Aðstæður tjarnarfugla óviðunandi 11. mars 2008 16:43 Skýrsluhöfundar segja aðstæður tjarnafugla óviðunandi. MYND/Vilhelm
Engar stokkendur, gargendur, duggendur eða skúfendur notuðu friðlandið í Vatnsmýri til varps á síðasta ári samkvæmt ársskýrslu tveggja fuglafræðinga um fuglalíf tjarnarinnar. Þeir segja aðstæður tjarnarfugla óviðunandi.Fram kemur á vef Reykjavíkurborgar að Ólafur K. Niels og Jóhann Óli Hilmarsson hafi tekið út fuglalífið við Tjörnina í fyrra og kveður í skýrslu þeirra við nokkuð dimman tón. Fram kemur að grágæsin sé algengasti varpfuglinn í friðlandinu en 19 hreiður á þeirra vegum fundust.Hins vegar notuðu engar stokkendur, gargendur, duggendur eða skúfendur friðlandið til varps árið 2007. Þetta er óvænt niðurstaða að mati skýrsluhöfunda og veldur þeim áhyggjum því áður var töluvert andavarp á þessu svæði. Skýrsluhöfundar nefna afrán sem mögulega skýringu en kettir sækja stíft inn á friðlandið. Önnur möguleg skýring að mati höfunda er að gengið hefur verið á varplönd í næsta nágrenni friðlandsins með húsbyggingum, gerð bílastæða og veglagningum.Þá kemur fram í skýrslunni að fjórar tegundur anda hafi reynt varp við Tjörnina 2007: stokkönd, duggönd, skúfönd og æður. Eitt gargandapar var á svæðinu um vorið en ekki er vitað hvort kollan gerði tilraun til varps en talið er að gargöndin sé að hverfa úr fánu Tjarnarinnar. Þessar fimm tegundir hafa verið árvissir varpfuglar við Tjörnina í áratugi. Urtönd og toppönd dvöldu langdvölum á svæðinu 2007 en urpu ekki.Skýrsluhöfundar ráðleggja borgaryfirvöldum að ráða umsjónarmann, andapabba eða -mömmu, með Tjarnarfuglunum. Verksvið hans vor og sumar yrði að sinna þörfum fuglanna, líkt og undirbúa hólmana og friðlandið fyrir varp, verja varplöndin fyrir vargi, fóðra og verja andarunga og telja og vakta fuglanna. Hlutverkið að vetri til yrði að tryggja að vetursetufuglar hefðu nóg æti. Höfundar telja einnig að friðland Vatnsmýrannar þjóni í raun helst grágæsinni sem varpland.Skýrsla fuglafræðinganna var kynnt í umhverfis- og samgönguráði í dag.
Mest lesið Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Erlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Innlent Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Innlent Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Erlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Innlent Fleiri fréttir Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Sjá meira