Leggja milljarða í nýtt einkasjúkrahús 25. september 2009 05:00 Mögulegt er að sjúkrahús og hótel rísi í nágrenni Reykjalundar í Mosfellsbæ, en einnig er verið að skoða lóðir á Álftanesi og í Garði.FRéttablaðið/GVA
Stefnt er að því að einkarekið sjúkrahús sem mun sérhæfa sig í mjaðma- og hnjáliðaaðgerðum á erlendum ríkisborgurum verði opnað hér á landi síðla árs 2011 eða snemma árs 2012. Forsvarsmenn verkefnisins skoða nú lóðir á Álftanesi, í Garði og Mosfellsbæ. Gunnar Ármannsson, framkvæmdastjóri PrimaCare, segir að vonandi verði hægt að taka ákvörðun um staðsetningu á næstu vikum. Kostnaður við uppbyggingu sjúkrahússins er áætlaður á bilinu 100 til 150 milljónir Bandaríkjadala, eða þrettán til nítján milljarðar króna, segir Gunnar. Verkið verði fjármagnað bæði af innlendum og erlendum aðilum. Áformað er að reisa sjúkrahús með 120 herbergjum, sem geti annað allt að sex þúsund sjúklingum á ári. Gunnar segir að á sömu lóð verði reist hótel með 220 herbergjum. Algengt er að ættingjar fylgi fólki sem ferðast til að fara í mjaðma- og hnjáliðaaðgerðir. Talsverðan fjölda starfsmanna þarf fyrir bæði sjúkrahúsið og hótelið. Gunnar segist reikna með í það minnsta 600 starfsmönnum, og hugsanlega allt að 1.000. Sjúklingar munu aðallega koma frá Bandaríkjunum og Evrópu. Gunnar segir að sjúkrahúsið sé ekki hugsað til að sinna íslenska markaðinum, en kjósi Íslendingar að kaupa sér heilbrigðisþjónustu á eigin kostnað sé það þeim í sjálfsvald sett. Þeir geti það nú þegar hjá öðrum einkareknum sjúkrahúsum utan landsteinanna. Lítið hefur farið fyrir samráði við heilbrigðisráðuneytið. Gunnar segir að óskað hafi verið eftir viðtali við heilbrigðisráðherra í lok ágúst, en ekki hafi tekist að finna tíma til að funda með honum. „Þetta yrði geysileg lyftistöng fyrir bæinn, og ég er viss um að bæjarbúar myndu taka þessu fyrirtæki fagnandi," segir Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar. Bæjarráð Mosfellsbæjar hefur lýst eindregnum stuðningi við byggingu sjúkrahúss PrimaCare á Íslandi. Haraldur segir það heiður fyrir bæjarfélagið að til greina komi að fyrirtækið byggi upp starfsemi sína í Mosfellsbæ. Bærinn hefur boðið forsvarsmönnum PrimaCare aðstöðu á fjórum stöðum í bæjarfélaginu: á lóð Reykjalundar, í Skammadal austan við Reykjalund, á Sólvöllum fyrir ofan Akra og í Reykjahlíð í námunda við Tungumela, segir Haraldur. Hann segir fyrirtækið þurfa um fjögurra hektara lóð, og nægt pláss sé fyrir starfsemina í bæjarfélaginu. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Kærastinn var á staðnum Erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Sjá meira