Stúdentar ræða við Svandísi um frekari niðurgreiðslu í strætó Magnús Már Guðmundsson skrifar 25. ágúst 2009 15:34 Stúdentaráðs Háskóla Íslands á í viðræðum við umhverfisráðherra um niðugreiðslu í strætó. Hildur Björnsdóttir er formaður ráðsins. Mynd/Stefán Karlsson
Stúdentaráð Háskóla Íslands á í viðræðum við Svandísi Svavarsdóttur, umhverfisráðherra, um frekari niðurgreiðslu á nemakortum í strætó. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu greiða niður hvert nemakort sem framhalds- og háskólanemendur kaupa hjá Strætó bs. um 15 þúsund krónur. Síðustu tvö ár var ókeypis fyrir nema búsetta í sveitarfélögum sem standa að rekstri Strætó bs. fyrir utan Garðabæ. Í vor var ljóst að sveitarfélögin hefðu ekki fjárhagslega burði til að bjóða upp á frítt í strætó þetta skólaárið. Stjórn Strætó bs. ákvað þó í júní að niðurgreiða nemakortin um 15 þúsund krónur. Hildur Björnsdóttir, formaður Stúdentaráðs HÍ, segir vissulega fagnaðarefni að stúdentar þurfi ekki að greiða fullt verð fyrir kortin en það sé veruleg vonbrigði að verkefninu ,,frítt í strætó fyrir námsmenn" verði ekki haldið áfram. „Við ákváðum að sætta okkur ekki við þessa niðurstöðu og erum því í viðræðum við umhverfisráðherra hvað varðar frekari niðurgreiðslu á kortunum. Niðurstöður úr þeirri vinnu munu vonandi liggja fyrir fljótlega," segir Hildur og bætir við að stúdentaráð bindi miklar vonir við að í framtíðinni verði mögulegt að endurvekja verkefnið og bjóða stúdentum áfram frítt í strætó. Í síðustu viku samþykkti ríkisstjórnin að hefja gerð áætlunar um sjálfbærar samgöngur með það að markmiði að draga úr þörf fyrir einkabílinn. Af því tilefni kom fram að bæði Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, og Kristján Möller, samgönguráðherra, leggja til til að opinber fyrirtæki og stofnanir niðurgreiði fargjöld í strætó fyrir starfsmenn sína til að draga úr notkun einkabíls. Þá vilja þau kanna mögulega aðkoma ríkisins að verkefninu ókeypis í strætó.
Tengdar fréttir Ráðherrar vilja að stofnanir niðurgreiði strætó Umhverfisráðherra og samgönguráðherra hvetja stofnanir og fyrirtæki til að taka upp heildstæða samgöngustefnu. Ráðherrarnir leggja til að opinber fyrirtæki og stofnanir niðurgreiði fargjöld í strætó fyrir starfsmenn sína til að draga úr notkun einkabíls. Þá vilja þeir kanna mögulega aðkoma ríkisins að verkefninu ókeypis í strætó. 21. ágúst 2009 11:30 Borgin niðurgreiðir nemakort í Strætó Reykjavíkurborg niðurgreiðir í vetur hvert nemakort sem reykvískir framhalds- og háskólanemendur kaupa hjá Strætó bs. um 15 þúsund krónur. 25. ágúst 2009 11:58 Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent Fleiri fréttir Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Sjá meira
Ráðherrar vilja að stofnanir niðurgreiði strætó Umhverfisráðherra og samgönguráðherra hvetja stofnanir og fyrirtæki til að taka upp heildstæða samgöngustefnu. Ráðherrarnir leggja til að opinber fyrirtæki og stofnanir niðurgreiði fargjöld í strætó fyrir starfsmenn sína til að draga úr notkun einkabíls. Þá vilja þeir kanna mögulega aðkoma ríkisins að verkefninu ókeypis í strætó. 21. ágúst 2009 11:30
Borgin niðurgreiðir nemakort í Strætó Reykjavíkurborg niðurgreiðir í vetur hvert nemakort sem reykvískir framhalds- og háskólanemendur kaupa hjá Strætó bs. um 15 þúsund krónur. 25. ágúst 2009 11:58