Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Náttúrufræðikennsla á bókstaflegri siglingu Rúmlega þúsund grunnskólabörn fá að sigla um Sundin í vor, veiða skelfisk og fræðast um lífríki hafsins, þökk sé samstarfssamningi sem undirritaður var á Miðbakka Reykjavíkurhafnar í morgun. Samstarfsverkefnið "sjóferð um Sundin" er hluti af náttúrufræðikennslu ellefu og tólf ára barna á höfuðborgarsvæðinu, á Akranesi og í Borgarnesi. 10.5.2006 16:44
Segja nýsköpun undirstöðu norræna velferðarkerfisins Alþjóðlegir fjárfestar líta á Noðrulöndin sem svæði í samkeppni við stór lönd og svæði innan Evrópu, Asíu og Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í grein sem þeir Kjell Storvik framkvæmdastjóra og Bjørn Tiller ráðgjafa hjá Norrænu nýsköpunarmiðstöðini í grein sem birtist hjá norska dagblaðinu Dagens Næringsliv. 10.5.2006 16:30
Klekar hvetja Íraka til sameiningar Um það bil fimmtíu klerkar kúrda, súnnía og sjía hittust til fundar í Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag til að ræða hvernig binda megi enda á átök trúarbrota í landinu. Íraksforseti segir að þau hafi kostað rúmlega þúsund Íraka lífið í aprílmánuði einum. 10.5.2006 16:06
Eldur kviknaði í metanframleiðslu Orkuveitunnar Eldur kviknaði í skúr við metanframleiðslu Orkuveitu Reykjavíkur á sorphaugunum í Álfsnesi í gærkvöldi. Talvert logaði í skúrnum þegar slökkvilið kom á vettvang og höfðu slökkviliðsmenn varann á vegna hugsanlegrar sprengihættu, en slökkvistarf gekk vel. Eldsupptök eru ókunn. Metan, sem þarna er unnið úr sorpinu, er meðal annars notað til að knýja marga af bílum Orkuveitunnar, í stað bensíns. 10.5.2006 15:38
Áttræður fyrrverandi kommúnisti í embætti forseta Ítalska þingið kaus í dag Giorgio Napolitano í embætti forseta landsins. Napolitano er frambjóðandi olívubandalags Romanos Prodis. Þetta var í fjórða sinn sem þingið kaus milli frambjóðenda síðan á mánudag en enginn hafði fengið tilskylinn meirihluta atkvæða sökum þess hve margir þingmenn sátu hjá í fyrstu atkvæðagreiðslunum. Napolitano er áttræður fyrirverandi kommúnisti. Nýr forseti mun veita Prodi umboð til stjórnarmyndunar, en bandalag mið- og vinstir flokka, sem hann fer fyrir vann nauman sigur í ítölsku þingkosningunum í síðasta mánuði. 10.5.2006 15:18
Börn misnotuð af háttsettum aðilum Brögð eru að því að börn í Líberíu séu kynferðislega misnotuð af hjálparsarfsmönnum, friðargæsluliðum, kennurum og ýmsum háttsettum innfæddum karlmönnum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu samtakanna Save the Children eða Barnaheilla Bretlandi sem kynnt var nýverið. 10.5.2006 15:18
Hættir eldsneytisflutningum á Vesturbakka og Gaza-svæðið Ísraelska olíufyrirtækið Dor Energy hefur ákveðið að hætta eldsneytisflutningum á Vesturbakkan og Gaza-svæðið. Fulltrúar fyrirtækisins segja þetta gert vegna skulda Palestínumanna en palestínskir fulltrúar segja þetta auka en á vanda íbúa á þessum svæðum. 10.5.2006 15:14
Fráveitumál í Fjarðarbyggði í ólestri Gert er ráð fyrir að tæpur milljaður renni í að gera við fráveitur í Fjarðarbyggð. Á fréttavefnum austurlandid.is kemur fram að á síðasta fundi bæjarráðs hafi verið kynnt skýrsla og segir í bókun af fundinum að ljóst sé að fráveitumál í Fjarðarbyggð séu í hörmulegu ástandi. 10.5.2006 15:06
Breytingar á velferðarkerfinu í bígerð Þverpólitísk samstaða hefur nú myndast við um að vinna að breytingum, útfærslu og þróun hugmynda um breytingar á íslensku velferðarkerfi í samstarfi við Landsamband eldri borgara, Landsamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalag Íslands. Í vetur störfuðu 56 manns í hópum auk sex sérfræðinga að hugmyndum sem eiga að fela í sér leiðir til bættra kjara öryrkja og eldri borgara, einföldunar á almannatryggingum, eflingu endurhæfingar, einstaklingsmiðaðrar stuðningsþjónustu utan stofnana, notendavænni heilbrigðisþjónustu og aukinnar atvinnuþátttöku. Vænst er til þess að flokkarnir tilnefni einn fulltúa hver á næstunni og segir í fréttatilkynningu að markmiðið sé að innan eins árs líti dagsins ljós heilsteypt aðgerðaráætlun um virkara velferðarríki. 10.5.2006 14:53
Starfsmenn Heilsuverndar óánægðir með flutninginn Starfsmenn Heilsugæslustöðvarinnar við Barónsstíg eru mjög óánægðir með fyrirhugaðan flutning stöðvarinnar í ágúst og segja vinnubrögð ráðamanna ýta undir tortryggni í þeirra garð. Starfsmenn stöðvarinnar funduðu um málið í morgun 10.5.2006 14:43
Golfvöllur í Viðey Gofvöllur í Viðey myndi skila hagnaði að mati nemenda við háskólann á Bifröst. Nemendurnir könnuðu í síðasta misserisverkefni sínu hvort rekstralegur grundvöllur væri fyrir því að koma upp golfvelli á eyjunni. Segjast þeir hafa komist að því að frá árinu 2000 til 2005 hafi golfiðkendum á Íslandi fjölgað um 64% og nú sé svo komið að fæstir golfklúbbar anni eftirspurn. Þeir telja ónýtt útivistarsvæðið í Viðey því kjörið sem vallarsvæðil og segja í skýrslu sinni að vegna sérstöðu vallarsvæðisins megi taka 20% hærra gjald fyrir hringinn en annar staðar. 10.5.2006 13:27
Besta vísindaframlagið á ársþingi dönsku krabbameinssamtakanna Valgarður Sigurðsson doktorsnemi við læknadeild Háskóla Íslands hlaut viðurkenningu fyrir besta vísindaframlagið á ársþingi dönsku krabbameinssamtakanna sem haldið var föstudaginn 5 maí 2006. Verkefnið var unnið á blóðmeinafræðideild Landspítala - háskólasjúkrahúss og hjá Krabbameinsfélagi Íslands. 10.5.2006 11:57
Álftanes ljósleiðaravætt Í dag undirrituðu Alfreð Þorsteinsson, formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, Guðmundur Þóroddsson, forstjóri og Guðmundur G. Gunnarsson, sveitarstjóri, viljayfirlýsingu um að Sveitarfélagið Álftanes verði inni í áætlunum Orkuveitu Reykjavíkur um ljósleiðaravæðingu alls veitusvæðisins. 10.5.2006 11:54
Slæm þekking fyrirtækja á rétti neytanda Þekkingu fyrirtækja á rétti neytanda virðist vera ábótavant. Þetta kemur fram í óformlegri könnun sem Neytendasamtökin gerðu á því hversu vel seljendur þekkja reglur og umkvörtunarfrest. Hringt var í tuttugu fyrirtæki úr hópi bílaumboða og raftækjaverslana. Í ljós kom að öll fyrirtækin gáfu upp rangar upplýsingar um frest til umkvartanna á vörum sem eiga að hafa langan endingartíma. 10.5.2006 11:37
Á að auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs Háskólinn í Reykjavík og Seltjarnarnesbær hafa gert samstarfssamning um rannsóknarmiðstöð um einkaframkvæmd. Markmið rannsóknarmiðstöðvarinnar er ætlað að efla rannsóknir sem geta stutt við samvinnu opinberra stofnanna og einkaaðila með einkaframkvæmd. Með þessu er ætlunin að auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Seltjarnarnes verður með þessum samning aðili að ráðgjafanefnd sem á að verða stefnumarkandi fyrir rannsóknarmiðstöðina. 10.5.2006 10:02
Segja vegina ekki þola aukna umferð Héraðsnefnd Austur-Húnavetninga skorar á samgönguráðherra að beita sér fyrir því að þjóðvegur eitt um hún Húnvatnssýslu verði breikkaður. Nefndin bendir á aukin umferð stórra flutningabíla og öðrum umferðarþunga hafi stóraukið þörf fyrir breiðari og betri vegi. Í ályktun nefndarinnar segir segir að í mörgum tilfellum þoli vegirnir engan veginn þá umferð sem ætlað er að aki um þá og telur nauðsynlegt að stórauka fjárframlög til þessara verkefna við gerð samgönguáætlunar 2007- 2010. 10.5.2006 08:50
Lauk 4800 kílómetra göngu frá Kaliforníu til New York. Bandarískur karlmaður lauk í gær 4800 kílómetra göngu frá Kaliforníu til New York. Gangan hófst 10 apríl árið 2005 og sagði maðurinn, Steve Vaught, ástæðuna fyrir þessum óvenju langa göngutúr vera óánægja með eigin líkama og líðan en hann hafði lengi verið þunglyndur. 10.5.2006 08:15
Fólk hvatt til að skrá neyðarnúmer í farsíma sína Hvernig er hægt að sjá til þess að þeir fyrstu á vettvang slyss viti í hvaða aðstandendur þeir eiga að hringja. Ein leið til þess er að skrá ICE-neyðarnúmer í farsímann. Tölvupóstur gengur nú manna á milli þar sem fólki er bent á að skrá ICE í farsímann sinn fyrir framan númer þess aðstandenda sem það vill að hringt verði í ef það lendir í slysi. 10.5.2006 08:15
Dæmdur í lífstíðarfangelsi Þjóðverjinn Arwin Meiwes var í gær dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa drepið mann sem hann kynntist stuttu áður á netinu og lagt hann sér síðan til munns. Meiwes var reyndar dæmdur fyrir verknaðinn fyrir tveimur árum og þá í átta og hálfs árs fangelsi. 10.5.2006 08:14
Eldur í skúr Eldur kviknaði í skúr við metan framleiðsluver Orkuveitunnar í Reykjavík á sorphaugunum í Álfsnesi í gærkvöldi. Talvert logaði í skúrnum þegar slökkvilið kom á vettvang og höfðu slökkviliðsmenn varann á vegna hugsanlegrar sprengihættu, en slökkvistarf gekk vel. Eldsupptök eru ókunn. Metan, sem þarna er unnið úr sorpinu, en meðal annars notað til að knýja marga bíla Orkuveitunnar, í stað bensíns. 10.5.2006 07:57
semja um frið Samkomulag hefur náðst á milli Hamas og Fatah fylkinganna. Leiðtogi Palestínumanna, Ismail Haniyeh, bað leiðtoga Hamas og Fatah að mæta á sinn fund í Gaza í gær og varði fundurinn í rúma fjóra klukkutíma. 10.5.2006 07:56
Palestínumenn fá hjálp Samkomulag hefur náðst um tímabundnar aðgerðir til að tryggja það að neyðaraðstoð berist til palestínsku sjálfstjórnarsvæðanna 10.5.2006 07:54
Ellefu-Ellefu dýrust Hægt er að fá rösklega tvær einingar af tiltekinni pakkavöru í Krónunni fyrir aðeins eina í Ellefu-Ellefu, samkvæmt nýrri verðkönnun ASÍ á morgunkorni og ýmsum pakkavörum í matvöruverslunum. Í flestum tilvikum var yfir 50 prósenta munur en mesti verðmunur nam 137 prósentum á sömu vöru. Verð var oftast lægst í Bónus, en Krónan fylgir þar fast á eftir. Hæsta verð var hinsvegar í Ellefu - Ellefu. 10.5.2006 07:49
Sjálfstæðisflokkurinn í sókn Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ er í stórsókn, samkvæmt skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir NFS og lætur nærri að tveir af hverjum þremur ætli að kjósa hann. 10.5.2006 07:46
Eftirförin endaði úti í runna Æsilegri eftirför lögreglu eftir innbrotsþjófi lauk undir morgun með því að þjófurinn ók bíl sínum farman á lögreglubíl og var hann og lögreglumaður úr bílnum fluttir á Slysadeild til aðhlynningar. 10.5.2006 07:44
Tilbúnir að koma til móts við Írana Fulltrúar þeirra ríkja sem eiga fast sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna náðu samkomulagi í gærkvöldi um að gera Írönum tilboð um að þeir hljóti ákveðnar hagsbætur fallist þeir á kröfur Sameinuðu þjóðanna í kjarnorkudeilunni. 10.5.2006 07:42
Brosi allan hringinn "Ég brosi auðvitað allan hringinn," sagði Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, þegar kynntar voru niðurstöður könnunar fyrir NFS um fylgi flokkanna sem eru þar í framboði. Tveir af hverjum þremur kjósendum í Reykjanesbæ myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef gengið yrði til kosninga nú. 9.5.2006 21:14
Ósætti vegna hugmynda um breyttan miðbæ Garðabæjar Hugmyndir um breyttan miðbæ Garðabæjar eru slæmar að mati bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins í bænum. Hann vill að samningi við fyrirtækið sem unnið hefur að þeim verði sagt upp. Oddviti meirihlutans segir rétt að gefa þeim vinnufrið. 9.5.2006 22:59
Mikið um ofnæmisvaldandi frjókorn í lofti Mikið er um frjókorn í lofti þessar vikurnar sem veldur ofnæmi hjá ófáum. Mistur sem borist hefur hingað til lands frá Austur-Evrópu eykur á ofnæmið. 9.5.2006 22:53
Ætla að veita Palestínumönnum stuðning Fjórveldin sem standa að baki vegvísinum til friðar í Miðausturlöndum ætla að koma upp alþjóðlegu kerfi svo hægt sé að veita Palestínumönnum fjárhagslegan stuðning. 9.5.2006 22:09
Best búið að mæðrum og börnum í Svíþjóð Svíþjóð er besta land í heimi fyrir mæður og börn þeirra samkvæmt nýrri skýrslu sem samtökin Barnaheill á Íslandi kynntu í dag. Mikill munur er á því hvernig búið er að mæðrum og börnum þeirra í löndum heimsins en Ísland er með hvað lægstu dánartíðni nýbura í heiminum. 9.5.2006 21:06
Spáir áframhaldandi hækkun stýrivaxta Greiningardeild Landsbankans spáir því að Seðlabanki Íslands komi til með að hækka stýrivexti sína um 0,5% á fimmtudaginn í næstu viku. Greiningardeildin telur verulega þörf á hækkuninni þar sem Seðlabankinn sé enn langt frá verðbólgumarkmiðum sínum. 9.5.2006 20:45
Mannætan fékk ævilangt fangelsi Rúmlega fertugur Þjóðverji var í dag dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir að myrða og éta jafnaldra sinn. 9.5.2006 20:00
Tap á rekstri Dagsbrúnar Nær 200 milljóna króna tap var af rekstri Dagsbrúnar eftir skatta fyrstu þrjá mánuði ársins. Á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs var nær 200 milljóna króna hagnaður. 9.5.2006 19:45
Ein flugbraut nægir ekki Ein flugbraut nægir ekki á Reykjavíkurflugvelli, að mati hollenskra ráðgjafa, sem telja að austur-vestur flugbraut verði að vera aðalflugbraut vallarins og liggja að miklu leyti í sjó fram utan núverandi flugvallargirðingar, ef losa eigi umtalsvert svæði í Vatnsmýri til annarra nota. 9.5.2006 19:15
Sjálfstæðismenn fengju 67 prósent atkvæða Sjálfstæðismenn fengju atkvæði tveggja af hverjum þremur kjósendum í Reykjanesbæ ef kosið væri nú. Þetta eru niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir NFS. 9.5.2006 19:15
Samkomulag um álver í mánuðinum Stefnt er að undirritun rammasamkomulags um álver í Helguvík síðar í þessum mánuði og gætu framkvæmdir hafist á næsta ári. Orkuveita Reykjavíkur telur sig geta útvegað næga raforku til að álverið geti tekið til starfa árið 2010. 9.5.2006 19:06
Námaverkamönnunum loks bjargað Tveir ástralskir verkamenn sem setið höfðu fastir í gullnámu í hartnær hálfan mánuð sluppu loks úr prísund sinni í morgun. Þeir voru glorhungraðir þegar þeir komu upp úr námunni en að öðru leyti amaði ekkert að þeim. 9.5.2006 19:00
Framkvæmdir við álver í Helguvík gætu hafist á næsta ári Stefnt er að undirritun rammasamkomulags um álver í Helguvík síðar í þessum mánuði og gætu framkvæmdir hafist á næsta ári. Orkuveita Reykjavíkur telur sig geta útvegað næga raforku til að álverið geti tekið til starfa árið 2010. 9.5.2006 18:56
Vill lyfjainnfluting af hálfu ríkisins lagist lyfjaverð ekki Formaður lyfjagreiðslunefndar telur að ríkið ætti að taka upp innflutning á lyfjum að nýju, fari lyfjaheildsalar og framleiðendur ekki að taka upp breytta stefnu í sambandi við lyfjaverð. 9.5.2006 18:47
Aðeins 30 prósent styðja Verkamannaflokkinn Skiptar skoðanir eru um þá ákvörðun Tonys Blair, forsætisráðherra Bretlands, að greina ekki frá hvenær hann hyggst láta af embætti. Skoðanakannanir benda til að Verkamannaflokkurinn hafi ekki verið óvinsælli síðan 1992. 9.5.2006 18:45
Úthluta peningum hreppsins til íbúa Skilmannahreppur hefur boðið hverju heimili 600 þúsund króna framlag úr búsetusjóði hreppsins til þess að fegra umhverfið. Er þetta gert nú, fyrir sveitarstjórnarkosningar, áður en hreppurinn sameinast þremur öðrum hreppum. 9.5.2006 18:45
Vandi við verðhrun fasteigna Verðlækkun á húsnæði getur haft uggvænleg áhrif á skuldsett heimili og telur Ráðgjafarstöð um fjármál heimilanna að afar margir standi tæpt. Seðlabankinn hefur bent á að þetta sé stærsta áhyggjuefni heimilisfjármála og ekki sé óalgengt að fasteignaverð lækki um fimmtán til tuttugu prósent í kjölfar mikilla hækkana eins og verið hafa undanfarið. Dæmi séu einnig um allt að 50 prósenta verðlækkun. 9.5.2006 18:43
Íbúum boðið frítt í sund Íbúum Reykjanesbæjar er boðið í sund milli 13 og 17 næsta laugardag. Þá verður opnuð ný 50 metra löng innilaug og vatnaveröld í Sundmiðstöðinni við Sunnubraut. Af því tilefni bjóða Reykjanesbær og Fasteign hf öllum íbúum frítt í sund. 9.5.2006 18:00
Búist við að það dragi áfram úr innflutningi Búast má við því að það haldi áfram að draga úr innflutningi á neysluvörum. Verulega dró úr innflutningi á bílum, sjónvörpum og fleiri neysluvörum í aprílmánuði. 9.5.2006 17:54