Forsendur kannaðar fyrir málsókn á hendur sökudólgum bankahrunsins 25. ágúst 2009 11:45 Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.
Sérstakur starfshópur verður stofnaður á næstunni til þess að undirbúa hugsanleg skaðabótamál á hendur þeim sem sýnt þykir að valdið hafi ríki og almenningi fjárhagslegu tjóni með athöfnum sínum í bankahruninu og aðdraganda þess. Tillaga þessa efnis var samþykkt á ríkisstjórnarfundi sem haldinn var í morgun. Steingrímur J. Sigfússon lagði fram minnisblað þessa efnis á fundinum í morgun en hugmyndir af þessu tagi hafa verið í skoðun hjá fjármálaráðuneytinu undanfarið. „Í fjármálaráðuneytinu hafa verið til skoðunar hugmyndir um hvort unnt muni að hefja og reka skaðabótamál á hendur þeim lögaðilum og einstaklingum, sem sýna má fram á að hafi valdið ríkinu og almenningi í landinu fjárhagslegt tjón með athöfnum sínum í aðdraganda bankahrunsins og í því," segir í minnisblaðinu. „Slík mál, ef til kæmi, yrðu rekin sem einkamál og kröfur ríkisins í þeim einkaréttarlegs eðlis, þ.e. að ríkið fái bætur fyrir tjón sem það hefur orðið fyrir vegna verka annarra," segir einnig. Þá er bent á að sönnunarkröfur í skaðabótamálum eru með öðrum hætti en í opinberum málum. „Ef fyrirliggjandi gögn sýna brotlega eða gáleysislega framgöngu tiltekinna einstaklinga eða lögaðila sem leitt hefur til tjóns fyrir íslenska ríkið er unnt að huga að skaðabótamálum án þess að afráða þurfi fyrst um refsinæmi háttseminnar." Á minnisblaðinu kemur einnig fram að sönnunarkröfurnar í einkamáli séu vægari þó vissulega beri sá sönnunarbyrðina sem heldur fram skaðabótaskyldu annars gagnvart sér. Verkefni starfshópsins sem skipa á verður meðal annars að gera á því athugun í hvaða tilvikum líklegt er að hefja megi slík mál með árangri, skilgreina einstök mál og velja þau sem líklegt er að geti haft hraðan framgang og hafi fordæmisgildi. „Þegar talið er að fyrir liggi með nægilega ljósum hætti tjónstilvik, tjón, sökunaut og tengsl atviks og framgöngu tjónvalds við tjón ríkisins væri hægt að hefjast handa með því að æskja kyrrsetningar á eignum viðkomandi tjónvalds, einstaklinga eða lögaðila og efna svo til málsóknarinnar í kjölfarið," segir einnig en að lokinni undirbúningsvinnunni verður ákveðið hvort og með hvaða hætti staðið yrði að málshöfðun og þá hvort hún yrði í höndum ríkislögmanns eða annarra. Hópurinn sem skipaður verður fulltrúum úr forsætis- fjármála- dómsmála- og viðskiptaráðuneytis. Hópurinn getur einnig skipað tvo til þrjá lögfræðinga til að vinna að könnun og undirbúningi málshöfðunar.
Mest lesið Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Erlent Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent Sautján ára drengur lést í snjóflóði Erlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Innlent Fleiri fréttir Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Sjá meira