Fleiri fréttir

Varðskip í vinnu hjá Ístak

Annað varðskip Landhelgisgæslunnar er nú á heimleið frá Noregi eftir að hafa dregið tvo dýpkunarpramma til Sortlands í Norður Noregi fyrir verktakafyrirtækið Ístak. Ferðin gekk vel þrátt fyrir brælu í rúman sólarhring.

Sinnir störfum eftir föngum

Ólafur Ragnar Grímsson, Forseti Íslands, var útskrifaður af Landspítalanum á sunnu­daginn. Þar hafði hann verið frá því á miðvikudag.

Vilja ganga að ábyrgðum

Nýja Kaupþing hefur stefnt Kevin Gerald Stanford, Magnúsi Ármann og Þorsteini M. Jónssyni og mun krefjast þess að ábyrgðir vegna láns til félagsins Materia Invest ehf. falli á þá.

Ríkisins að tryggja að allir geti sótt sér grunnmenntun

Stjórnvöldum ber að sjá til þess að öll börn og unglingar hafi tök á að sækja sér grunnmenntun. Þetta segir Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður, spurður út í fregnir þess efnis að foreldrar hafi ekki sent börn sín í skólann vegna þess að þeir hafi ekki efni á rit­föngum og námsbókum.

Ráðstöfunartekjur líklega vanmetnar

Raunverulegar ráðstöfunartekjur heimila eru líklega van­metnar í bráðabirgðamati Seðlabanka Íslands á fjárhagslegri stöðu heimilanna. Matið byggðist á staðgreiðslugögnum frá ríkisskattstjóra en ekki framtalsgögnum fólks. Ekki er því tekið tillit til vaxtabóta, barnabóta, meðlags og ýmissa verktakagreiðslna sem fólk kann að hafa.

Pör sem vilja ættleiða líða fyrir fjársvelti í góðærinu

Einfaldar breytingar á íslenskum reglum um ættleiðingar gætu aukið möguleika íslenskra hjóna á því að fá að ættleiða börn erlendis frá, segir Hörður Svavarsson, formaður Íslenskrar ættleiðingar. Félagið skorar á dómsmálaráðherra að breyta reglunum sem fyrst.

Vill fréttina fordæmda

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir að sænsk stjórnvöld hafi farið yfir strikið með því að neita að fordæma frétt í sænska dagblaðinu Aftonbladet, þar sem sagt var frá grunsemdum Palestínumanna um að ísraelskir hermenn hefðu drepið Palestínumenn til að selja úr þeim líffæri.

MacAskill ver ákvörðun sína

Kenny MacAskill, dómsmálaráðherra Skotlands, varði á skoska þinginu í gær ákvörðun sína um að leysa úr haldi Líbíumanninn Abdel Baset al-Megrahi, dauðvona mann sem hafði afplánað átta ár af lífstíðarfangelsi fyrir aðild sína að Lockerbie-málinu.

Markaðurinn að komast á strik á ný

Skuldabréfavelta gærdagsins var hærri en verið hefur á einum degi síðan fyrir hrun. Heildarveltan var rétt rúmir 33 milljarðar en meðalvelta á dag á þessu ári hefur verið um 10 til 12 milljarðar. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, segir að skuldabréfamarkaðurinn hafi verið að ná sér á strik á árinu og verið að eflast milli mánaða.

Lokað á Akranesi en ríkið kaupir danska framleiðslu

„Við horfum fram á ískaldan vetur og stjórnvöld verða án tafar að grípa til aðgerða til að örva byggingariðnaðinn“, segir Gunnar H. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sementsverksmiðjunnar á Akranesi. Framleiðslu verður hætt 1. nóvember og fyrirtækið er í verulegum vandræðum ef ekki rætist úr.

Vilja baktryggja fyrirvara

Fjárlaganefnd fundaði tvisvar í gær um frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave. Nefndin bauð gestum á annan fundinn, lögmönnunum Þórhalli H. Þorvaldssyni og Þorsteini Einarssyni, en þeir rituðu grein um málið í Morgunblaðið í gær.

Grunnskólarnir fyllast af lífi

Grunnskólar landsins byrjuðu flestir vetrarstarf sitt í gær og alvaran tók við hjá um 45 þúsund krökkum um allt land. Um fjögur þúsund þeirra eru fimm og sex ára og komu í skólann sinn í fyrsta skipti.

Fannst látinn í Dalshrauni

Maðurinn sem fannst látinn í íbúð í Dalshrauni í Hafnarfirði fyrir viku hét Bragi Friðþjófsson. Bragi var 31 árs, fæddur 17. ágúst 1978, og búsettur að Sléttahrauni 28 í Hafnarfirði.

Vatnsborðið í Víti snarféll yfir nótt

Vatnsborð Vítis, sem er gígur í norðurbarmi Öskju í Dyngjufjöllum, snarlækkaði á fáeinum klukkutímum. Gígurinn myndaðist eftir eitt mesta gos hér á landi á sögulegum tíma; Öskjugosið 1875.

Erlend lán verði færð í íslenskar krónur

Guðmundur Ólafsson, lektor í hagfræði við HÍ, segir að ríkisvaldið verði að bæta skuldurum þann skaða sem það beri ábyrgð á, spurður um skoðun hans á afskriftum skulda. Skuldir hafi hlaðist upp og að mörgu leyti hafi það verið Seðlabankanum að kenna. Sjálfsagt sé því að bæta mönnum það tjón.

Tjáir sig ekki um kaup á HS

Katrín Júlíusdóttir iðnaðar­ráðherra vill ekki tjá sig um möguleikana á því að ríkið kaupi hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS orku. „Ég tjái mig ekki um þetta mál á meðan við erum að skoða það. Við erum að fara yfir málið frá a til ö,“ segir Katrín.

Búðin opnuð á laugardag

Opna átti Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi 18 á Menningarnótt, en ekkert varð úr því. Árni Einarsson, stjórnar­formaður Bókmenntafélags Máls og menningar, sem mun reka bókabúðina, segir að búðin verði opnuð næstkomandi laugardag.

Baráttan við eldana enn erfið

Örþreyttir slökkviliðsmenn og sjálfboðaliðar unnu baki brotnu í gær, fjórða daginn í röð, við að halda skógareldum við útjaðar Aþenu í skefjum. Aukin aðstoð frá öðrum ríkjum barst í gær, bæði flugvélar sem dreifa vatni og liðsauki í slökkvistarfið.

Refsiaðgerðum ekki aflétt

Bandaríkin og Suður-Kórea ætla að halda áfram að framfylgja refsiaðgerðum Sameinuðu þjóðanna gegn Norður-Kóreu, þrátt fyrir sáttaviðleitni sem birst hefur í verkum Norður-Kóreu undanfarið.

Bandaríkjamenn æfir út í Skota

Bandaríkjamenn eru æfir eftir að Skotar slepptu Abdel Baset al-Megrahi úr fangelsi en hann var dæmdur fyrir að granda farþegaþotu yfir Lockerbie árið 1988. Alls létust 270 manns þegar flugvélin sprakk. Þá létust einnig íbúar fjölbýlishús sem þotan hrapaði á.

Hótuðu að nauðga mömmu hryðjuverkaleiðtoga

Óhugnanlegar yfirheyrsluaðferðir hafa verið afhjúpaðar eftir að skýrsla um yfirheyrslur yfir hryðjuverkamönnum var birt á dögunum. Þar kom fram að starfsmaður bandarísku leyniþjónustunnar hafi hótað að myrða börn Khalid Sheikh Mohammed, en hann hefur verið sakaður um að hafa skipulagt hryðjuverkin þann 11. september árið 2001.

Bruggarar handteknir á Selfossi

Lögreglan á Selfossi haldlagði 30 lítra af landabruggi á föstudaginn síðasta. Lögreglan fór í tvær húsleitir að undangegnum úrskurði dómara Héraðsdóms Suðurlands.

Heitavatnslaust á Álftanesi á morgun

Vegna tenginga og breytinga verður heitt vatn tekið af Álftanesi á morgun frá átta að morgni til sjö að kvöldi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá OR.

Hinn handtekni í annarlegu ástandi

Ekki hefur verið unnt að yfirheyra karl um tvítugt sem handtekinn var fyrr í dag í tengslum við sprengjuhótunina í Borgarholtsskóla vegna ástands hans. Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu. Hann er ekki nemandi við skólann.

Varar við vindhviðum

Nú er mjög hvasst víðast hvar á landinu og víða eru vindhviður meira en 20 metrar á sekúntu, segir Sigurður Þ. Ragnarsson. Hann segir það vera varasamt að vera á ferðinni, sérstaklega með aftanívagna, aftan við fjöll. Sigurður segir að hviður á Kjalarnesi nái upp í 31 m/sekúnda, 35 m/ sekúndu á Snæfellsnesi og 22 m/ sekúndu á Hellisheiði.

Maður handtekinn í tengslum við sprengjuhótunina

Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur lögregla handtekið ungan karlmann í tengslum við sprengjuhótunina í Borgarholtsskóla í hádeginu í dag. Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn, vildi ekki staðfesta það í samtali við fréttastofu að svo stöddu en staðfesti að verið væri að leita aðila í tengslum við málið. Sprengjuhótunin barst skólanum símleiðis laust eftir hádegið.

Siv bindur vonir við Írann

„Mér líst ágætlega á þetta. Hann er duglegur og öflugur maður,“ segir Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi ráðherra, aðspurð hvernig henni lítist á að Pat Gallagher, rúmlega sextugur Íri og þingmanns á Evrópuþinginu, hafi verið valinn til að fara fyrir nefnd Evrópuþingsins sem kemur að samningaviðræðum Evrópusambandsins við Ísland.

Mikið hvassviðri á Snæfellsnesi

Mikið hvassviðri er á sunnanverðu Snæfellsnesi. Að minnsta kosti eitt óhapp sem orðið hefur á svæðinu í morgun, má rekja til veðursins. Lögrega biður þá sem eiga leið um svæðið að fara gætilega.

Sprengjuleitarmenn komnir í Borgarholtsskóla

Sprengjubíll frá ríkislögreglustjóra er kominn upp í Borgarholtsskóla og verður gerð leit að sprengjunni á næstu mínútum. Samkvæmt upplýsingum frá fréttamanni Stöðvar 2 og Vísis sem er er á staðnum er töluverður viðbúnaður þar. Fjölmargir lögreglubílar og -hjól hafa verið send á staðinn. Þá var dælubíll frá slökkviliðinu og tveir sjúkrabílar sendir á staðinn. Sprengjuhótunin barst símleiðis laust eftir hádegið í dag.

Nemendur þurftu að skilja eftir allar eigur og hlaupa út

Varaformaður nemendafélags Borgarholtsskóla segir nemendur hafa þurft að rýma skólann á augabragði. Sumir þurftu að skilja bíl- og húslykla og önnur verðmæti eftir inni í skólanum svo rýmingin gengi hratt fyrir sig.

Borgarholtsskóli rýmdur vegna sprengjuhótunar

Borgarholtsskóli í Grafarvogi var rýmdur fyrir stundu og er fjölmennt lögreglulið statt við skólann núna. Að sögn vaktstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er um sprengjuhótun að ræða.

Fékk áfall yfir dýrum ritföngum

Kona sem keypti sér ritföng í Eymundsson á dögunum fékk áfall þegar hún kom að kassanum og heyrði hvað vörurnar kostuðu.Konan missti nýlega vinnuna og í staðinn fyrir að fara á bætur, ákvað hún að fara í nám.

Nýr fyrirvari til að tryggja samþykki Breta og Hollendinga

Tryggja á að Hollendingar og Bretar fallist á fyrirvara við ríkisábyrgð á Icesave reikiningum Landsbankans, með nýjum fyrirvara við Icesave frumvarpið. Fjárlaganefnd vinnur að þessu á fundi sem nú stendur. Nefndarmenn reikna með því að málið verði afgreitt frá nefndinni í dag.

Mótmælendum sleppt úr haldi

Lögregla hefur sleppt úr haldi mótmælendum í samtökunum Saving Iceland sem hlekkjuðu sig við vinnuvélar á framkvæmdasvæði álversins í Helguvík.

Kate Winslet í mynd Friðriks Þórs

Breska stórleikkonan Kate Winslet mun taka að sér hlutverk móður Kela í heimildarmyndinni Sólskinsdrengnum sem kemur út með ensku tali í september næstkomandi.

Tólf flugvélar á vegum franska hersins lentar í Keflavík

Tólf flugvélar á vegum franska hersins lentu á Keflavíkurflugvelli fyrir stundu. Um er að ræða tvær flutningavélar og tíu orustuþotur. Vélarnar eru að ferja hermenn frá Evrópu til Brasilíu en ekki liggur fyrir af hvaða tilefni.

Úthluta 50 milljónum fyrir íslenskukennslu

Menntamálaráðuneytið hefur úthlutað 50 milljónum króna vegna námskeiða í íslensku fyrir útendinga síðari hluta árs 2009. Styrkirnir eru fyrir námskeið sem ekki eru hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi. Markmið með styrkjunum er að gefa öllum sem búsettir eru á Íslandi færi á að öðlast þá færni í íslensku að þeir geti orðið virkir samfélagsþegnar.

Sjá næstu 50 fréttir