Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stórbruni í hjarta borgarinnar Allt tiltækt slökkvilið berst nú við eld sem kom upp í húsi á horni Lækjargötu og Austurstrætis þar sem Kebab-húsið og veitingahúsið Prvavda eru meðal annars til húsa. Tilkynnt var um eldinn rétt fyrir klukkan tvö og segir slökkviliðið að eldur sé í þaki og steypu og um mikið verk virðist að ræða. 18.4.2007 14:15
160 fórust í bílsprengjuárásum Bílsprengjur urðu að minnsta kosti 160 manns að fjörtjóni í Bagdad, í dag. Hver sprengjan af annarri sprakk nokkrum klukkustundum eftir að Nuiri al-Maliki, forsætisráðherra, lýsti því yfir að íraskar öryggissveitir muni taka við gæslu í öllu landinu um næstu áramót. 18.4.2007 14:14
Slökkvilið kallað að Pravda vegna elds Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur verið kvatt að veitingastaðnum Pravda í Lækjargötu í miðbæ Reykjavíkur en þar var tilkynnt um eld fyrir stundu. Ekki liggur fyrir hversu mikill hann er þar sem slökkvilið var að koma á staðinn en lið var kallað út frá öllum stöðvum. 18.4.2007 14:01
Fyrirhuguð olíuhreinsistöð þverbrýtur alþjóðlegar skuldbindingar Fyrirhuguð olíuhreinsistöð á Vestfjörðum mun þverbrjóta alþjóðlegar skuldbingar íslenskra stjórnvalda varðandi takmörkun á útstreymi gróðurhúsaloftegunda. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Náttúruverndarsamtökum Íslands. Samtökin segja árleg losun koltvísýrings vegna stöðvarinnar muni nema milljón tonnum á ári og auka útstreymi um 30 prósent hér á landi. Þau gagnrýna ráðamenn fyrir þekkingarleysi. 18.4.2007 13:55
Reykingamenn mótmæla reykingabanni í Danmörku Reykingamenn alls staðar að úr Danmörku söfnuðust saman fyrir framan danska þinghúsið í Kaupmannahöfn í dag með sígarettu og bjórglas í hendi til þess að mótmæla fyrirhuguðum lögum um bann við reykingum á veitingahúsum í landinu. 18.4.2007 13:36
Barnabókaverðlaun menntasviðs afhent í dag Barnabókaverðlaun menntasviðs Reykjavíkurborgar verða afhent formlega klukkan 16 í dag. Afhending fer fram í Höfða og er þetta í 35. skiptið sem verðlaunin eru afhent. 18.4.2007 13:33
Dýrt að kúga konur Misrétti gagnvart konum kostar Asíu- og Kyrrahafsþjóðir um 80 milljarða dollara á ári, að mati Sameinuðu þjóðanna. Þetta fé tapast með því að takmarka aðgang kvenna að heilbrigðisþjónustu, skólum og atvinnutækifærum. Ef til dæmis indverskar konur kæmust út á vinnumarkaðinn í sama mæli og þær bandarísku, myndi það auka þjóðarframleiðsluna um meira en eitt prósent, eða 19 milljarða dollara. 18.4.2007 13:30
Kasparov settur í fjölmiðlabann Fréttamenn við eina stærstu einkareknu útvarpsstöð Rússlands, sögðu í dag að þeim hafi verið skipað að hleypa ekki stjórnarandstæðingum í þætti sína og fréttir. Skipanirnar koma frá nýjum stjórnendum stöðvarinnar sem voru fengnir frá ríkisrekinni sjónvarpsstöð. Nær allir ljósvakamiðlar Rússland hafa lent undir stjórn húsbændanna í Kreml, síðan Vladimir Putin varð forseti fyrir sjö árum. 18.4.2007 13:28
Hlýtur ein æðstu vísindaverðlaun Rússlands Þorsteinn Ingi Sigfússon, prófessor við Háskóla Íslands, verða veitt Alheimsverðlaunin Global Energy International Prize fyrir rannsóknir sínar í orkumálum. Þetta var tilkynnt í dag. Verðlaunin eru ein æðsta viðurkenning rússneska lýðveldisins fyrir vísindarannsóknir. 18.4.2007 13:17
Festust í kolanámu Björgunarmenn reyndu í gær við erfiðar aðstæður að ná til rúmlega þrjátíu námuverkamanna sem fastir voru í kolanámu nærri bænum Henan í Kína. Fjörutíu og tveir námuverkamenn voru í göngum námunnar þegar sprenging varð þar inni. 18.4.2007 13:00
Akureyrarlistinn býður ekki fram í vor Búið er að blása af fyrirhugaðan Akureyrarlista fyrir þingkosningarnar í vor. Talsmaður listans segir að öfgafull umræða eigi þátt í þessari ákvörðun. 18.4.2007 12:45
Yfir helmingur veitingahúsa lækkaði ekki verð 1. mars Meira en helmingur veitingahúsa og sjötíu prósent mötuneyta lækkuðu ekki verð hjá sér eftir 1. mars þegar virðisaukaskattur á matvæli lækkaði. Þetta kemur fram í skýrslu Neytendastofu. Um 400 ábendingar bárust frá almenningi til stofunnar. 18.4.2007 12:28
Meinað inngöngu í stjórnlagadómstól Úkraínu Þúsundir andstæðinga Viktors Janúkovits, forsætisráðherra Úkraínu, slógu í morgun skjaldborg um stjórnlagadómstól landsins og komu í veg fyrir að nokkur kæmist inn í húsið. 18.4.2007 12:21
Þyrfti 15 sinnum stærra landsvæði en birgðastöð í Örfirisey Olíuhreinsistöðin sem fyrirtækið Íslenskur hátækniiðnaður áformar að reisa á Vestfjörðum yrði jafnstór og stærsta olíuhreinsistöð í Noregi. Hún þyrfti fimmtán sinnum stærra landsvæði en olíubirgðastöðin í Örfirisey. 18.4.2007 12:16
Snjór á Akureyri á síðasta vetrardegi Norðlendingar vöknuðu upp við nokkurra sentímetra jafnfallinn snjó í morgun eftir óvenju milda tíð undanfarið. Þótti sumum það skjóta skökku við þar sem sumardagurinn fyrsti er á morgun. 18.4.2007 12:15
Dæmdur fyrir að aka undir áhrifum fjölmargra fíkniefna Karlmaður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands til að greiða 180 króna sekt í ríkissjóð fyrir meðal annars brot gegn fíkniefna- og umferðarlögum. Maðurinn keyrði undir áhrifum fjölmargra fíkniefna frá Ölfusborgum í átt að Reykjavík en endaði úti í hrauni á Hellisheiðinni. 18.4.2007 12:03
Hægt að gera við Muuga en ekki hér á landi Allar líkur eru á því að það sé hægt að koma Wilson Muuga í lag aftur. Ekki er til slippur hér á landi sem er nógu stór til þess og því þarf að draga skipið til Suður-Evrópu. Skipið náðist á flot í gær en þá höfðu tíu til tólf menn unnið nótt sem nýtan dag í sautján daga við að koma því í sjóhæft ástand. 18.4.2007 11:56
Ný könnun um fylgi flokka í SV-kjördæmi á Stöð 2 í kvöld Fjórði kosningafundur Stöðvar 2 hefst skömmu fyrir klukkan sjö í kvöld þegar oddvitar stjórnmálaflokkanna í Suðvesturkjördæmi leiða saman hesta sína í Lækjarskóla í Hafnarfirði. 18.4.2007 11:46
Boðið á leiklestur hjá LA fyrir eina krónu Leikfélag Akureyrar fagnar á morgun 90 ára afmæli sínu og af því tilefni munu leikarar leiklesa Æfintýri á gönguför í Samkomuhúsinu í kvöld klukkan 20. Miðaverð á leiklesturinn í kvöld verður það sama og árið 1907, ein króna. 18.4.2007 11:37
Sigtúnshúsið loks klárað Það er kominn tími til að klára Sigtúnshúsið við Suðurlandsbraut en rösk þrjátíu ár eru liðin frá því bygging þess hófst. Stórvirkar vinnuvélar fara nú mikinn við þetta sögufræga hús sem löngum hýsti einn vinsælasta skemmtistað landsmanna, kenndan við Sigtún. 18.4.2007 11:22
Stjórnarformaður H&M í felum vegna hótana Einn ríkasti maður Svíþjóðar og stjórnarformaður fataframleiðandans Hennes & Mauritz, Stefan Persson, býr nú við lögregluvernd á leynilegum stað í Stokkhólmi eftir að hann fékk líflátshótanir. 18.4.2007 11:13
BNA bjóða Rússum að skoða eldflaugastæði Bandaríkjamenn eru reiðubúnir að leyfa Rússum að skoða eldflaugavarnastöð sem þeir ætla að setja upp í Póllandi, til þess að sannfæra Rússa um að hún ógni ekki hagsmunum þeirra. Bandaríkjamenn vilja setja upp tíu eldflaugar í Póllandi og ratsjárstöð í Tékklandi fyrir árið 2012. 18.4.2007 11:03
Forseti S-Kóreu harmar morðin Forseti Suður-Kóreu hefur lýst harmi yfir fjöldamorðunum sem brottfluttur landi hans framdi í Bandaríkjunum. Kóreskir embættismenn héldu í gær neyðarfundi um málið, þar sem þeir óttast hefndaraðgerðir gegn þeim mikla fjölda Kóreumanna sem búa í Bandaríkjunum. 18.4.2007 10:42
Dæmdur fyrir að stinga mann í handlegginn Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag karlmann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa stungið mann í handlegginn með hnífi. Atvikið átti sér stað í heimahúsi í Vestmannaeyjum þar sem nokkrir menn sátu að sumbli. 18.4.2007 10:41
Ætlaði að stytta sér leið yfir götu en endaði í fangelsi Ölvaður karlmaður sem ætlaði að stytta sér leið með því að klifra yfir götugrindverk á Snorrabraut í nótt endaði í fangelsi. Maðurinn slasaðist við klifrið og var seinna fluttur á slysadeild Landspítalans í Fossvogi en hann kvartaði undan verkjum í brjósti. 18.4.2007 10:26
Kennari varaði margsinnis við morðingjanum Fyrrverandi kennari við Virginía Tech háskólann segir að hún hafi margsinnis varað skólayfirvöld við Cho Seung-Hui, sem myrti 32 nemendur og kennara við skólann. Hún vakti fyrst athygli á honum árið 2005, en segir að aðvaranir hennar hafi ekki verið teknar alvarlega. Bekkjarbróðir morðingjans segir að skrif hans hafi verið eins og "eitthvað upp úr martröð." 18.4.2007 10:16
Opið í Bláfjöllum í dag Skíðasvæðið í Bláfjöllum verður opið í dag, síðasta vetradag, en veður er nú mjög gott í fjöllunum og færð góð. Í Kóngsgili verða tvær lyftur opnar og þá verður kaðallyfta við Bláfjallaskála einnig opin. 18.4.2007 10:07
Reisugildi vegna nýs Háskólatorgs HÍ Starfsmenn og stúdentar Háskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands fagna í reisugildi í dag byggingu nýs Háskólatorgs við Háskóla Íslands. Um er að ræða tíu þúsund fermetra þjónustu- og kennslubyggingu á háskólalóðinni sem hafist var handa við fyrir réttu ári og verður vígð í lok þessa árs, á fullveldisdaginn 1. desember. 18.4.2007 10:06
Aflaverðmæti jókst um tvo milljarða í janúar Aflaverðmæti íslenskra skipa jókst um 2,1 milljarða króna í janúar í ár miðað við sama mánuði í fyrra samkvæmt tölum sem birtar eru á vef Hagstofu Íslands. Alls nam aflinn í janúar 5,7 milljörðum króna en var 3,6 milljarðar í janúar 2006. 18.4.2007 09:40
Atvinnuleysi tvö prósent á fyrsta ársfjórðungi Atvinnuleysi á fyrsta ársfjórðungi þessa árs var tvö prósent og voru að meðaltali 3.500 manns án vinnu og í atvinnuleit á tímabilinu. Þetta leiða tölur Hagstofunnar í ljós. 18.4.2007 09:27
Landsmönnum fjölgar sem aldrei fyrr Fólksfjölgun á Íslandi í fyrra var með því mesta sem mælst hefur á síðustu fimmtíu árum. Þetta kemur fram samantekt Hagstofunnar um fólksfjöldaþróun og erlenda ríkisborgara frá 1996 til 2006. Fjölgunin er öðru fremur rakin til mikils aðstreymis fólks frá útlöndum. 18.4.2007 09:20
Fjórir slasaðir eftir jeppaslys í Húnavatnssýslu Fjórir farþegar jeppabifreiðar slösuðust á þjóðveginum í Fremstagili í Langadal í Húnavatnssýslu á sjöunda tímanum í morgun, þar af einn talsvert mikið. Enginn þeirra er þó talinn í lífshættu eins og er, að sögn lögreglunnar á Blönduósi. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á slysstað og verið er að ákveða hvert farið verður með hina slösuðu. Reiknað er með að þyrlan fari með tvo þeirra til Reykjavíkur. Þrír farþeganna voru útlendingar, einn Íslendingur. 18.4.2007 09:06
Gengur vel að draga Wilson Muuga til hafnar Vel gengur að draga flutningaskipið Wilson Muuga til hafnar og er von á skipinu til Hafnarfjarðarhafnar um klukkan ellefu í kvöld. Dráttarbáturinn Magni hefur verið með skipið í togi allt frá því það var dregið á flot um sex leytið í kvöld. 17.4.2007 22:02
Óttast hefndaraðgerðir í kjölfar fjöldamorðanna Suður Kóreskir stúdentar í Bandaríkjunum óttast að verða fyrir hefndarárásum í kjölfar fjöldamorðanna í Virginia Tech háskólanum í Blacksburg í Virginíufylki í gær. Stúdentar frá Suður Kóreu skipa stærsta hóp erlendra námsmanna í Bandaríkjunum og hafa Suður Kóresk stjórnvöld lýst yfir áhyggjum vegna málsins. 17.4.2007 20:54
Hagkvæmniathugun vegna álvers á Bakka haldið áfram Iðnaðarráðuneytið, Norðurþing og Alcoa hafa komið sér saman um að halda áfram hagkvæmniathugun vegna álvers á Bakka við Húsavík. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Alcoa og Norðurþingi. 17.4.2007 20:23
Útlendingar áhugasamir um orkumál Íslendinga Áhugi umheimsins á orkumálum Íslendinga er orðinn slíkur að það er nánast í hverri viku sem einhverjir erlendir fréttamiðlar og sjónvarpsstöðvar koma til landsins til að kynnast því sem hér er að gerast 17.4.2007 20:16
Knútur tekur tennur Hvítabjarnarhúnninn Knútur skemmti gestum í dýragarðinum í Berlín í dag en í gær fékk hann að hvíla sig af því að hann var með tannverki. Að sögn dýrahirða í garðinum bar litli anginn sig þá aumlega þar sem hann er að taka tennur en nokkrar verkjatöflur hafa hins vegar slegið á óþægindin. 17.4.2007 20:15
Sego saxar á Sarko Segolene Royal, frambjóðandi sósíalista í frönsku forsetakosningunum, hefur sótt mjög í sig veðrið undanfarna daga og mælist nú með nánast jafn mikið fylgi og helsti keppinautur sinn, Nicolas Sarkozy. Fyrri umferð kosninganna fer fram á sunnudaginn. 17.4.2007 19:45
Allir flokkar vilja lengja fæðingarorlofið Allir stjórnmálaflokkar landsins vilja lengja fæðingarorlofið, flestir í tólf mánuði. Enginn stærstu flokkanna vill þó lofa lengingu strax á næsta kjörtímabili. Sjálfstæðisflokkurinn vill einn flokka skoða stöðu Íbúðalánasjóðs. 17.4.2007 19:26
Andúð á ríkum ungmennum sögð ástæðan Andúð á auðugum ungmennum er sögð rót fjöldamorðanna óhugnanlegu í Blacksburg í Virginíu í gær. 23 ára gamall suðurkóreskur maður stráfelldi þá 32 samnemendur sína og starfsmenn við aðalháskóla borgarinnar. Íslensk kona sem stundar nám við skólann segir mikinn samhug hafa ríkt á meðal nemenda skólans í dag. 17.4.2007 19:01
Ákvörðun um flugvöll ekki tímabær Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri segir skýrslu flugvallarnefndar sýna að þjóðhagslega hagkvæmast sé að byggja nýjan flugvöll á Hólmsheiði. Hann telur þó of snemmt að ákveða hvort Reykjavíkurflugvöllur fari úr Vatnsmýri. 17.4.2007 18:54
Olíuhreinsistöð í tillögu Vestfjarðanefndar Uppbygging olíuhreinsistöðvar á Vestfjörðum er meðal hugmynda sem kynntar eru í skýrslu nefndar forsætisráðherra um leiðir til að styrkja atvinnulíf í fjórðungnum. Geir H. Haarde segir þó ekki tímabært að taka afstöðu til verkefnisins. 17.4.2007 18:50
Stórefla þurfi atvinnuþátttöku eldri borgara og öryrkja Fjöldi Íslendinga yfir áttræðu á eftir að fimmfaldast fram til ársins 2050, úr 9 þúsundum í 45 þúsund og meðalævi fólks lengist um 7 ár. Aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að stórefla þurfi atvinnuþátttöku eldri borgara og örkulífeyrisþega á næstu árum vegna hækkandi aldurs. 17.4.2007 18:23
Skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnabrot og vörslu ólöglegs skotvopns Karlmaður á fertugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir brot á fíkniefnalögum og fyrir vörslu ólöglegs skotvopns. Þá var manninum gert að greiða tæpar 300 þúsund krónur í málsvarnar- og sakarkostnað. 17.4.2007 17:45
Bush talar á minningarathöfn Bush Bandaríkjaforseti verður viðstaddur minningarathöfn sem haldin verður í kvöld vegna skorárása í Háskólanum Virginia Tech í Bandaríkjunum í dag. Að sögn Dagmar Kristínar Hannesdóttur nemanda við skólann er löng röð farinn að myndast fyrir utan. 17.4.2007 17:14