Ólafur Ragnar taldi að forseti ætti einungis að sitja í þrjú kjörtímabil 3. janúar 2008 16:08 Ólafur Ragnar Grímsson hefur áhuga á að sitja áfram í embætti forseta Íslands.
Þegar Ólafur Ragnar Grímsson bauð sig fyrst fram til forseta taldi hann það hæfilegt að forseti gegndi embætti í tvö til þrjú kjörtímabil. Sextán ár væru of langur tími fyrir forseta, en bæði Ásgeir Ásgeirsson og Vigdís Finnbogadóttir gegndu embætti svo lengi. Þetta kom fram í máli Ólafs Ragnars á hverfafundi sem haldinn var í Súlnasal Hótel Sögu miðvikudaginn 11. Júní 1996 og Morgunblaðið vitnaði í daginn eftir. Þann 1. ágúst næstkomandi hefst nýtt kjörtímabil forseta Íslands. Þá hefur Ólafur Ragnar gegnt embættinu í þrjú kjörtímabil en í nýársávarpi sínu síðastliðinn þriðjudag sagðist hann vera fús til þess að gegna áfram embætti forseta Íslands, ef það yrði vilji Íslendinga. Vísir reyndi að ná tali af Ólafi Ragnari til að spyrja hann að því hvað orsakaði þessa viðhorfsbreytingu til æskilegrar tímalengdar í embætti. Ekki náðist í forsetann, en Örnólfur Thorsson, forsetaritari sagði að langur biðtími væri eftir viðtali við forsetann og því gæti þess verið langt að bíða að blaðamaður Vísis fengi svar við spurningunni. Á hverfafundinum á Hótel Sögu sagði Ólafur Ragnar þó að ekki mætti gleyma því að þjóðin hefði stutt Vigdísi til svo langrar embættissetu og eflaust lengur hefði vilji hennar staðið til þess. Segja má að hið sama gildi um Ólaf Ragnar því að skoðanakönnun Fréttablaðsins, sem gerð var fáeinum vikum fyrir jól, sýndi að Ólafur Ragnar nýtur stuðnings um 65% þjóðarinnar í embætti forseta.
Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Fleiri fréttir MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Sjá meira