Innlent

Fíkniefnamálið er harmsaga

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sigurður Hilmar Ólason fékk tilkynningu í gær um að fíkniefnamál gegn honum hefði verið látið niður falla.
Sigurður Hilmar Ólason fékk tilkynningu í gær um að fíkniefnamál gegn honum hefði verið látið niður falla.
„Þetta er harmsaga sem vindur ofan á sig og það er verið að rembast við að vinda ofan af henni," segir Sigurður Hilmar Ólason. Hann fékk í gær tilkynningu frá Ríkissaksóknara um að fíkniefnamál gegn honum yrði látið niður falla. Sigurður var grunaður um að hafa staðið að innflutningi á umtalsverðu magni af amfetamíni til landsins og sat í gæsluvarðhaldi um þriggja vikna skeið í júní vegna þess.

Hann segist hafa orðið fyrir umtalsverðum óþægindum vegna málsins enda á Sigurður fjölskyldu og hefur verið í atvinnurekstri á undanförnum misserum. „Málið sem má kalla dularfulla fíkniefnamálið var nú ekki dularfyllra en svo að það var ekkert fíkniefnamál," segir Sigurður.

Ríkissaksóknari var jafnframt með til skoðunar meint peningaþvætti og var það mál rannsakað samhliða rannsókninni á meintum fíkniefnainnflutningi. Ríkissaksóknari hefur ekki tekið ákvörðun um framhald þess hluta málsins.




Tengdar fréttir

Málið gegn Sigurði Óla látið niður falla

Ríkissaksóknari hefur látið falla niður mál gegn Sigurði Hilmari Ólasyni sem sat í gæsluvarðhaldi í þrjár vikur í júní grunaður um umfangsmikið fíkniefnasmygl til landsins. Brynjar Níelsson, verjandi Sigurðar, segir að hann hafi fengið bréf frá Ríkissaksóknara þess efnis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×