Fjöldi fólks hefur orðið fyrir skemmdum á húsnæði Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 24. september 2009 18:29
Rauðri málningu var í nótt skvett á einbýlishús Hreiðars Más Sigurðssonar fyrrum forstjóra Kaupþings en þetta er í þriðja sinn sem það er gert. Fjöldi slíkra atvika hafa orðið á síðustu mánuðum og rifjaði Guðný Helga upp hvaða skemmdarverk hafa verið unnin á eigum áberandi manna í viðskiptalífinu á árinu. 1. <!--[endif]-->Janúar 2009 - Björgólfur Thor Á fyrsta degi ársins voru unnin skemmdarverk á húsi Björgólfs Thors Björgólfssonar og eiginkonu hans í Fossvoginum. Á húsið voru spreyjaðar myndir af Björgólfi og Geir H. Haarde, sem þá var forsætisráðherra. Undir myndirnar var ritað fæðingarár þeirra og ártalið 2009. 4. apríl 2009 Þremur mánuðum síðar var rauðri málningu slett á hús Hannesar Smárasonar á Fjölnisvegi. Hannes var ekki heima þegar spjöllin voru unnin en starfslið hans kallaði til mála til að lagfæra skemmdirnar. 2. <!--[endif]-->Júlí 2009 Þremur mánuðum síðar var rauðri málningu aftur slett á hús Hannesar. Sömu nótt var málningu slett á hús Björgólfs Guðmundssonar við Vesturbrún. Á svipuðum tíma varð hús Birnu Einarsdóttir, bankastjóra Íslandsbanka, einnig fyrir skemmdarverkum. 12. júlí 2009Tíu dögum síðar var blóðrauðri málningu skvett á heimili Steingríms Wernerssonar við Árland í Fossvoginum. Viku áður höfðu starfsmenn sérstaks saksóknara gert húsleit í Milestone og Sjóvá, fyrirtækjum sem voru í eigu Steingríms og bróður hans Karls. 17. júlí 2009Fimm dögum síðar var það hús Bjarna Ármannssonar, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, sem fékk sömu útreið. Þá var málningu einnig skvett á dúkkuhús í eigu barna Bjarna en samkvæmt yfirlýsingu aðgerðarsinna var það ekki viljaverk. 31. júlí 2009Í lok júlí kvað við nýjan tón þegar skemmdarvargar hófu að herja á heimila stjórnenda í stóriðjufyrirtækjum. Sá fyrsti sem varð fyrir barðinu á þeim var Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar en grænni málningu var skvett á hús hans. Í tilkynningu sem skemmdarvargarnir sendu frá sér sagði að í nafni peninga og valds hafi Landsvirkjun markvisst eyðilagt íslenskar byggðir. 5. ágúst 2009Nokkrum dögum síðar var málningu skvett á hús Rannveigar Rist, forstjóra Alcan. 6. ágúst 2009Daginn eftir var hús Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings atað rauðri málningu. 10. ágúst 2009Og fjórum dögum síðar var rauðri málningu skvett á hús Hjörleifs Kvaran, forstjóra Orkuveitunnar, við Granaskjól. Hjörleifur sagði að honum fyndist helvíti lágkúrulegt og aumt að þeir sem að þessu standa skuli ekki þora að stíga fram og gangast við þessu hryðjuverki. Hann sagði þetta ekki aðeins bitna á honum, heldur einnig fjölskyldu hans og börnum. Bílar Hjörleifs voru einnig eyðilagðir með lakkeyði. 13. ágúst 2009Þann 13. ágúst fékk heimili Hreiðars Más í Hlyngerði rauða málningargusu í annað sinn. Sömu nótt var hús Karls Wernerssonar atað rauðri málningu. 18. ágúst 2009Fimm dögum síðar var kveikt í bifreið Stefáns Hilmarssonar, fyrrverandi fjármálastjóra Baugs, fyrir utan heimili hans. Upptökur úr öryggismyndavélum í nágrenninu sýndu rþjá menn sem sterklega eru grunaðir um verknaðinn en þeir eru enn ófundnir. 23. ágúst 2009 Þá var Hummer bifreið Björgólfs Thors þakin með rauðri lakkmálningu en bifreiðin stóð á plani Háskólans í Reykjavík við Höfðabakka. Sem fyrr voru myndir af verknaðinum sendar til fjölmiðla um miðja nótt. Sömu aðilar tilkynntu um að hús Sigurðar Einarssonar, fyrrum stjórnarformanns Kaupþings, hefði einnig verið sprautað með rauðu lakki. Tæknideild lögreglunnar rannsakaði skemmdarverkin á húsi Sigurðar. 28. ágúst 2009 Í lok ágústmánaðar var blárri blöðru með rauðri málningu hent á heimili Lárusar Welding, fyrrum bankastjóra Glitnis, í Blönduhlíð. Húsið varð útatað. Þetta gerðist rétt fyrir miðnætti en gleðskapur var á heimili Lárusar þegar atvikið átti sér stað. 16. september 2009 Og nú um miðjan þennan mánuð voru skemmdarverkar enn á ferð hjá Wernersbræðrum. Þeir þöktu heilan vegg á húsi Steingríms og skvettu einnig málningu á hús Karls við Engihlíð. 24. september 2009 Nú í nótt var rauðri málningu skvett á einbýlishús Hreiðars Más í þriðja sinn.
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Kærastinn var á staðnum Erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Sjá meira