Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Aftur boðað til mótmælafundar í Nairobi Reiknað er með að þúsundir stuðningsmanna Odinga reyni aftur að efna til mótmælafundar í Nairobi í Kenía í dag. 4.1.2008 07:45
Snarræði lögreglu bjargaði konu frá drukknun Lögreglumönnum tókst með snarræði að bjarga ungri konu úr Reykjavíkurhöfn á sjötta tímanum í morgun, eftir að hún féll eða kastaði sér í sjóinn af Ægisgarði, þar sem Hvalbátarnir liggja við festar. 4.1.2008 07:34
Obama og Huckabee sigruðu í Iowa Það eru þeir Barak Obama og Mike Huckabee sem standa uppi sem sigurvegarar eftir forkosninguna í Iowa sem lauk í nótt 4.1.2008 06:41
Fornar hellamyndir í bráðri hættu Varðveisla fornminja er síður en svo auðvelt eða einfalt starf. Framvinda tímans hefur sín áhrif og dauðir hlutir eldast rétt eins og við. Þessa sorglegu staðreynd hafa fornleifafræðingar í Frakklandi nú fengið að reyna þar sem sveppagróður ógnar tilvist fornra hellamynda. Ógnina verður að telja sérlega svekkjandi í ljósi þess að hún er að líkindum til komin vegna loftræstikerfis sem sett var upp í hellinum einmitt til þess að vernda myndirnar. 4.1.2008 00:01
Mikið að gera hjá slökkviliðinu Töluverður erill hefur verið hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í dag og í kvöld og má rekja flest útköllin til þess að unglingar hafi verið að fikta við flugelda. Kveikt hefur verið í ruslagámum og flugeldar verið tendraðir innandyra án þess þó að mikið tjón hafi hlotist af. Þar á meðal var kveikt í gámi við Toyota umboðið í Kópavogi og einnig kom eldur upp í stigagangi í blokk í Stóragerði. 3.1.2008 23:28
Samgönguráðherra: Sundabrautin tvímælalaust mikilvægust Kristján L Möller samgönguráðherra segir ekki rétt að Vaðlaheiðargöng séu framar í forgangsröð en Sundabrautin eins og haft var eftir honum í Fréttablaðinu í dag. Þessi tvö verkefni hafa ekki áhrif hvert á annað og því sé ekki hægt að forgangsraða öðru umfram hitt. Í raun séu bæði verkin, auk tvöföldunar Suðurlandsvegar, forgangsmál. Þetta kom fram í þættinum Ísland í dag. 3.1.2008 21:58
Árásin á Hannes með öllu tilefnislaus Hannes Þ. Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu og leikmaður Viking í Stafangri, hefur kært mennina sem veittust að honum í miðbæ Reykjavíkur um hátíðirnar. Árásin mun hafa verið með öllu tilefnislaus. Hannes var einn á ferð í bænum þegar nokkrir menn veittust að honum að tilefnislausu og börðu hann með þeim afleiðingum að hann er þríbrotinn í andliti. Lögreglan er nú með málið til rannsóknar og herma heimildir Vísis að vitað sé hverjir voru að verki. 3.1.2008 20:10
Björgvin G. mótfallinn virkjunum í Þjórsá Viðskiptaráðherra vill að virkjunum í Þjórsá verði slegið á frest eða út af borðinu. Þar með hafa tveir ráðherrar Samfylkingar lýst sig andsnúna Þjórsárvirkjunum. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra kveðst ekki geta fellt neina dóma yfir þessum virkjunum fyrr en málið kemur inn á hans borð. 3.1.2008 18:39
Konur í verkfræðingastétt senda Össuri opið bréf Stjórn Kvennanefndar Verkfræðingafélags Íslands hefur sent Össuri Skarphéðinssyni, iðnaðarráðherra opið bréf þar sem harmað er að gengið hafi verið fram hjá Ragnheiði I. Þórarinsdóttur, aðstoðarorkumálastjóra við skipan í stöðu orkumálastjóra. 3.1.2008 19:08
Gripnir með e-töflur í Smáralind Þrír karlar á þrítugsaldri voru handteknir í Smáralind í gærkvöld með e-töflur í fórum sínum. Ýmislegt fleira höfðu þremenningarnir meðferðis sem grunur leikur á að sé þýfi. Þá fannst tölva í bíl mannanna og voru þeir margsaga um það hvernig hún hefði fengist. 3.1.2008 18:16
Íslendingur í Kenía segir engan óhultan „Lögreglan í Kenía skýtur almenna borgara af handahófi og enginn er óhultur," segir Þórunn Helgadóttir, sem rekur barnaheimili ABC barnahjálpar í Naíróbí í Kenía. Þórunn ferðaðist frá Tansaníu í gær til Naíróbi í Kenía með 500 kg af mat fyrir barnaheimilið. 3.1.2008 17:13
Þrír erlendir í gæsluvarðhaldi eftir tilraunir til dópsmygls Alls eru þrír erlendir ríkisborgarar í gæsluvarðhaldi eftir að lögreglan á Suðurnesjum kom upp um tilraunir þeirra til að smygla inn fíkniefnum til landsins í gegn um Leifsstöð í desembermánuði. 3.1.2008 16:52
Ragna fékk styrk úr minningarsjóði Gunnars Thoroddsen Dagur B. Eggetsson borgarstjóri afhenti Rögnu Ingólfsdóttur badmintonkonu styrk úr minningarsjóði Gunnars Thoroddsen fyrrverandi borgarstjóra og forsætisráðherra. 3.1.2008 16:18
Passið ykkur útlendingar Háttsettur flokksbróðir Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, varaði innflytjendur í dag við því að þeir verði að laga sig að þýsku þjóðfélagi eða taka afleiðingunum. 3.1.2008 16:14
Ólafur Ragnar taldi að forseti ætti einungis að sitja í þrjú kjörtímabil Þegar Ólafur Ragnar Grímsson bauð sig fyrst fram til forseta taldi hann það hæfilegt að forseti gegndi embætti í tvö til þrjú kjörtímabil. Sextán ár væru of langur tími fyrir forseta, en bæði Ásgeir Ásgeirsson og Vigdís Finnbogadóttir gegndu embætti svo lengi. Þetta kom fram í máli Ólafs Ragnars á hverfafundi sem haldinn var í Súlnasal Hótel Sögu miðvikudaginn 11. Júní 1996 og Morgunblaðið vitnaði í daginn eftir. 3.1.2008 16:08
Berlínarbúar brjóta reykingarbann Reykingarbann tók gildi í Berlín þann 1.janúar. Bannið nær til skemmtistaða og svipar til þess sem hefur verið í gildi hér á landi síðan 1.júní. 3.1.2008 15:48
Aldagömlum útgáfum af Snorra-Eddu, Njálu og Völuspá stolið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar fágætra bóka sem stolið var úr einkasafni í Reykjavík á síðari hluta ársins 2006 og fyrri hluta síðasta árs. 3.1.2008 15:47
Keyrði fram af flugbraut Karlmaður á þrítugsaldri var heppinn að sleppa með lítil meiðsl þegar hann ók bíl sínum tíu metra fram af flugbrautinni í Vestmannaeyjum í nótt. 3.1.2008 15:13
Apar borga fyrir kynlíf Ný rannsókn á villtum öpum í Indónesíu hefur leitt í ljós að karlapar borga fyrir kynlíf. 3.1.2008 15:11
Ástþór aftur í forsetann Ástþór Magnússon ætlar að bjóða sig fram til forseta Íslands á þessu ári. Þetta staðfesti fyrrum kosningastjóri Ástþórs í samtali við Vísi. 3.1.2008 15:01
Búist við blóðbaði á Sri Lanka Hernaðarsérfræðingar telja að yfirvofandi sé mesta blóðbað á Sri Lanka síðan Tamíl tígrar hófu uppreisn sína árið 1983. 3.1.2008 14:46
Styttist í fyrsta dómsmál Þorsteins Fyrsta dómsmál hins umdeilda héraðsdómara, Þorsteins Davíðssonar, verður tekið fyrir þann 17. janúar næstkomandi. Þá mun Þorsteinn hlusta á rökstuðning og skoða máls og sönnunargöng í máli Harðar Snorrasonar gegn Eyjafjarðarsveit í Héraðsdómi Norðurlands eystri. 3.1.2008 14:29
Fer fram á endurtalningu kjörseðla í Kenía Ríkissaksóknari Kenía, Amos Wako, hefur farið fram á sjálfstæða rannsókn á niðurstöðum forsetakosninganna sem leiddu í ljós umdeildan sigur sitjandi forseta Mwai Kibaki. Wako sagði á þarlendri sjónvarpsstöð í dag að nákvæm talning á gildum kosningaseðlum ætti að eiga sér stað án tafar. 3.1.2008 14:13
Sjö ára með sígarettur Tyrkir eru með mestu reykingaþjóðum í heimi og þeim líst því illa á frumvarp til laga um að banna reykingar á opinberum stöðum. 3.1.2008 14:01
Segir enga ósamstöðu í röðum Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, vekur á því athygli á vef Hafnarfjarðarbæjar að Haraldur Þór Ólason, oddviti Sjálfstæðismanna í bænum hafi gengið fram hjá tveimur varabæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins þegar hann boðaði forföll á bæjarstjórnarfundi skömmu fyrir jól. 3.1.2008 13:35
Ekki fara til Kenía Í kjölfar kosninga sem fram fóru í Kenía 27. desember síðastliðinn hefur borið á mótmælum og átökum í landinu. Utanríkisráðuneytið ráðleggur Íslendingum frá ferðalögum til Kenía. 3.1.2008 13:16
Obama með forskot á Edwards - Clinton að dragast aftur úr Barack Obama hefur fjögurra prósentustiga forskot á John Edwards fyrir forkosningar demókrata í Iowa í Bandaríkjunum í kvöld samkvæmt skoðanakönnun Reuters og fleiri aðila sem birt var í dag. 3.1.2008 13:06
Vankaður af lyfjum undir stýri Lögreglan í Árnessýslu tók tvo ökumenn ur umferði í nótt þar sem þeir höfðu neytt fíkniefna eða lyfja, annan í Hveragerði og hinn á Selfossi. 3.1.2008 13:00
Krókódíllinn rotaður Tveir breskir tannlæknar hafa unnið mál gegn tískurisanum Lacoste. Tannlæknarnir notuðu mynd af krókódíl til þess að auglýsa tannlæknastofu sína. 3.1.2008 12:57
Axel á leið til Litháens til fullnaðarviðgerðar Flutningaskipið Axel, sem strandaði út af Höfn í Hornafirði í desember síðastliðnum en komst til Akureyrar, hélt þaðan að lokinni bráðabirgðaviðgerð í gær. 3.1.2008 12:45
Enn beðið eftir rökstuðningi Árna Árni M. Mathiesen, settur dómsmálaráðherra sem skipaði Þorstein Davíðsson Oddssonar í embætti héraðsdómara, hefur enn ekki sett saman rökstuðning fyrir þeirri ákvörðun. 3.1.2008 12:40
Íslendingar telja sig búa við mikið atvinnuöryggi Íslendingar eru í hópi þeirra þjóða sem telja sig búa við mest atvinnuöryggi samkvæmt könnun sem Gallup International gerði síðla síðasta árs. 3.1.2008 12:35
Tilboð vegna lokafrágangs Grímseyjarferju opnuð á morgun Greint verður frá því síðdegis á morgun hvaða skipasmíðastöð sér um lokafrágang á Grímseyjarferjunni. 3.1.2008 12:15
Brýnt að byggja við flugstöðina á Akureyri Met voru slegin í farþegaflugi innanlands á árinu 2007. Brýnt er að byggja við flugstöðina á Akureyri, segir stöðvarstjóri, enda mörg dæmi um að farþegar lendi á hrakhólum. 3.1.2008 12:05
Stjórnarandstæðingar í Kenía fresta mótmælafundi Stjórnarandstæðingar í Kenía hafa frestað fyrirhuguðum mótmælafundi sem halda átti í dag í höfuðborginni Naíróbí en hafa boðað til annars fundar á þriðjudag. 3.1.2008 11:59
Fleiri handtökur á landamærum Danmerkur Dönsk yfirvöld stöðvuðu 886 ólöglega innflytjendur á landamærum ríkisins á síðasta ári. 3.1.2008 11:29
Varað við hreindýrum í þoku fyrir austan Vegagerðin varar ökumenn á Austurlandi við ferðum hreindýra vegna spár um mikla þoku. Þá er enn varað við þoka á Hellisheiði og í Þrengslum. 3.1.2008 11:28
Gerviaugu og börn gleymast á hótelherbergjum Krukka með ösku, gerviauga og lítið barn eru meðal þess sem gleymdist á hótelum Travelodge keðjunnar á síðasta ári. Ýmis happatákn, borgarstjórahálsmen og kettlingur voru einnig meðal þess sem fannst á herbergjum síðustu 12 mánuði. 3.1.2008 11:24
Starfsmönnum umhverfisráðuneytis fjölgar um nærri 200 Starfsmönnum á vegum umhverfisráðuneytisins fjölgar um tæplega 200 með breytingum sem urðu á stjórnarráði Íslands og flutningi stofnana undir ráðuneytið. 3.1.2008 11:18
Söguðu hraðamyndavél niður Tveir austurrískir unglingar hafa verið sektaðir um rúmlega níu milljónir íslenskra króna fyrir að höggva niður og grafa hraðamyndavél sem náði þeim á of miklum hraða. 3.1.2008 11:05
Flutningabíll með tengivagni valt í Hrútafirði Stór flutningabíll með tengivagni valt út af þjóðveginum í Hrútafirði í gærkvöldi og varð að loka veginum um tíma. 3.1.2008 10:47
Yfirmaður stofnunar braut reykingabann Þegar Antonio Nunes fékk sér vindil í nýárspartý í Portúgal, virðist hann ekki hafa áttað sig á því að hann var að brjóta gegn lögum sem stofnun á hans vegum á að framfylgja. 3.1.2008 10:31
Eldgosið í Chile færist í aukana Hundruðir íbúa og ferðamenn hafa flúið frá landsvæðum í kringum eldfjallið Liama í Chile en eldgos hófst þar í vikunni. 3.1.2008 10:29
Nærri 950 þúsund um Keflavíkurflugvöll í fyrra Farþegum sem fóru um Keflavíkurflugvöll á síðasta ári fjölgaði um níu prósent á milli ára samkvæmt tölum sem birtast í Hagvísum Hagstofu Íslands. 3.1.2008 10:26
Tveggja prósenta samdráttur í nýskráningu bíla í fyrra Tölur Hagstofunnar sýna að tveggja prósenta samdráttur varð á nýskráningum bíla í fyrra miðað við árið 2006. Alls voru rúmlega 23.100 bílar nýskráðir hér á landi í fyrra. 3.1.2008 10:21