Innlent

Aldagömlum útgáfum af Snorra-Eddu, Njálu og Völuspá stolið

MYND/GVA

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar fágætra bóka sem stolið var úr einkasafni í Reykjavík á síðari hluta ársins 2006 og fyrri hluta síðasta árs.

Meðal verka sem lögregla leitar eru útgáfur af Snorra-Eddu og Völuspá frá 17. öld, Konungasögur Snorra Sturlusonar frá árinu 1633 og ýmsar útgáfur af Njálu frá 19. öld. Enn fremur er leitað að merkum ferðabókum og landfræðiritum eftir bæði íslenska og erlenda höfunda. Þá var gömlum Íslandskortum var stolið úr sama safni og er þeirra einnig leitað.

Á vef lögreglunnar má nálgast lista yfir bækurnar sem stolið var. Lögreglan biður þá sem kunna að hafa upplýsingar um bækurnar og kortin að hafa samband í síma 444-1000.

Um er að ræða bækur úr dánarbúi Böðvars Kvaran. Bækrunar sem stolið var skipta tugum og kærðu aðstandendur þjófnaðinn til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu síðla sumars eftir því sem fram kom í Fréttablaðinu í síðasta mánuði.

Að sögn Ómars Smára Ármannssonar, yfirmanns auðgunarbrotadeildar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, er listinn yfir bækurnar birtur nú til þess að vekja athygli á málinu ef fólk skyldi hafa einhverjar bókanna undir höndum. Talið er hugsanlegt að einhverjar bókanna hafi komist í umferð á markaði bókasafnara.

Aðspurður hvort talið sé að einhverjir ættingja Böðvars, sem höfðu aðgang safninu, hafi tekið þaðan bækur segir Ómar Smári að það sé alveg eins líklegt. Lögregla hafi rætt við þá en hann gefur ekki upp hver svör þeirra hafi verið. Aðspurður segir Ómar Smári enn fremur að búið sé að finna nokkrar bókanna sem stolið var úr safninu en á listunum sem lögregla birtir séu þær bækur sem saknað er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×