Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ætla að kolefnisjafna ríkisbifreiðar og flugferðir Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að kolefnisjafna allar bifreiðar stjórarráðsins og sömuleiðis flugferðir ríkisstarfsmanna bæði innanlands og utan frá og með næstu áramótum. 17.4.2007 15:58
Rússar fá nýjan kjarnorkukafbát Rússar hafa sjósett sinn fyrsta nýja kafbát frá falli Sovétríkjanna. Hann er sagður margfallt öflugri en þeir kafbátar sem fyrir eru í rússneska flotanum. Báturinn ber hið kuldalega nafn Borei, sem þýðir heimskautavindur. Hann verður búinn langdrægum kjarnorkueldflaugum sem er hægt að skjóta hvort sem er ofan sjávar eða neðan. 17.4.2007 15:44
Garðar Cortes syngur fyrir West Ham gegn Chelsea Eggert Magnússon hefur fengið Garðar Thór Cortes óperusöngvara til að mæta á Upton Park og hefja upp raust sína annað kvöld. Garðar ætlar að syngja kjark í liðsmenn West Ham fyrir mikilvægan leik þeirra í fallbaráttunni gegn Chelsea. 17.4.2007 15:40
Allir flokkar fallast á flugvöll á Hólmsheiði Allir flokkar í borgarstjórn lýstu því yfir á borgarstjórnarfundi í dag að þeir gætu fallist á flugvöll á Hólmsheiði en rætt var um framtíð flugvallarins í Vatnsmýrinni út frá skýrslu sem unnin hefur verið um málið. 17.4.2007 15:39
Björg til bjargar Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Björg frá Rifi, er nú að sækja bát sem er með bilaðan gír um 24 sjómílur vestnorðvestur af Rifi. 17.4.2007 15:22
Þrettán sinnum hættulegra að fljúga til Rússlands Rússland er sá staður á jörðinni sem er hve hættulegast að fljúga til. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Alþjóðlega flugeftirlitsins fyrir árið 2006. Rússland og önnur lönd innan fyrrverandi lýðveldis Sovétríkjanna voru með þrettán sinnum fleiri flugslys en meðaltal var í heiminum í heild. 17.4.2007 15:20
Íslendingur við áfallahjálp í Blacksburg Íslensk kona, Dagmar Kristín Hannesdóttir, hefur boðið fram aðstoð sína í áfallahjálp við Virginia Tech háskólann í Blacksburg ásamt nokkrum samnemendum sínum vegna skotárásanna í bænum í gær. 17.4.2007 15:06
Ásta og Jakob Frímann í Suður- og Suðvesturkjördæmum Ásta Þorleifsdóttir, jarðfræðingur úr Reykjavík, og Jakob Frímann Magnússon, tónlistarmaður úr Mosfellsbæ leiða lista Íslandshreyfingarinnar í Suður- og Suðvesturkjördæmi í þingkosningum í vor. 17.4.2007 15:03
Kynna skýrslu vegna atvinnumála á Vestfjörðum Boðað hefur verið til fundar í Stjórnarráðinu klukkan 15.30 í dag þar sem forsætisráðherra og iðnaðarráðherra munu kynna nýja skýrslu nefndar um leiðir til að styrkja atvinnulíf á Vestfjörðum. 17.4.2007 14:57
Trylltust eftir að meintur morðingi var sýknaður Stólar flugu og dómsverðir beittu piparúða og kylfum eftir að danskur karlmaður af líbönsku bergi brotinn var í dag sýknaður í Vestri landsrétti í Árósum af ákæru um að hafa myrt Tyrkja í júlí í fyrra. 17.4.2007 14:35
Þungamiðja búsetu færist um 44 metra á milli ára Þungamiðja búsetu á höfuðborgarsvæðinu er nú í bakgarði við Goðaland 5 í Fossvogi samkvæmt útreikningum framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar. Þyngdarpunkturinn, sem er reiknað meðaltal búsetu allra íbúa á höfuðborgarsvæðinu, hefur frá því mælingar hófust verið í Fossvogshverfi en verið á siglingu austur eftir hverfinu. 17.4.2007 14:06
Átta milljónir þurfa á hjálp að halda Fjöldi þeirra sem þurfa á bráðri hjálp að halda í Írak er átta milljónir, þar á meðal tvær milljónir flóttamanna og tvær milljónir heimilislausra. Þetta kom fram á sérstökum fundi sem haldin var um málefni Írak. 17.4.2007 14:03
Morðinginn í Blacksburg var frá Suður-Kóreu Maðurinn sem skaut 32 manns til bana í Virginia Tech háskólanum í Blacksburg í Virginíu í gær hét Cho Seung-hui og var suðurkóreskur. Hann var 23 ára og var á lokaári í enskunámi við skólann. Lögregluyfirvöld greindu frá þessu á blaðamannafundi í skólanum í dag. 17.4.2007 13:29
Bændablaðið opnar fréttavef Bændablaðið hefur opnað fréttavef á Netinu þar sem fjallað verður um það helsta sem er að gerast í íslenskum og erlendum landbúnaði ásamt því að gera hverskonar landsbyggðarmálefnum góð skil. 17.4.2007 13:23
N-Kóreumenn virðast byrjaðir að loka kjarnorkuveri Svo virðist sem Norður-Kóreumenn séu byrjaðir að loka Yongbyon-kjarnorkuverinu í samræmi við samkomulag sem sexveldin svonefndu gerðu með sér fyrir nokkrum mánuðum. 17.4.2007 13:15
Frambjóðendur innleystu Þjóðargjöfina Frambjóðendur fyrir kosningarnar í vor sem hafa jafnframt gefið út bækur, tóku þátt í því að innleysa Þjóðargjöfina 2007 í Máli og menningu á Laugaveginum í morgun. 17.4.2007 13:00
Beðið eftir niðurstöðum úr sýntaökum úr hval Ekki biti af hvalkjöti hefur selst frá því að veiðar hófust í október í fyrra og eru hátt í hundrað tonn af kjöti nú í frystigeymslum. Beðið er eftir niðurstöðum úr sýnatöku að utan, en án gæðavottunar er ekki hægt að selja kjötið úr landi. 17.4.2007 12:45
Royal sækir á í Frakklandi Ef marka má nýjustu skoðanakannanir hefur Segolene Royal, frambjóðandi sósíalista í frönsku forsetakosningunum, unnið upp forskot Nicolas Sarkozy, frambjóðanda hægri manna. 17.4.2007 12:30
Samgöngumiðstöð byggð óháð því hvort völlurinn verði áfram Sturla Böðvarsson samgönguráðherra segir samgöngumiðstöð á Reykjavíkurflugvelli óháða því hvort flugvöllurinn verði þar um alla framtíð. Hann segir samkomulag milli sín og borgarstjóra um að leita allra leiða til að ná sátt um flugvallarmálið. 17.4.2007 12:15
Hvað kostar landsfundur? Sjálfstæðisflokkurinn býst ekki við að gefa sérstaklega upp kostnað við landsfundinn um helgina. 17.4.2007 12:05
Glæpahringur drepur 17 manns í Mexico Lögreglan í Mexico fann sautján lík sem búið var að fleygja á göturnar eða geyma í bílum þvert yfir Mexico í gær. Fimm manns fundust látin í sendiferðabíl í borginni Kancun. Tveir aðrir fundust í bíl um 100 mílur frá Mexico borg. Á miða sem fannst á vettvangi er Joaquin Guzman, forsprakki glæpahringsins Sinaloa hótað, en hann slapp úr fangelsi árið 2001. 17.4.2007 12:05
Yfirvöld sökuð um að hafa brugðist of hægt við Yfirvöld í Blacksburg í Virginíu liggja nú undir miklu ámæli fyrir að hafa ekki brugðist nægilega hratt við þegar vopnaður maður skaut 32 nemendur og kennara í háskóla í borginni til bana í gær. Upplýst hefur verið að maðurinn var sjálfur nemandi við skólann og af asísku bergi brotinn. 17.4.2007 12:00
N1 siðlaus og ósvífin N4, norðlenskt fjölmiðlafyrirtæki, kannar nú réttarstöðu sína vegna nýs nafns og firmamerkis N1, olíufélagsins Essó. Merkin eru sláandi lík segir stjórnarformaður N4. Hann segir athæfið bæði ósvífið og siðlaust. 17.4.2007 11:59
Opið í Bláfjöllum í dag Opið í dag í Kóngsgili í Bláfjöllum frá kl. 14 til 21. Kóngurinn verður opinn og Lilli klifurmús og við Bláfjallaskála verður kaðallyftan Patti broddgöltur opinn ásamt Hérastubbi. 17.4.2007 11:46
Vélmenni í stöðugri þróun Ný og þróaðri tegund vélmenna sem framkvæma ekki einungis fyrir fram forritaðar aðgerðir heldur bregðast við umhverfi sínu á margvíslegan hátt eins og mannskepnan er að ryðja sér til rúms. 17.4.2007 11:32
Mannræningjar krefjast lausnargjalds Mannræningjar BBC fréttamannsins, Alan Johnston, hafa krafist lausnargjalds upp á fimm milljón Bandaríkja dollara. Í gær biðluðu ættingjar mannsins til mannræningjana um lausn hans, þar sem áður óþekkt samtök Palestínumanna, Fylking einingar guðs og heilags stríðs, sögðust hafa tekið hann af lífi. Krafa um lausnargjaldið hefur því aftur gefið fjölskyldu Johnston von um að hann sé á lífi. Hinum 44 ára gamla Alan Johnston var rænt á Gaza-svæðinu fyrir meira en mánuði síðan. Hann hefur unnið sem fréttamaður í 16 ár, þar af 3 á Gaza- svæðinu. 17.4.2007 11:30
220 kærðir fyrir hraðakstur frá áramótum 220 ökumen hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Akranesi frá áramótum. Segir lögregla þetta ansi háa tölu og sama megi segja um hraða þeirra ökumanna sem teknir eru. 17.4.2007 11:30
Wilson Muuga kominn á flot Wilson Muuga er kominn á flot. Skipið náðist á flot á háflóði núna uppúr klukkan hálf sex. Starfsmenn Nesskipa, eiganda skipsins, hafa unnið sleitulaust undanfarnar vikur að því að styrkja skrokk skipsins svo þetta heppnist. Skipið strandaði í Hvalsnesfjöru við Sandgerði 19. desember. Vísir.is var með beina útsendingu frá tilrauninni. 17.4.2007 11:15
Vildi ekki kyssa lögregluna án fölsku tannanna Lögreglan á Akranesi þurfti í liðinni viku að aðstoða ölvaðan mann sem dottið hafði í götuna. Eftir sem fram kemur í dagbók hennar var maðurinn heldur illa til reika og hafði hlotið skurð á enni. 17.4.2007 11:14
Lokaáfangi vísindaveiða hefst í dag Lokaáfangi vísindaveiða á hrefnu hefst í dag og er stefnt að því að veiða 39 dýr. Eftir því sem fram kemur á vef sjávarútvegsráðuneytisins er þetta liður í hrefnurannsóknum Hafrannsóknastofnunarinnar sem hófust í ágúst 2003. 17.4.2007 11:02
Byssumaðurinn var asískur nemandi í skólanum Forseti skólans hefur staðfest að byssumaðurinn var asískur karlmaður sem var við nám í skólanum. Hann bjó á einni af heimavistum skólans. Blaðið Chicago Sun-Times sagði hann hafa verið kínverskan og að hann hafi ekki verið tengdur hryðjuverkahópum. Vitni í heimavistinni sögðu manninn hafa gengið á milli herbergja í leit að fyrrverandi kærustu sinni. Lögreglan hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir viðbrögð sín við árásinni. 17.4.2007 10:51
James Bond er látinn Fyrsti leikarinn sem lék njósnarann James Bond er látinn, 89 ára gamall. Barry Nelson lék 007 í sjónvarpsútgáfu af Casino Royal árið 1954. Það var átta árum áður en Sean Connery kom til sögunnar í Dr. No. Barry Nelson var á samningi hjá MGM á fjórða og fimmta áratug síðustu aldar. Þá söðlaði hann um og lék mest í á sviði eftir það. 17.4.2007 10:46
Fyrsta Boeing-vél Primera til landsins í dag Fyrsta þotan af fimm sem flugfélagið Primera Air ætlar að kaupa kemur til Íslands í dag og verður frumsýnd á Reykjavíkurflugvelli klukkan tvö. Vélin er af gerðinni Boeing 737-800 og er þriggja ára gömul. Bráðlega koma tvær vélar af sömu gerð til viðbótar, beint frá verksmiðjum Boeing í Bandaríkjunum. 17.4.2007 10:42
Skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnaði Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag 19 ára pilt í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi og til ríflega 30 þúsund króna sektar fyrir þjófnaði og tilraun til þjófnaðar. Þá var jafnaldri piltsins dæmdur til að greiða 100 þúsund krónur í sekt fyrir líkamsárás og vörslu fíkniefna. 17.4.2007 10:42
Þýski liðþjálfinn rekinn með skömm Þýski liðþjálfinn sem skipaði svo fyrir að hermenn í æfingabúðum hjá sér myndu ímynda sér sem svo að þeir væru að skjóta á blökkumenn í Bronx hverfi Bandaríkjanna var rekinn með skömm. Liðþjálfinn lét hermenn ímynda sér að blökkumennirnir hefðu móðgað mömmu þeirra og það eina sem þeir gætu gert væri að skjóta þá. 17.4.2007 10:17
Nakin Moss á milljónir Búist er við tilboðum upp á milljónir króna þegar áður óbirtar ljósmyndir af fyrirsætunni Kate Moss verða seldar á uppboði hjá Christies uppboðshúsinu í lok maí. Meðal þeirra eru tvö nektarportrett. Annað þeirra tók hinn heimsfrægi ljósmyndari Irwin Penn árið 1996. Hitt tók Albert Watson, annar frægur ljósmyndari. 17.4.2007 10:15
Starfsmenn Berlingske snúa aftur til vinnu Starfsmenn á danska dagblaðinu Berlingske Tidende ákváðu í morgun að snúa aftur til vinnu en þeir lögðu niður vinnu í gær til þess að mótmæla sparnað í rekstri blaðsins. 17.4.2007 10:12
Knútur lasinn Hvítabjörnshúninum heimsþekkta Knúti líður ekki sem best þessa dagana og var færður inn frá sýningarsvæði sínu í dýragarðinum Berlín í gær. 17.4.2007 09:48
Fimm öryggisverðir Sameinuðu þjóðanna létust Fimm öryggisverðir Sameinuðu þjóðanna dóu í sprengju sem sprakk á bíl þeirra í Afganistan í dag. Fjórir mannanna voru frá Nepal en einn þeirra var Afgani. Árásinn átti sér stað í borginni Kandahar, en það er talinn vera upphafsstaður Talibana hreyfingarinnar. 17.4.2007 09:42
Hljóti að koma til greina að hækka eftirlaunaaldur Samtök atvinnulífsins telja það brýnt að afnema allar hindranir fyrir atvinnuþátttöku eldri starfsmanna og að það hljóti að koma til greina að hækka eftirlaunaaldur þar sem fólk á aldrinum 65-70 ára búi við mun betri heilsu en áður. 17.4.2007 09:35
Heildarafli dregst saman milli ára Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum marsmánuði, metinn á föstu verði, var nærri níu prósentum minni en í mars í fyrra samkvæmt tölum Hagstofunnar. Alls nam aflinn 161 þúsund tonnum í mars í ár en var rúm 133 þúsun tonn í mars í fyrra. 17.4.2007 09:18
Lungnabaninn beikon Að borða mikið af beikoni eða hvers konar verkuðu kjöti gæti skaðað lungnastarfsemi og aukið líkunar á lungnasjúkdómum. Þetta kom fram í nýrri rannsókn Kólumbíuháskóla sem skýrt var frá í dag. 17.4.2007 09:18
100 lögreglumenn handteknir í Mexíkó Hermenn í Mexíkó handtóku í kvöld fleiri en 100 lögreglumenn í aðgerðum sem miða að því ráða niðurlögum voldugra eiturlyfjahringja og lögreglumanna sem eru á launaskrá hjá þeim. Herinn gerði áhlaup á lögreglustöðvar víðsvegar í norðurhluta Mexíkó og fylkinu Nuevo Leon. Þar hafa margar aftökur, sem tengdar eru valdabaráttu eiturlyfjahringja, átt sér stað á síðastliðnu ári. 16.4.2007 23:09
Héðinn og Jón Viktor í 2.-4. sæti Alþjóðlegu meistararnir Héðinn Steingrímsson (2482) og Jón Viktor Gunnarsson (2406) eru í 2.-4. sæti, með 4,5 vinning, að lokinni 6. umferð Reykjavík International - Minningarmótsins um Þráin Guðmundsson, sem fram fór í kvöld í skákhöllinni Faxafeni. 16.4.2007 22:36
KR Íslandsmeistari KR tryggði sér í kvöld Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta eftir dramatískan 83-81 sigur á Njarðvík í framlengdum fjórða leik liðanna í vesturbænum . KR hafði aldrei forystu í venjulegum leiktíma, en hafði betur frá fyrstu mínútu í framlengingunni og vann því einvígið 3-1. 16.4.2007 22:07