Hugsanlega í mál við útrásavíkinga og bankastjóra Telma Tómasson. skrifar 25. ágúst 2009 18:48
Fjármálaráðherra segir ekki útilokað að eigendur og stjórnendur gömlu bankanna verði meðal þeirra sem skaðabótamál verði höfðuð gegn, verði sýnt fram á að þeir hafi bakað ríkinu og almenningi tjóni með athöfnum sínum fyrir og eftir bankahrun. Ríkisstjórnin féllst á tillögu í morgun um að skipuð yrði fjögurra manna verkefnisstjórn frá jafnmörgum ráðuneytum og ráðnir sjálfstætt starfandi lögmenn til að fara ofan í saumana á þessum málum. Vonast er til að unnt verði að sýna fram á bótaskyldu einstaklinga og fyrirtækja. Fjármálaráðherra segir að í fyrstu verði málin skoðuð almennt, augljósustu dæmin verði tekin fyrir, sem hugsanlega geti orðið fordæmisgefandi. Hann vill ekki nefna einstaka menn eða einstök fyrirtæki til sögunnar, en segir að komist mál á skrið sé ekki hægt að útiloka að stjórnendur og eigendur gömlu bankanna lendi í eldlínunni. „Nei, nei það er augljóst mál. Þetta er sett af stað vegna bankahrunsins og efnahagshrunsins og þess tjóns sem ríkið og samfélagið er að verða fyrir. Ég held að það hljóti að réttlæta kröfur og fullnægi sanngirni um að farið sé yfir þennan þátt málsins. Þetta er eðlilegur hluti af hagsmunagæslu fyrir hönd ríkisins og almennings, en líka að réttlæti nái fram að ganga," segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. Málin beinast fyrst og fremst að íslenskum ríkisborgurum og fyrirtækjum. Hraða á starfinu, en það fæst þó ekki gefins. „Þetta mun kosta eitthvað í útlagða vinnu, en við teljum rétt og skylt að leggja út fyrir því og vonandi fæst nú eitthvað upp í það ef mál vinnast," segir Steingrímur.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent Fleiri fréttir „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar Sjá meira