Fleiri
Blóðugir inniskór undir laki Áfram í gæsluvarðhaldi vegna líkamsárásar á Grettisgötu 11.6.2009 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Tólf þúsund heimili með mjög þunga greiðslubyrði Yfir fimm þúsund íslensk heimili skulda svo mikið að níu af hverjum tíu krónum sem heimilisfólk hefur til ráðstöfunar ættu að fara í afborganir lána. Tólf þúsund heimili eru með mjög þunga greiðslubyrði. 11.6.2009 18:41
Ríkisendurskoðun gerði athugasemd við viðskiptin 1997 Lánasjóður íslenskra námsmanna hefur sent frá sér skýrslu sem Ríkisendurskoðun vann fyrir stofnunina en skýrslan fjallar um viðskipti Frjálsrar miðlunar, fyrirtækis í eigu Brynhildar Gunnarsdóttur Birgissonar, við Lánasjóðinn meðan að Gunnar var stjórnarformaður sjóðsins. Stjórn LÍN hyggst ekki aðhafast frekar í málinu en skýrslan var kynnt fyrir stjórn sjóðsins í dag. 11.6.2009 20:28
Líklegt að Ómar verði bæjarstjóri Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í Kópavogi vinna nú að því að bjarga meirihlutasamstarfinu, samkvæmt heimildum fréttastofu. Fullyrt er að margt sé uppi á borðinu, að í raun sé verið ð semja nýjan samstarfssamning og að báðir aðilar muni gera kröfur á hinn. 11.6.2009 18:25
Fyrsta skóflustungan að skóla í Úlfarsárdal Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstóri í Reykjavík, tók í dag fyrstu skóflustunguna að nýjum skóla sem staðsettur er við Úlfarsbraut 118 – 120 í Úlfarsárdal. 11.6.2009 18:00
Hæstiréttur staðfestir sekt í DC++ máli Hæstiréttur staðfesti í dag dóm héraðsdóms yfir níu mönnum í hinu svokallaða DC++ máli. Mennirnir voru upphaflega sakfelldir í héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að birta og gera eintök af forritum, kvikmyndum og tónlist á netinu þannig að aðrir gætu nálgast það efni án leyfis rétthafa. Ennfremur var einn ákærða dæmdur fyrir að setja upp og hýsa miðlægan nettengipunkt og hafa með því liðsinnt í verki og hvatt til þess að aðrir ákærðu birtu á netinu í heimildarleysi ólögmæt eintök varin höfundarétti. 11.6.2009 17:43
Ólafur F. vill aðgerðir strax á Kjalarnesi Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Frjálslyndra og óháðra, segir að þörf sé á aðgerðum á Kjalarnesi strax og ekki eigi að „svæfa málið í nefnd“. 11.6.2009 17:35
Erlend veðmálafyrirtæki mega auglýsa á Íslandi Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í september 2008 sem sýknaði Þórmund Bergsson, framkvæmdastjóra birtingahússins MediaCom, af brotum á lögum um happdrætti í tengslum við auglýsingar sænska veðmálafyrirtækisins Betsson. Miðað við dóminn geta erlend fyrirtæki auglýst fjárhættuspil hér á landi. 11.6.2009 17:01
Hæstiréttur staðfestir níu ára dóm yfir Þorsteini Kragh Hæstiréttur Íslands staðfesti níu ára fangelsisdóm yfir fíkniefnasmyglaranum Þorsteini Kragh. Þá fékk Hollendingurinn Jacob Van Hinte sjö og hálft ár. Fimm ára dómur sem hann fékk fyrir fíkniefnainnflutning á Spáni var látinn hafa ítrekunaráhrif hér á landi. 11.6.2009 16:45
Skert réttindi öryrkja og ellilífeyrisþega ekki forgangsatriði Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, segir að skera verði niður í öllum ráðuneytum og þar sé félagsmálaráðuneytið og stofnanir þess engin undantekning en ríkisstjórnin reynir hvað hún getur til að draga úr kostnaði í því erfiða árferði sem nú ríkir í landinu. 11.6.2009 16:42
Enn ein kannabisræktunin stöðvuð Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu upprætti enn eina kannabisræktunina í gær þegar 130 kannabisplöntur fundust við húsleit í íbúð í austurbæ Reykjavíkur. 11.6.2009 16:30
Fjölbreytt mótmæli á Austurvelli Mótmæli stúdenta er hafin niður á Austurvelli. Innan við fimmtíu mótmælendur voru mættir á svæðið nú fyrir stundu. 11.6.2009 16:22
Ráðherra á milljónahlut í Byr Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, er hluthafi í Byr en hlutur hans samkvæmt stofnfjáreign er 5,6 milljónir króna. Þetta kemur fram þegar rýnt er í upplýsingar um hagsmunatengsl þingmanna. Hefð virðist hafa myndast fyrir því að ráðherrar sem heita Árni eigi hlut í Byr því nafni hans Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, á einnig hlut í sparisjóðnum. 11.6.2009 16:14
Gunnar Birgisson vék af bæjarráðsfundi Gunnar Birgisson vék af bæjarráðsfundi sem stendur yfir núna. Ekki er ljóst nákvæmlega hversvegna en þó er ljóst að verið er að ræða málefni honum tengdum, þá sennilega málefni Frjálsra miðlunar sem er í eigu dóttur hans og eiginmanns hennar. 11.6.2009 15:45
Vinna við úrbætur á Vesturlandsvegi í fullum gangi Kristján L. Möller samgönguráðherra segir að úrbætur á Vesturlandsvegi séu í fullum gangi hjá Vegagerðinni. Vísir sagði frá áhyggjum íbúa á Kjalarnesi yfir umferðaröryggi á svæðinu í morgun. Í síðustu viku munaði litlu að tveir ungir piltar yrðu undir flutningabíl. Kristján segist hafa farið á íbúafund á svæðinu þann 1.apríl og daginn eftir hafi hann gengið í málið með Vegamálastjóra. Stefnt er á að setja undirgöng undir veginn og Kristján hefur óskað eftir því að það verði gert sem allra fyrst. 11.6.2009 15:12
Inflúensan orðin að alheimsfaraldi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur skilgreint H1N1-inflúensuna sem alheimsfaraldur en þetta þýðir að flensan breiðast nú hratt út og í að minnsta kosti tveim heimsálfum. 11.6.2009 15:07
Stefán skipaður rektor Háskólans á Akureyri Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, hefur að fenginni tilnefningu háskólaráðs Háskólans á Akureyri skipað Stefán B. Sigurðsson, prófessor og forseti læknadeildar Háskóla Íslands, í embætti rektors Háskólans á Akureyri. 11.6.2009 14:56
Óstarfhæf bæjarstjórn í Grindavík Meirihlutinn í bæjarstjórn Grindavíkur er orðinn að minnihlutastjórn eftir að Samfylkingarmaðurinn Garðar Páll Vignisson sagði sig úr Samfylkingunni og gekk yfir í Vinstri græna. 11.6.2009 14:54
27 þingmenn hafa upplýst um hagsmunatengsl sín 27 af 63 þingmönnum hafa upplýst um fjárhagslega hagsmuni sína og trúnaðarstörf utan þings. Þar á meðal eru allir þingmenn Framsóknarflokksins og fimm ráðherrar. 11.6.2009 14:53
WHO boðar til blaðamannafundar vegna flensunnar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur boðað til blaðamannafundar klukkan fjögur í dag um útbreiðslu inflúensuveirunnar í heiminum. Fastlega er búist við að alheimsfaraldri verð lýst yfir en miklar áhyggjur eru yfir ástandinu vegna fjölda tilfella sem hafa komið upp í Ástralíu undanfarið. 11.6.2009 13:35
Taka undir með íbúum á Kjalarnesi Borgarráð tekur undir með íbúum á Kjalarnesi um að brýnt sé að fara í nauðsynlegar úrbætur á Vesturlandsvegi og mikilvægi þess að umferðaröryggismál verði betur tryggð fyrir akandi og gangandi vegfarendur við þessa fjölförnu umferðaræð. Þetta kemur fram í frétt á vef Reykjavíkurborgar. Vísir sagði frá áhyggjum íbúa á Kjalarnesi í morgun en litlu munaði að stórslys yrði á veginum þegar tveir ungr piltar urðu næstum undir flutningabíl þar í síðustu viku. 11.6.2009 13:16
Vélhjólaslys í miðbænum Maður á vélhjóli lenti óhappi í miðbænum um klukkan hálf þrjú í dag. Að sögn varðstjóra eru málsatvik óljós en sjúkrabílar eru á vettvangi. Ekki er ljóst hvort einhver hafi slasast eða hvað olli slysinu. 11.6.2009 12:57
Meirihlutinn í Kópavogi riðar til falls Meirihluti Sjálfstæðismanna og Framsóknar í Kópavogi riðar til falls. Vaxandi þrýstingur er úr grasrót Sjálfstæðisflokksins að Gunnar Birgisson víki úr stóli bæjarstjóra. Endurskoðendur Deloitte standa við fyrri skýrslu um að viðskipti bæjarins við Frjálsa miðlun séu hugsanlega brot á lögum. Gunnar Birgisson sakar Deloitte um að gera málið tortryggilegt með óstaðfestum fullyrðingum. Lóa Pind Aldísardóttir. 11.6.2009 12:44
Engin mataraðstoð veitt í júlí Lokað verður vegna sumarfría bæði hjá Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálpinni í júlímánuði og verður engin mataraðstoð veitt á þeim tíma. Hjálparstarf kirkjunnar lokar í hálfan mánuð yfir rólegasta tímann í sumar. 11.6.2009 12:37
Hraðaskynjurum skipt út í öllum vélum Air France Skipta á út öllum hraðaskynjurum í airbusvélum Air France. Er þetta gert í varúðarskyni en ekki er útilokað að bilaðir hraðaskynjarar hafi orskað það að vél félagsins fórst yfir Atlantshafi í síðustu viku. 11.6.2009 12:23
Treystir á stjórnarþingmenn Icesave samkomulagið var til umræðu í fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun. Illugi Gunnarsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, spurði Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, hvort hún hefði gengið úr skugga um það áður en samningamenn settu stafi sína á samkomulagið, að nægjanlegur þingmeirihluti væri fyrir málinu og þá sérstaklega í þingflokki Vinstri grænna. En þar hafa fjórir þingmenn lýst efasemdum sínum um málið og þrír greiddu atkvæði gegn samkomulaginu í þingflokknum. 11.6.2009 12:14
Krefjast úrbóta á Vesturlandsvegi Íbúasamtökin á Kjalarnesi ætla að grípa til aðgerða við Vesturlandsveg seinni partinn á morgun. Um táknræn mótmæli verður að ræða en íbúar eru orðnir langrþeyttir á aðgerðarleysi á Vesturlandsvegi. Tveir litlir drengir urðu næstum undir flutningabíl þar í síðustu viku og var það dropinn sem fyllti mælinn. Marta Guðjónsdóttir formaður hverfaráðs Kjalarness hefur boðað til íbúafundar annað kvöld og vill að samgöngunefnd Alþingis láti sjá sig. 11.6.2009 12:06
Blikur á lofti í ferðaþjónustu - óþolandi seinagangur Samtök ferðaþjónustunnar hafa miklar áhyggjur af markaðsmálum og skipulagi þeirra í ferðaþjónustu en „óþolandi seinagangur“ er á stofnun Íslandsstofu sem taka á við markaðsstarfi greinarinnar, að fram kemur í ályktun Samtaka ferðaþjónustunnar. 11.6.2009 11:51
DV dæmt til þess að greiða skaðabætur Fyrrverandi blaðamaður DV, Trausti Hafsteinsson, var dæmdur til þess að greiða Áslaugu Herdísi Brynjarsdóttur sjö hundruð þúsund krónur fyrir frétt sem hann skrifaði í DV í ágúst árið 2007. Dómur í málinu féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 11.6.2009 11:49
Ómar Stefánsson: Ég er búinn að taka ákvörðun „Ég er búinn að taka ákvörðun um það sem mér finnst," segir Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins en hann mun hitta fulltrúaráð flokksins í kvöld og ræða við þá um þá stöðu sem er kominn vegna skýrslu Deloiette vegna viðskipta Kópavogsbæjar við fyrirtæki dóttur Gunnars Birgissonar. 11.6.2009 11:08
ÖBÍ mótmælir lágtekjusköttum Aðalstjórn Öryrkjabandalags Íslands lýsir þungum áhyggjum yfir bágri stöðu öryrkja og ellilífeyrisþega sem þurfa að treysta á hið opinbera til að geta framfleytt sér og sínum. Fatlað fólk og eldri borgarar nutu ekki hins svokallaða góðæris þar sem uppbygging velferðarkerfisins var ekki í samræmi við velmegun í samfélaginu. Staða fyrrgreindra hópa er mjög þung vegna aukins kostnaðar á nauðsynjum, eins og mat, lyfjum, lækniskostnaði og húsnæði. Mjög margir geta ekki látið enda ná saman. 11.6.2009 10:54
Tekur undir með Evu Joly og segir Valtý vanhæfan Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, tekur undir gagnrýni Evu Joly, fyrrverandi rannsóknardómara í Frakklandi, varðandi rannsókn yfirvalda á bankahruninu og að Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari, sé vanhæfur í starfi. 11.6.2009 10:53
„Ríkisstjórnin er stórhættuleg“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, tókst á í upphafi þingfundar í dag. 11.6.2009 10:37
Rauði krossinn vill ekki senda flóttmenn til Grikklands Rauði kross Íslands harmar þá niðurstöðu sem fram kemur í skýrslu dómsmálaráðuneytisins að hælisleitendur verði aftur sendir til Grikklands á grundvelli Dyflinnar reglugerðarinnar. 11.6.2009 09:54
Einkaflugeldasýning Evu Joly Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari segir það af og frá að hann ætli að biðjast lausnar en Eva Joly sagði í gær að hann ætti að víkja úr embætti. Eva sagði Valtý vanhæfan í starfi þar sem sonur hans sé einn af lykilstjórnendum í einu af þeim félögum sem verið sé að rannsaka. 11.6.2009 09:33
Eldur í flugstjórnarklefa Airbus-þotu Þotu af gerðinni Airbus A330, sem er sama gerð og þota Air France sem fórst í Atlantshafi, var lent í Guam í morgun eftir að eldur kom upp í flugstjórnarklefanum. 11.6.2009 08:28
Nýútskrifaðir Bandaríkjamenn leita í opinber störf Nýútskrifað háskólafólk í Bandaríkjunum leitar nú fyrst og fremst að störfum hjá hinu opinbera, ólíkt því sem áður var. 11.6.2009 08:17
Ók inn í hús á stolnum bíl Ferðalag 16 ára gamals bílþjófs í danska bænum Givskud endaði inni í húsi eftir að hann missti stjórn á bílnum á miklum hraða. 11.6.2009 08:15
Neyðarfundur hjá WHO vegna flensunnar Boðað hefur verið til neyðarfundar hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni WHO í dag en hávær orðrómur er uppi um að heimsfaraldri vegna Inflúensu A, eða svínaflensunnar, verði lýst yfir. 11.6.2009 08:10
Ítalir og Frakkar standa sig ekki í Afríkuaðstoð Ítalir og Frakkar hafa ekki staðið sig í stykkinu við að aðstoða fátæk Afríkuríki þrátt fyrir yfirlýsingar þar að lútandi á ráðstefnu árið 2005. 11.6.2009 07:33
Eldri Bandaríkjamenn streyma á vinnumarkað Eldri Bandaríkjamenn, sem geta ekki lifað af lífeyrisgreiðslum sínum, leita sér nú að vinnu sem óðast og hefur fjöldi eldri borgara, sem leita eftir vinnu, aukist um 120 prósent síðasta árið. 11.6.2009 07:13
Fyrstu líkin komin til Brasilíu Fyrstu líkin úr Air France-flugslysinu komu til herstöðvar brasilíska flughersins í Recife í gær. Þaðan voru þau flutt til réttarrannsóknarstöðvar þar sem vinna hefst við að bera kennsl á þau. 11.6.2009 07:04
Samherjar Gunnars vilja að hann hætti Framtíð meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í Kópavogi veltur á því hvort Gunnar Birgisson fæst til að hætta sem bæjarstjóri. Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, tjáði Gunnari þetta á fundi þeirra í gærmorgun, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. 11.6.2009 06:00
Borgin tekur húsið ekki aftur Borgarfulltrúi VG segir Ólaf F. borubrattan að tala um Fríkirkjuveg 11. 11.6.2009 06:00
Mál og menning undirbýr brottför Starfsfólk bókabúðar Máls og menningar á Laugavegi 18 býr sig nú undir að yfirgefa húsnæðið sem verslunin hefur verið í síðan 1961. Að óbreyttu hættir verslunin þar í ágúst. 11.6.2009 00:01