Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Æðsti yfirmaður heraflans í Írak segir af sér Æðsti yfirmaður bandaríska hersins í Írak og Afganistan, arðmírállinn William Fallon, hefur sagt af sér. 12.3.2008 06:57
Barak Obama vann auðveldan sigur í Mississippi Barak Obama vann auðveldann sigur í forkosningnum í Mississippi. Hann hlaut rúm 60% atkvæða en Hillary Clinton hlaut 37%. 12.3.2008 06:55
Reiknað er með afsögn ríkisstjórans í New York í dag Reiknað er með að ríkisstjórinn í New York muni segja af sér í dag. Forystumaður Repúblikana á ríkisþinginu hefur gefið ríkisstjóranum 48 stunda frest til að segja af sér annars muni þingið svipta hann embættinu. 12.3.2008 06:51
Dópmál gegn Jóhannesi í Kompás fellt niður Mál sem lögreglan höfðaði gegn Jóhannesi Kr. Kristjánssyni ritstjóra fréttaskýringarþáttarins Kompás hefur verið fellt niður. Málið tengist fíkniefnum sem Jóhannes keypti en skilaði inn til lögreglu. 11.3.2008 20:31
Sagður hætta vegna ágreinings um Íran Yfirmaður herja Bandaríkjanna í Miðausturlöndum, þar á meðal Írak og Afganistan, William Fallon aðmíráll, lét í dag af embætti fyrr en áætlað var. 11.3.2008 23:49
Hraðakstur í Hafnarfirði Tuttugu og níu ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Suðurbraut í Hafnarfirði í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. 11.3.2008 23:25
UVG: Heimagreiðslur leysa engan vanda Ung vinstri græn í Reykjavík harma ákvörðun meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur um að hefja heimgreiðslur til foreldra barna á biðlista eftir leikskólaplássi. 11.3.2008 21:08
Ofbauð verðið á stúdentshúfum Nýstúdentum ofbauð verðið á stúdentahúfunum þegar þeir útskrifuðust og hafa því hafið innflutning á húfum frá Kína. 11.3.2008 19:10
Rukkað í fjögur ár í viðbót fyrir ferð í göngin Svo gæti farið að vegfarendur um Hvalfjarðargögnin þurfi að borga veggjald fjórum árum lengur en til stóð til þess að fjármagna ný göng. 11.3.2008 19:04
Spasský spurði um laust pláss við hlið Fischers Skákmeistarinn Boris Spasský spurði hvort laust pláss væri við hlið Bobby Fischers í kirkjugarðinum að Laugardælum um leið og hann lagði blómsveig að leiði hans í dag. 11.3.2008 18:40
Ekki hægt að útskrifa sjúklinga af Kleppi Ekki er hægt að útskrifa um fimmtíu manns af endurhæfingardeild Landspítalans að Kleppi vegna skorts á félagslegum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Sumir hafa beðið árum saman. 11.3.2008 18:20
Áttatíu og tvö umferðaróhöpp um helgina Sextán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um síðustu helgi. Tveir voru stöðvaðir á föstudag, fimm á laugardag, átta á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. 11.3.2008 18:12
Samkynhneigðum Írana neitað um hæli Samkynhneigður Írani sem segir að hann verði tekinn af lífi ef honum verði vísað frá Hollandi hefur verið neitað um hæli þar. Mehdi Kazemi hefur sagt að líf hans sé í hættu ef hann verði sendur aftur til Íran þar sem hann segir að yfirvöld hafi tekið kærasta hans af lífi vegna samkynhneigðar. Kærastinn gaf yfirvöldum upp nafn Kazemi áður en hann var líflátinn. 11.3.2008 17:24
Vonast eftir góðu samstarfi um uppbyggingu á stjórnarráðsreit Uppbygging á stjórnarráðsreitnum er mjög mikilvæg fyrir Reykjavíkurborg, að sögn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, formanns skipulagsráðs. Fréttablaðið greindi frá því í gær að tillaga að breytingu á stjórnarráðsreitnum hafi verið til meðferðar síðan árið 2004. 11.3.2008 17:17
Skipuð forstöðumaður Verðlagsstofu skiptaverðs Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur skipað Guðrúnu Arndísi Jónsdóttur forstöðumann Verðlagsstofu skiptaverðs frá 1. apríl 2008 til næstu fimm ára. 11.3.2008 17:01
Ríkisstjóra New York gefinn úrslitakostur Eliot Spitzer, ríkisstjóra New York, hefur verið gefinn lokafrestur af andstæðingum sínum til að segja af sér embætti. Að öðrum kosti verði hann kærður vegna ásakana um að hann hafi nýtt sér þjónustu vændiskonu. Helsti andstæðingur hans úr hópi repúblíkana í New York gaf honum tvo sólarhringa til að segja af sér. 11.3.2008 17:00
Aðstæður tjarnarfugla óviðunandi Engar stokkendur, gargendur, duggendur eða skúfendur notuðu friðlandið í Vatnsmýri til varps á síðasta ári samkvæmt ársskýrslu tveggja fuglafræðinga um fuglalíf tjarnarinnar. Þeir segja aðstæður tjarnarfugla óviðunandi. 11.3.2008 16:43
Kílóverðið á urriða hátt í Þistilfirði Aðalbjörg Sigfúsdóttir, systir Steingríms J. Sigfússonar alþingismanns, var í síðustu viku dæmd fyrir brot gegn lögum um lax- og silungsveiði. 11.3.2008 16:22
Ágúst neitar að tjá sig um kæru - Nemendur ósáttir Ágúst Einarsson vildi ekkert tjá sig um gagnrýni sem fram hefur komið á vinnubrögð hans þegar hann rak þrjá nemendur úr skólanum um daginn. "Nemendunum var vísað úr skóla. Ég hef engu við það að bæta," sagði Ágúst þegar hann var spurður um málið. 11.3.2008 16:18
Hafa þungar áhyggjur af niðurskurði fjárveitinga til lögreglu Rannsóknarlögreglumenn sem vinna að fíkniefnamálum á Suðurnesjum lýsa þungum áhyggjum af niðurskurði fjárveitinga til embættisins á Suðurnesjum. 11.3.2008 16:14
Ákall til almennings Foreldrar Kristins Veigars Sigurðssonar, sem keyrt var á í Reykjanesbæ í nóvember síðastliðnum, óska eftir upplýsingum og aðstoð frá almenningi um slysið. Þau leituðu til Kompáss og ákváðu að segja erfiða sögu sína. Þau vilja vita hver keyrði á Kristinn Veigar með þeim afleiðingum að hann lést. 11.3.2008 16:13
Kæra rektor og háskólaráð Tveir af þremur nemendum sem vikið var úr Háskólanum á Bifröst um mánaðarmótin eftir að vopnaðir lögreglumenn gerðu húsleit í íbúðum þeirra ætla að kæra Ágúst Einarsson rektor til siðanefndar háskólans. Þá ætla þeir líka að kæra staðfestingu háskólaráðs á brottvísun þeirra úr skólanum. 11.3.2008 16:00
300 slasaðir eftir 200 bíla árekstur Þrír létust í fjöldaárekstri 200 bíla á þjóðvegi á milli Dubai og Abu Dhabi í dag. Þrír til viðbótar létust í kjölfarið. Samkvæmt upplýsingum lögreglu eru sex manns alvarlega slasaðir og 39 illa slasaðir en stöðugir. Að minnsta kosti 255 hlutu minni háttar meiðsli. 11.3.2008 16:00
Félagar í VR blessa samning við SA Kjarasamningur VR og Samtaka atvinnulífsins var samþykktur með miklum meirihluta atkvæða en atkvæðagreiðslu lauk á hádegi í dag. 11.3.2008 15:42
Arabísk kona notar YouTube í kvennabaráttu Sádi-Arabísk kona hefur sett myndband af sjálfri sér undir stýri á YouTube til að þrýsta á þarlend yfirvöld að auka réttindi kvenna og leyfa þeim að keyra bíl. Wajeha Al-Huwaider er með ökuskírteini, en hún má einungis keyra á afskekktum svæðum í Sádí-Arabíu. Hún segir að hömlurnar lami helming þjóðarinnar og vill að yfirvöld leyfi konum að keyra í borgum. 11.3.2008 15:34
Neysla Íslendinga eykst enn Velta í dagvöruverslun jókst um 18% í febrúar síðastliðnum miðað við sama mánuð árið áður, ef miðað er við breytilegt verðlag. 11.3.2008 15:27
Mál samkynhneigða Íranans til Evrópuþingsins Michael Cashman þingmaður Evrópuþingsins í Strassborg mun taka fyrir mál samkynhneigðs írana sem á von á dauðadómi í Íran verði honum vísað úr landi í Bretlandi. Mehdi Kazemi er 19 ára og er nú í haldi í Hollandi þar sem hann berst gegn því að vera snúið aftur til Bretlands. 11.3.2008 14:55
Flugræningi vill kaupa Múhameðsteikningu Westergaards Bandarískur karlmaður, sem situr í fangelsi fyrir flugrán, vill kaupa fræga mynd danska teiknarans Kurts Westergaards af Múhameð spámanni. 11.3.2008 14:32
Hugsa um hvort fiskur sem borðaður er sé í útrýmingarhættu Íslensk stjórnvöld hafa töluverðar áhyggjur af tilraunum umhverfissinna til þess reyna að fá fólk til þess að hætta að kaupa fisk sem þeir segja sjálfir að sé í útrýmingarhættu. 11.3.2008 14:15
Húsleit hjá evrópskum flugfélögum vegna gruns um samráð Starfsmenn á vegum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins gerðu í dag húsleit á skrifstofum hjá nokkrum evrópskum flugfélögum vegna gruns um verðsamráð á tilteknum leiðum. 11.3.2008 14:13
Móðir sökuð um vanrækslu eftir morð dótturinnar Móðir breskrar unglingsstúlku sem var nauðgað og myrt í Goa á Indlandi segist ekki hafa yfirgefið dóttur sína, en hún er nú sökuð um vanrækslu. Scarlett Keeling var 15 ára þegar hún fannst látin á Anjuna ströndinni að morgni 18. febrúar. 11.3.2008 13:58
Ráðinn framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs hefur ákveðið að ráða Þórð H. Ólafsson í starf framkvæmdastjóra þjóðgarðsins. 11.3.2008 13:50
Áhugi Norðmanna á Evrópusambandsaðild dvínar Þótt umræðan um Evrópusambandið og þrýstingur á aðild að því aukist á Íslandi virðast Norðmenn vera að fjarlægast umræðuna, 11.3.2008 13:46
Kynferðisglæpamenn í sænskum skólum Svíar eru slegnir yfir fréttum af því að ekki færri en 75 dæmdir barnaníðingar hafi fengið vinnu í sænskum skólum og dagheimilum frá árinu 2003. 11.3.2008 13:45
Komst ekki í eigið megrunarpartý Mexíkanskur maður sem eitt sinn vóg hálft tonn missti af eigin megrunarpartýi eftir vegaóhapp. Manuel Uribe var talinn þyngsti maður heims og mældist ein 560 kíló. Í fimm ár var hann ófær um að komast úr rúminu sínu, en tókst að missa 200 kíló á tveimur árum í próteinríkum megrunarkúr. Hann er nú 360 kíló. 11.3.2008 13:37
Sprengja grandar 16 í írak Að minnsta kosti 16 farþegar rútu létust þegar sprengja sprakk á vegi í suðurhluta Íraks í dag. Auk hinna látnu slösuðust 22 í árásinni. Farþegarútan var á Basra-Nasiriya veginum um 80 kílómetra suður af Nasiriya þegar sprengjan sprakk. 11.3.2008 13:13
Evrópuþingið styður Breta vegna flóða Evrópuþingið samþykkti á fundi sínum í dag að styrkja breska stjórnvöld um 162 milljónir evra, jafnvirði rúmlega 17 milljarða króna, vegna flóða sem riðu yfir England síðastliðið sumar. 11.3.2008 13:04
Forkosningar í Missisippi í dag Forkosningar Demókrata verða haldnar í Missisippi í Bandaríkjunum í dag. Barack Obama og Hillary Clinton halda áfram baráttu sinni fyrir útnefningu flokksins. Skoðanakannanir sýna að Obama hafi forskot í ríkinu þar sem meirihluti kjósenda er svartur. 11.3.2008 12:59
Reyndu að smygla 1,5 tonnum af kókaíni frá Perú Lögregluyfirvöld í Perú komu í veg fyrir að einu og hálfu tonni af kókaíni yrði smyglað úr landi þegar hún réðst nýverið til atlögu við hóp fíkniefnasmyglara í landinu. 11.3.2008 12:51
Endeavour í 16 daga leiðgangur út í geim Geimskutlunni Endeavour var skotið á loft frá Kennedy-geimstöðinni á Canaveral-höfða í nótt. 11.3.2008 12:36
Bylting í tryggingarmálum launþega með nýjum samningum Bylting varð í tryggingamálum launþega með nýgerðum kjarasamningum að mati Sigurðar Bessasona, formanns Eflingar. Hann segir að þar með hafi loks verið gengið frá máli sem verið hafi verkalýðshreyfingunni til skammar. 11.3.2008 12:22
Slapp með naumindum úr íbúðinni Rúmlega tvítugri erlendri konu tókst með naumindum að sleppa út úr íbúð í vesturborginni aðfararnótt sunnudags þar sem fimm erlendir karlmenn eru grunaðir um að hafa nauðgað henni. 11.3.2008 12:00
Mannskæðar sprengjuárásir í Lahore Tuttugu og tveir hið minnsta eru látnir og hundrað eru særðir eftir tvær sprengingar í borginni Lahore í austurhluta Pakistans í dag 11.3.2008 11:50
Segir ferðaþjónustuna hafa sloppið ágætlega frá hvalveiðum Það er alveg ljóst að helstu viðskiptalönd Íslendinga eru mjög mikið á móti hvalveiðum, að sögn Ernu Hauksdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. 11.3.2008 11:32
Þjóðarmorð gegn Króatíu-Serbum fyrir dóm Mál gegn þremur fyrrverandi hershöfðingjum í Króatíu er hafið fyrir stríðsglæpadómsstóli Sameinuðu þjóðanna. Mennirnir eru sakaðir um þjóðarmorð og ofsóknir gegn Króatíuserbum á tíunda áratugnum. 11.3.2008 11:30