildar Sjúkratrygginga Íslands. 24.9.2009 03:30
Hárgreiðslustofa fyrir karlmenn og börn „Ég hef unnið lengi á herrastofum og hefur fundist vanta að karlmenn hafi eitthvað við að vera meðan þeir bíða og eru klipptir,“ segir Jón Hrólfur Baldursson, eigandi hárgreiðslustofunnar Rebel, sem einungis er ætluð karlmönnum og börnum. 24.9.2009 03:15
Óskar eftir fundi í iðnaðarnefnd vegna olíumála Gunnar Bragi Sveinsson, fulltrúi framsóknarmanna í iðnaðarnefnd Alþingis óskaði fyrr í kvöld eftir því að iðnaðarnefnd kæmi saman til að fjalla um stöðu olíuleitar við Ísland og ræða mögulegar breytingar á reglum um skatta og gjöld í því samhengi. 23.9.2009 21:06
Óþægilegt ef ritstjóri Morgunblaðsins var rekinn vegna skoðana sinna „Ég veit það ekki. Ég óska Davíð Oddssyni og Morgunblaðinu alls góðs. En ég kem ekkert til með að vera sérstaklega sammála því blaði fremur en ég var þegar það var undir stjórn Ólafs Stephensen," sagði Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra í spjalli við Sölva Tryggvason á Skjá einum í kvöld. 23.9.2009 20:40
Átta ára gömul stúlka slasaðist illa á kynfærum Fólk sem stendur í byggingarframkvæmdum verður að ganga frá byggingarsvæðunum og byggingunum svo ekki hljótist af hroðaleg slys. Þetta sagði Herdís Storgaard hjá Forvarnarhúsi Sjóvá í samtali við Reykjavík síðdegis í dag. 23.9.2009 19:21
Óvíst hvort bóluefnið dugi Óvíst er hvort þeir 300 þúsund skammtar, af bóluefni gegn svínaflensu, sem hafa verið pantaðir muni duga til að bólusetja alla þjóðina líkt og stefnt var að. Þá er enn á huldu hvenær efnið berst til landsins. 23.9.2009 19:55
Segist ekki vera dómari í málum bankanna Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segist ekki vera dómari í málefnum bankanna. Bloomberg fréttaveitan hefur eftir Ólafi að bankarnir hafi engin lög brotið. Þetta segist Ólafur ekki hafa sagt. Ummæli sín fjalli um að aðrir læri af mistökum bankanna. 23.9.2009 18:35
Umboðsmaður barna vill aðstoð almennings við að gæta að hag barna Umboðsmaður barna hefur verulegar áhyggjur af stöðu barna í ljósi efnahagsástandsins og sér ástæðu til að kalla eftir aðstoð almennings við að standa vörð um hagsmuni þeirra, þarfir og réttindi. 23.9.2009 17:47
Jón Gerald frumsýnir nýtt myndband Jón Gerald Sullenberger hefur sett saman nýtt tíu mínútna langt myndband ásamt félögum sínum. Myndbandið sýnir Barbabrellur Kaupþings og Baugs Group með fyrirtækið Haga á Íslandi að sögn Jóns. 23.9.2009 16:54
Bankasýsla ríkisins tekur til starfa Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hefur skipað í stjórn Bankasýslu ríkisins og hefur hún formlega tekið til starfa. Bankasýslu ríkisins er ætlað að fara með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum. 23.9.2009 16:19
Fimmtíu milljónir sparast við sýnatökur Nýtt útboð Ríkskaupa á blóðsýnatökum fyrir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu mun að öllum líkindum skila 50 milljóna króna sparnaði á ári. Öryggismiðstöðin bauð best í verkið og hlýtur fyrirtækið samninginn í eitt ár en hann má framlengja þrisvar sinnum eitt ár í senn. 23.9.2009 15:47
Ríkisstjórnin hlýtur að þrýsta á um stýrivaxtalækkun „Ég tel að ríkisstjórnin hljóti að beita sér gagnvart Seðlabankanum, þannig að það sé öruggt að vextir lækki,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. 23.9.2009 15:23
Einstæð móðir fékk rúmar 35 milljónir Vinningshafinn í Lottóútdrættinum sl. laugardag er búinn að gefa sig fram. Að þessu sinni var það ung kona, reyndar einstæð móðir með tveggja ára gamalt barn sem datt svona hressilega í lukkupottinn en vinningur fyrir allar tölurnar réttar var rúmlega 35,5 milljónir króna. 23.9.2009 15:13
Hollenska utanríkisþjónustan í lið með InDefence Ólafur Elíasson einn af forsvarsmönnum InDefence hópsins segist hafa verið boðaður á fund ásamt tveimur öðrum á ræðisskrifstofu Hollands fyrir skömmu. Þar áttu þeir fund með embættismanni frá sendiráði Hollands í Noregi sem er með málefni Íslands á sinni könnu. Eftir að hafa rætt við manninn virtist hann sannfærður um að hópurinn ætti að tala máli Íslands í Hollandi. Ólafur er nú þegar búin að ræða við hollenska sjónvarpsstöð og nú stendur til að hópurinn fái áheyrn hollenska þingsins. 23.9.2009 14:55
Beitti stjúpsystur sína kynferðisofbeldi í fimm ár Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann fyrir kynferðisbrot gegn stjúpsystur sinni í fimm ár á árunum 1999 til 2003. Maðurinn er sakaður um að hafa allt að 40 sinnum haft munnmök við stúlkuna og káfað á kynfærum hennar innan og utan klæða auk þess sem hann lét stjúpsystur sína hafa einu sinni við sig munnmök. 23.9.2009 14:54
Mistök þegar Vinnumálastofnun stöðvaði greiðslur atvinnuleysisbóta Starfsmenn Greiðslustofu Vinnumálastofnunar á Skagaströnd gerðu mistök þegar atvinnulaus einstæð móðir lenti í því að greiðslum atvinnuleysisbóta til hennar var frestað vegna þess að hún hafði fengið greidd mæðralaun. Vísir greindi frá málinu á sínum tíma og í framhaldi af því fór Umboðsmaður Alþingis fram á það við Vinnumálastofnun að þetta yrði útskýrt og hversu margir hefðu ekki fengið greitt á réttum tíma af sömu sökum. 23.9.2009 14:47
Ökufantur stöðvaður á ofsahraða í Garðabæ Bifhjólamaður var staðinn að hraðakstri á Reykjanesbraut í Garðabæ í gærkvöld en hjól hans mældist á 177 kílómetra hraða. Ökumaðurinn, karl á fertugsaldri, var færður á lögreglustöð en þar var hann sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. 23.9.2009 14:05
Obama að ávarpa allsherjarþing SÞ Barack Obama Bandaríkjaforseti hóf fyrir stundu fyrstu ræðu sína á allsherjarþingi Sameinuðu Þjóðanna sem nú stendur yfir. Ræðan hófst klukkan hálftvö að íslenskum tíma og er búist við því að forsetinn muni afra yfir aðgerðir Bandaríkjamanna til þess að takast á við alheimskreppuna auk þess sem búist er við því að Obama lýsi þeirri viðhorfsbreytingu sem átt hefur sér stað í Hvíta húsinu gagnvart Sameinuðu þjóðunum frá því hann tók við. 23.9.2009 13:45
Vilja vita af hverju olíufélögin hættu við olíuleitina „Haft verður samband við þau olíufélög sem hafa sýnt svæðinu áhuga auk þeirra sem afturkallað hafa sérleyfisumsóknir sínar til að fá skýrari mynd af ástæðum þess að þau luku ekki umsóknarferlinu," segir í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu vegna þeirrar ákvörðunar olíufélaganna Sagex Petroleum og Lindir Exploration að draga til baka umsókn um sérleyfi til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu. 23.9.2009 13:45
Fundaði með borgarstjóra um minnisvarða um Helga „Hanna Birna tók vel í þetta og var mjög almennileg. Hún sagði að borgin væri mjög opin fyrir þessu,“ segir Alexander Freyr Einarsson, forsvarsmaður hóps sem vill reisa minnisvarða um mótmælandann Helga Hóseasson sem lést 6. september. Alexander fundaði með Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, borgarastjóra, um málið í dag. 23.9.2009 13:20
Leigubílaröðin færist í Hafnarstræti Biðskýli fyrir þá sem vilja ná leigubíl eftir miðnætti um helgar í miðborginni hefur verið flutt norður fyrir Lækjartorg og er nánar tiltekið við Hafnarstræti 22. Nú í vikunni verður skýlið merkt með áberandi hætti þannig að enginn þurfi að velkjast i vafa um að hann sé á rétta staðnum. 23.9.2009 13:15
Lögregla hafði afskipti af prófsvindlara Eins og flestir vita eru verkefni lögreglunnar af ýmsum toga og sum er óvenjulegri en önnur. Það átti sannarlega við á dögunum þegar óskað var eftir lögregluaðstoð á ónefndum stað á höfuðborgarsvæðinu. Þar hafði staðið yfir próf í ótilgreindu fagi og einn nemandinn orðið uppvís að svindli. Mun viðkomandi hafa haft svindlmiða meðferðis en það er með öllu óheimilt eins og gefur að skilja. 23.9.2009 12:57
Líklegt að ræningjarnir í Svíþjóð hafi hlotið herþjálfun Sænska lögreglan telur að þyrluflugmaðurinn sem tók þátt í að ræna peningageymslu öryggisfyrirtækis í morgun hafi hlotið herþjálfun. Þá leikur einnig grunur á að einn ræningjanna sé starfsmaður öryggisfyrirtækisins. 23.9.2009 12:33
Ráðuneytið bíður enn eftir gögnum frá Menntaskólanum Menntamálaráðuneytið bíður enn gagna frá Menntaskólanum ehf., sem hyggst reka nýjan grunnskóla í Reykjavík, sem varða væntanlegt húsnæði skólans við Barónsstíg. Ráðuneytinu hafa borist öll önnur gögn sem eiga að fylgja umsókn um nýjan skóla, samkvæmt upplýsingum úr ráðuneytinu. 23.9.2009 12:17
Segir ákvörðun menntamálaráðherra lögbrot Menntamálaráðherra boðar afnám á rétti grunnskólanema til að stunda fjarnám á framhaldsskólastigi. Fulltrúi í Menntaráði Reykjavíkur segir þetta brjóta í bága við lög. 23.9.2009 12:09