Innlent

Samherjar Gunnars vilja að hann hætti

Fallvaltur Gunnar Birgisson hefur legið undir ámæli eftir að viðskipti bæjarins við dóttur hans komust í umræðuna.Fréttablaðið / hari
Fallvaltur Gunnar Birgisson hefur legið undir ámæli eftir að viðskipti bæjarins við dóttur hans komust í umræðuna.Fréttablaðið / hari

Framtíð meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í Kópavogi veltur á því hvort Gunnar Birgisson fæst til að hætta sem bæjarstjóri. Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, tjáði Gunnari þetta á fundi þeirra í gærmorgun, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Heimildir herma að framsóknarmenn í Kópavogi séu tilbúnir til að sættast á þá niðurstöðu að Gunnar standi upp úr bæjarstjórastólnum fyrir annan fulltrúa Sjálfstæðisflokksins en sitji þó áfram sem bæjarfulltrúi.

Gunnar hefur hins vegar þvertekið fyrir að það sé möguleiki og því eru miklar líkur á að upp úr samstarfinu slitni. Í samtali við Fréttablaðið í gærkvöldi vildi Gunnar ekki gefa út neinar yfirlýsingar en sagðist opinn fyrir því að setja á fót viðræðuhóp um málið milli stjórnarflokkanna.

Heimildir Fréttablaðsins herma að aðrir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins séu alls ekki ánægðir með tugmilljónaviðskipti bæjarins við dóttur Gunnars frekar en aðrir bæjarfulltrúar. Niðurstöðurnar í skýrslu Deloitte frá því á þriðjudag skipti þar ekki höfuðmáli, enda þyki hún hroðvirknislega unnin. Það sé einfaldlega ekki siðferðislega rétt að dóttir bæjarstjórans vinni í svo ríkum mæli fyrir bæinn.

Samherjar Gunnars í bæjarstjórnarflokknum telja rétt að hann víki til að halda lífi í meirihlutanum, samkvæmt heimildum blaðsins. Hann sé hins vegar kjörinn fulltrúi og verði ekki vikið úr bæjarstjórn gegn vilja sínum. Auk þess hangi meirihlutinn á einum manni, sem þýðir að Gunnar getur látið af stuðningi við hann ef ákveðið verður að reka hann úr starfi bæjarstjóra. Boltinn sé því alfarið hjá Gunnari sjálfum.

Einn bæjarfulltrúa flokksins orðaði það þannig í samtali við blaðið að það væri djöfullegt ef Gunnar myndi taka sína persónu fram yfir flokkinn.

Fyrirhugað er að fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins fundi eftir helgi. Heimildarmaður blaðsins úr Sjálfstæðisflokknum segir að Gunnar hafi komið sínu fólki vel fyrir í fulltrúaráðinu og eigi vísan stuðning þar.

Fulltrúaráð Framsóknarflokksins í bænum mun hittast á fundi í dag. „Við munum mæla fyrir því að Sjálfstæðisflokknum verði gefið ráðrúm til að leggja fram lausn, sem við munum síðan taka afstöðu til,“ segir Gestur Valgarðsson, formaður framsóknarfélagsins í bænum. Engin tímamörk verði gefin fyrir það andrými en ljóst sé að lausn málsins þolir ekki langa bið.stigur@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×