Erlent

Ók inn í hús á stolnum bíl

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Ferðalag 16 ára gamals bílþjófs í danska bænum Givskud endaði inni í húsi eftir að hann missti stjórn á bílnum á miklum hraða. Hann ók yfir blómabeð og rakleiðis inn í húsið þar sem eldur kom upp í bílnum. Piltinum tókst að komast út af eigin rammleik og engan af íbúum hússins sakaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×