Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bestu genin í íslensku konunni „Við búumst við um 18 keppendum og konurnar koma úr mismunandi áttum," segir Gemma Taylor Magnússon, fyrrum sterkasta kona Bretlands, en hún ásamt eiginmanni sínum, Benedikt Magnússyni, skipuleggur nú keppnina Sterkustu konu Íslands sem fram fer í Vetrargarðinum í Smáralind í október. 26.8.2009 01:00
Skógar sækja á vegna hlýnunar Hlýnun jarðar hefur orðið þess valdandi að tré skjóta nú rótum á svæðum þar sem áður var of kalt til að þau gætu þrifist. Þetta er niðurstaða fyrstu rannsóknarinnar sem gerð hefur verið á áhrifum loftslagsbreytinga á trjálínur, ystu mörk þeirra svæða þar sem skógar fást þrifist. 26.8.2009 00:45
Vandræðaleg samtöl í Kjós „Sé um vanskil að ræða hefur starfsmaður á skrifstofu hreppsins samband við viðkomandi, en það eru að öllu jöfnu vandræðaleg samskipti,“ segir Sigurbjörn Hjaltason oddviti á heimasíðu Kjósarhrepps um milda innheimtustefnu hreppsins sem byggist á því á að treysta á skilvísi gjaldenda. 26.8.2009 00:30
Nouri al-Maliki einn á báti Tveir stærstu flokkar sjía-múslima á Íraksþingi hafa myndað með sér bandalag, ásamt litlum flokkum súnní-múslima, en í andstöðu við Nouri al-Maliki, forsætisráðherra, sem sjálfur er sjía-múslimi og hefur til þessa notið stuðnings flokka sjía á þinginu. 26.8.2009 00:30
Árni Johnsen: Sigmundur Ernir hefur bara ákveðinn stíl „Ég fann ekkert athugavert við hann,“ segir Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi en hann sat í þingsal og hlustaði á eldræðu Sigmundar Ernis Rúnarssonar á fimmtudagskvöldinu. 25.8.2009 21:53
Kviknaði í manni eftir rafstuð frá lögreglu Lögreglan í Ohio kveikti óvart í hinum heimilislausa Daniel Wood á dögunum þegar þeir gáfu honum rafstuð með sérstökum rafbyssum. 25.8.2009 23:32
Leiðrétting: Þingflokksformaður ræddi sérstaklega við Sigmund Þingflokksformaður Samfylkingarinnar ræddi sérstaklega við Sigmund Erni Rúnarsson eftir eldræðu mikla sem hann hélt á fimmtudagskvöldinu síðasta. Samtal þeirra var í einrúmi en tilefnið var sérkennilega framganga Sigmundar í sölum Alþingis á fimmtudagskvöldinu síðasta. 25.8.2009 22:20
Hugsanlega lærbrotinn eftir vélhjólaslys Fjórir einstaklingar voru fluttir á spítala eftir að vélhjól og bifreið lentu í árekstri á Korpúlfsstaðarvegi í Grafarvogi í kvöld. Atvikið átti sér stað á áttunda tímanum. 25.8.2009 20:46
Magnús Ármann stendur í ströngu Í nægu er að snúast hjá Magnúsi Ármann þessa daganna. Kaupþing hefur stefnt honum, sérstakur sakskóknari rannsakar meinta markaðsmisnotkun í viðskiptum sem félag í hans eigu átti auk þess sem ríkisskattstjóri rannsakar greiðslukortanotkun hans. 25.8.2009 18:59
Hugsanlega í mál við útrásavíkinga og bankastjóra Fjármálaráðherra segir ekki útilokað að eigendur og stjórnendur gömlu bankanna verði meðal þeirra sem skaðabótamál verði höfðuð gegn, verði sýnt fram á að þeir hafi bakað ríkinu og almenningi tjóni með athöfnum sínum fyrir og eftir bankahrun. 25.8.2009 18:48
Íslenskir lögreglumenn norðulandameistarar í golfi Íslenskir lögreglumenn sigruðu norðurlandamót lögreglumanna í Golfi í Danmörku í lok síðustu viku samkvæmt tilkynningu á fréttavef lögreglunnar. 25.8.2009 17:33
Meintur mannræningi með 500 E-töflur Maðurinn sem var dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir að hafa haft undir höndum tæplega 500 E-töflur var handtekinn fyrir stuttu vegna mannráns á Akureyri. Maðurinn heitir Eyþór Helgi Guðmundsson og er tuttugu og fimm ára gamall Akureyringur. 25.8.2009 17:12
Mannleg mistök gerð við útkall á Herðubreið Mannleg mistök voru gerð við útkall þegar maður varð bráðkvaddur á Herðubreið síðastliðinn laugardag, segir í tilkynningu frá Landsstjórn Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Farið var út fyrir faglega vinnuferla og misbrestur varð í samskiptum þeirra sem að komu. 25.8.2009 16:13
Játar ábyrgð á sprengjuhótuninni Maðurinn sem var handtekinn í gær vegna sprengjuhótunar í Borgarholtsskóla hefur játað að hafa hringt í skólann með hótanir um að sprengju væri þar að finna. Hann er laus úr haldi lögreglu. 25.8.2009 16:02
Stúdentar ræða við Svandísi um frekari niðurgreiðslu í strætó Stúdentaráð Háskóla Íslands á í viðræðum við Svandísi Svavarsdóttur, umhverfisráðherra, um frekari niðurgreiðslu á nemakortum í strætó. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu greiða niður hvert nemakort sem framhalds- og háskólanemendur kaupa hjá Strætó bs. um 15 þúsund krónur. 25.8.2009 15:34
Icesave afgreitt úr fjárlaganefnd Icesave frumvarpið var afgreitt úr fjárlaganefnd rétt í þessu með stuðningi allra aðila nefndarinnar nema Höskuldar Þórhallssonar, þingmanns Framsóknarflokksins. Samkvæmt heimildum Vísis var samþykktur nýr fyrirvari við ríkisábyrgðina þess efnis að ríkisábyrgð tæki ekki gildi nema að Bretar og Hollendingar samþykktu þá efnahagslegu- og lögfræðilegu fyrirvara sem hefðu þegar verið gerðir. 25.8.2009 15:26
Dæmdur fyrir vörslu á tæplega 500 E-töflum Maður var á föstudag dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir vörslu á 487 E-töflum. Dómurinn var kveðinn upp í héraðsdómi Norðulands. Maðurinn var einnig dæmdur fyrir þjófnað á rakspíraog dömuilmvatni, sem og fyrir vörslu á lítilræði af hassi. 25.8.2009 15:22
Þótti fagnaðarlætin við heimkomu Lockerbie morðingjans ógeðfelld Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, segir að fagnaðarlætin við heimkomu hryðjuverkamannsins Abdulbaset Ali Mohmed al Megrahi til Líbýu hafa verið einkar ógeðfelld. Hingað til hefur Brown farið eins og köttur í kringum heitan graut og ekki fengist til tjá sig um málið. 25.8.2009 15:00
Fíkniefnamálið er harmsaga „Þetta er harmsaga sem vindur ofan á sig og það er verið að rembast við að vinda ofan af henni," segir Sigurður Hilmar Ólason. Hann fékk í gær tilkynningu frá Ríkissaksóknara um að fíkniefnamál gegn honum yrði látið niður falla. Sigurður var grunaður um að hafa staðið að innflutningi á umtalsverðu magni af amfetamíni til landsins og sat í gæsluvarðhaldi um þriggja vikna skeið í júní vegna þess. 25.8.2009 14:21
Barði mann með flösku á Njálsgötu 26 ára karlmaður var í dag dæmdur í fimm mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur, fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Maðurinn barði mann með flösku í höfuðið í fyrrasumar. Dómurinn er skilorðsbundinn. 25.8.2009 14:16
Umferð mun þyngjast á höfuðborgarsvæðinu Í ljósi þess að framhaldsskólar á höfuðborgarsvæðinu eru teknir til starfa eftir sumarleyfi má búast við að umferð þyngist á álagstímum. Eru ökumenn beðnir um að hafa þetta í huga og gera ráð fyrir að ferðatími, sérstaklega á morgnana milli klukkan átta og níu, kunni að lengjast frá því sem verið hefur. Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram reynsla síðustu ára hafi sýnt að umferðaróhöppum fjölgi í september, samanborið við mánuðina þar á undan. Til mikils er því að vinna fyrir vegfarendur að aka varlega og þá sérstaklega næstu vikur þegar umferðin kemur til með að aukast mikið og nýir vegfarendur bætast í hópinn. 25.8.2009 13:47
Lögreglan leitar að eiganda hálsmens Forláta hálsmen er í vörslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem nú leitar eiganda þess. Frekari upplýsingar eru veittar í síma 444-1000. Menið er hið glæsilegasta eins og sést á meðfylgjandi mynd. 25.8.2009 13:40
Tvö innbrot í Vínbúð á skömmum tíma Innbrotið í Vínbúðina í Skeifunni í nótt er annað innbrotið í verslun Vínbúðanna á skömmum tíma. Í síðustu viku var brotist inn í verslun við Stekkjarbakka og þaðan stolið nokkrum áfengisflöskum, að sögn Sigrúnar Óskar Sigurðardóttur aðstoðarforstjóra Vínbúðanna. 25.8.2009 13:22
Beaty átti „árangursríkan“ fund við Steingrím Ross Beaty, forstjóri og aðaleigandi Magma Energy hitti Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra að máli í morgun. Beaty segir í samtali við fréttastofu að fundurinn hafi verið árangursríkur þó ekki hafi fengist klár niðurstaða. „Við skiptumst á skoðunum og hugmyndum en eigum eftir að ræða betur saman," segir Beaty. 25.8.2009 13:20
Gleymdu að lýsa fjögurra milljarða króna kröfu í Straum Lögmannsstofa sem átti að lýsa fjögurra milljarða króna kröfu í Straum fyrir lífeyrissjóðinn Stapa gleymdi að lýsa kröfunni fyrir þann frest sem gefinn var. Nú þarf að leita samþykkis annarra kröfuhafa til að unnt verði að endurheimta einhvern hluta þessarar kröfu, annars tapast fjárhæðin að öllu leyti. 25.8.2009 12:56
Enn vantar um 70 starfsmenn á frístundaheimilin Enn vantar um 70 manns til starfa á frístundaheimilum Reykjavíkurborgar. Sótt hefur verið um vistun fyrir hátt í 2900 börn, en það eru öllu fleiri en fjárheimildir gera ráð fyrir en búist var við um 2100 börnum. 25.8.2009 12:28
Lögreglumenn leiðbeina ekki grunskólabörnum vegna fjárskorts Lögreglumenn sjást ekki lengur við grunnskólana, fyrstu dagana eftir að skólastarfið hefst, eins og venjan hefur verið til að tryggja öryggi barnanna á meðan þau eru að venjast aðstæðum. 25.8.2009 12:24
Yfirheyrður í hádeginu vegna sprengjuhótunarinnar Maðurinn sem var handtekinn í gær vegna sprengjuhótunar í Borgarholtsskóla verður yfirheyrður nú í hádeginu. Hann er grunaður um að hafa hringt í skólann í gær með hótanir um að sprengju væri þar að finna. Skólinn var rýmdur á svipstundu en sprengjuleitarmenn Landhelgisgæslunnar fundu enga sprengju í skólanum, um gabb reynist að ræða. 25.8.2009 12:14
Borgin niðurgreiðir nemakort í Strætó Reykjavíkurborg niðurgreiðir í vetur hvert nemakort sem reykvískir framhalds- og háskólanemendur kaupa hjá Strætó bs. um 15 þúsund krónur. 25.8.2009 11:58
Forsendur kannaðar fyrir málsókn á hendur sökudólgum bankahrunsins Sérstakur starfshópur verður stofnaður á næstunni til þess að undirbúa hugsanleg skaðabótamál á hendur þeim sem sýnt þykir að valdið hafi ríki og almenningi fjárhagslegu tjóni með athöfnum sínum í bankahruninu og aðdraganda þess. Tillaga þessa efnis var samþykkt á ríkisstjórnarfundi sem haldinn var í morgun. 25.8.2009 11:45
Lokaumræðan um Icesave á morgun Fjárlaganefnd Alþingis tókst ekki að ljúka umfjöllun sinni um fyrirvaranna við Icesave frumvarpið á fundi sínum í nótt en nefndin kemur saman á nýjan leik klukkan tvö. Þingflokkarnir funda áður um málið. Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, segir að skapist sátt um afgreiðslu málsins í nefndinni verði málið af öllum líkindum tekið til lokaumræðu á morgun. 25.8.2009 11:34
Stal peningum úr gjaldkerakassa í tvígang Viðskiptavinur Íslandsbanka í Vestmannaeyjum hefur verið kærður fyrir að stela peningum úr kassa gjaldkera í tvígang. Fyrra brotið komst ekki upp fyrr en einstaklingurinn endurtók leikinn, þremur mánuðum síðar. 25.8.2009 11:25
Fundu fíkniefni í Grafarholti Fíkniefni fundust við húsleit í íbúð í Grafarholti eftir hádegi í gær. Um var að ræða um 1,5 kíló af hassi, ríflega 600 grömm af marijúana og kókaín í neysluskömmtum. Að sögn lögreglu voru tveir menn á þrítugsaldri handteknir og yfirheyrðir í tengslum við rannsókn málsins. 25.8.2009 11:14
Framkvæmdastjóri þingflokksins yfirgefur Valhöll Árni Helgason framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins er á förum úr Valhöll. Hann hefur ráðið sig til starfa hjá lögfræðistofunni JS-lögmenn og mun láta af störfum sem framkvæmdastjóri þingflokksins um mánaðarmótin. Árni er lögfræðingur að mennt og hefur starfað fyrir þingflokkinn í rúm tvö ár, eða frá því í júní 2007. 25.8.2009 11:07
Ákvörðun um risavaxið gagnaver tekin í september Ákvörðun um hvort að risavaxið gagnaver rísi á Íslandi verður tekin í september. Framkvæmdir geta hafist innan við þremur mánuðum eftir undirritun samkomulags þess efnis en áður þurfa stjórnvöld að tryggja verkefninu orku. Þetta segir forsvarmaður fyrirtækis sem vill reisa gagnaver hér á landi sem samsvarar átta knattspyrnuvöllum að stærð. 25.8.2009 10:55
Audi kominn í leitirnar - þjófarnir fá fundarlaunin Audi bifreiðin sem lýst var eftir hér á Vísi í gærdag, er komin í leitirnar. Eigandi bifreiðarinnar hét fundarlaunum fyrir þann sem veitt gæti upplýsingar um bifreiðina. Eigandinn fór krókaleiðir til að finna bílinn. 25.8.2009 10:44
Málið gegn Sigurði Óla látið niður falla Ríkissaksóknari hefur látið falla niður mál gegn Sigurði Hilmari Ólasyni sem sat í gæsluvarðhaldi í þrjár vikur í júní grunaður um umfangsmikið fíkniefnasmygl til landsins. Brynjar Níelsson, verjandi Sigurðar, segir að hann hafi fengið bréf frá Ríkissaksóknara þess efnis. 25.8.2009 10:36
Brown ræðir við Netanyahu Gordon Brown forsætisráðherra Breta ætlar að hitta Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraela í dag til að ræða friðarferlið í Mið-Austurlöndum. 25.8.2009 09:53
Ísraelar gera loftárás á smyglaragöng Að minnsta kosti þrír palestínumenn létu lífið í loftárás Ísraela sem gerð var í morgun. Margir eru slasaðir að sögn sjónarvotta en árásin varð gerð á undirgöng sem liggja frá Gaza svæðinu og yfir til Egyptalands. Árásin er gerð í kjölfar þess að eldflaug var skotið á Suður-Ísrael í gær með þeim afleiðingum að einn hermaður slasaðist. Undirgöngin munu hafa verið notuð til að smygla vopnum inn á Gaza. 25.8.2009 09:51
Legið með Marylin til eilífðarnóns Fyrir 590 milljónir króna getur maður legið fyrir ofan Marylin Monroe til eilífðarnóns. Kynbomban Marylin Monroe er grafin í Westwood kirkjugarðinum í Los Angeles í eins konar grafhýsi þar sem kistum hinna látnu er komið fyrir í skápum hver ofan á annari. 25.8.2009 08:31
Fylgi Verkamannaflokksins í sögulegu lágmarki Breski íhaldsflokkurinn hefur sextán prósenta forystu á Verkamannaflokk Gordons Brown ef marka má nýja skoðanakönnunn sem birt er í dagblaðinu Guardian í dag. 41 prósent kjósenda segist ætla að kjósa íhaldsmenn í næstu kosningum en aðeins 25 prósent Verkamannaflokkinn. 25.8.2009 08:28
Tóbaksrisi dæmdur til að greiða skaðabætur Kviðdómur í Bandaríkjunum hefur dæmt tóbaksrisann Philp Morris til þess að greiða dóttur konu sem sem lést úr lungnakrabba af völdum reykinga tæpar 14 milljónir dollara í skaðabætur. Það samsvarar tæpum tveimur milljörðum íslenskra króna. 25.8.2009 08:26
Sérstakur saksóknari skipaður vegna yfirheyrsluaðferða CIA Bandaríkjamenn hafa skipað sérstakan saksóknara sem ætlað er að rannsaka ásakanir þess efnis að leyniþjónustan CIA hafi níðst á mönnum sem grunaðir voru um hryðjuverk. Skipun saksóknarans, Johns Durham, kemur í kjölfar þess að skýrsla sem varpar ljósi á afar óhefðbundnar yfirheyrsluaðferðir leyniþjónustunnar var gerð opinber. 25.8.2009 08:24
Stálu tveimur ginflöskum í Skeifunni Tveir menn brutu rúðu í áfengisversluninni í Skeifunni rétt fyrir klukkan fjögur í nótt og fór annar þeirra inn í verslunina og stal þaðan tveimur ginflöskum. 25.8.2009 08:19
Geimskoti frestað vegna veðurs Bandaríska geimferðastofnunin frestaði í morgun flugtaki geimferjunnar Discovery vegna slæms veðurs á Canaveral höfða í Flórída. Næsta tækifæri til geimskots er eftir sólarhring. Ferjan á að fara með sjö manna áhöfn í þrettán daga ferð til alþjóðlegu geimstöðvarinnar með vistir og varahluti. Auk hinna mennsku geimfara verða nokkrar mýs með í för, sem nota á til rannsókna á þéttleika beina. 25.8.2009 08:17