Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Frjálst flæði vinnuafls hefur aukið hagvöxt í Bretlandi Vinnuafl frá Austur-Evrópu hefur aukið hagvöxt og minnkað verðbólgu í Bretlandi verulega undanfarin ár. Samkvæmt niðurstöðum nýrrar skýrslu eru bein tengsl á milli lægri verðbólgu og meiri hagvaxtar annars vegar og aukins flæðis vinnuafls frá nýju löndum Evrópsambandsins til Bretlands hins vegar. 25.4.2006 09:45
Mótmæli afboðuð í Nepal Andstæðingar Gyanendra konungs í Nepal hafa sagst munu hætta mótmælum gegn honum sem hafa staðið vikum saman eftir að konungurinn lofaði að vinna náið með uppreisnarmönnum kommúnista. 25.4.2006 09:30
23 látnir og 62 særðir í Egyptalandi 23 hafa fundist látnir og 62 særðir eftir hryðjuverkaárás í bænum Dahab í Egyptalandi í gær. Þrjár sprengjur sprungu nær samtímis um fimmleytið í gærkvöldi að íslenskum tíma þegar mannþröng var á götum þessa vinsæla ferðamannastaðar við Rauðahafið. 25.4.2006 09:20
Vatnsflaumurinn sjatnar hratt Hratt dregur nú úr vatnsflaumnum í Skaftá, eftir hlaupið sem hófst fyrir helgi, en rennslið er þó enn margfalt meira en það var fyrir hlaupið. Jarðvísindamenn hafa ekki enn getað kannað sigketillinn í jöklinum úr lofti, vegna erfiðra flugskilyrða, en reynt verður að fljúga yfir svæðið í dag. 25.4.2006 09:00
Óvæntir tónleikar Það eru ekki allir sem fá óvænta tónleika með þekktustu söngvurum þjóðarinnar í afmælisgjöf. Leynitónleikar til heiðurs Margréti Pálmadóttur söngkonu, voru haldnir í Austurbæ í gærkvöldi. Það var fjölskylda Margrétar, vinir, vandamenn og aðrir velunnarar sem skipulögðu tónleikanna í tilefni 50 ára afmælis hennar. 25.4.2006 09:00
Samningaviðræður í hnút Kjaraviðræður starfsmanna á dvalar- og hjúkrunarheimilum hlupu í hnút í gærkvöldi, að sögn Álfheiðar Bjarnadóttur, talskonu viðræðunefndar starfsmanna. Hún segir að starfsfólk sé nú farið að leggja drög að uppsögnum. 25.4.2006 08:51
Starfshópur enn ekki skipaður vegna brotthvarfs Varnarliðsins Enn hefur ekki verið skipaður samráðshópur um aðgerðir á Suðurnesjum eftir að Varnarliðið hverfur á braut. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær. 24.4.2006 22:57
Stofnandi Enron bar vitni Kenneth Lay, stofnandi orkufyrirtækisins Enron, bar í dag vitni í fjársvikamáli sem hefur verið höfðað gegn honum vegna gjaldþrots fyrirtækisins. Hann neitaði því að hafa logið að fjárfestum um fjárhagsstöðu fyrirtækisins. 24.4.2006 22:45
Stuðningur við Bush Bandaríkjaforseta aldrei minni Stuðningur við Bush Bandaríkjaforseta hefur aldri verið minni samkvæmt nýrri skoðanakönnun CNN. Aðeins 32% Bandaríkjamanna eru sátt við frammistöðu forsetans og 60% Bandaríkjamanna ósátt. 24.4.2006 22:30
Hryðjuverkaárás í Egyptalandi Að minnsta kosti 30 fórust og um 160 særðust, þar af fjölmargir lífshættulega, þegar þrjár sprengjur sprungu á veitingastað, kaffihúsi og í stórmarkað í ferðamannabænum Dahab í Egyptalandi síðdegis í dag. Mubarak Egyptalandsforseti segir þetta hryðjuverk sem verði að refsa fyrir. 24.4.2006 22:08
Þingið í Nepal verður endurreist Konungur Nepals ætlar að endurreisa þingið í landinu. Með því vill hann aftur koma á lýðræði í landinu og friði eftir stanslaus átök í þrjár vikur. 24.4.2006 22:00
Kjaradeilan í hnút Álfheiður Bjarnadóttir, talskona viðræðunefndar starfsmanna á dvalar- og hjúrkunarheimilum, segir kjaradeiluna í hnút og starfsfólk sé farið að leggja drög að uppsögnum. Samninganefndir Eflingar og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu funduðu í dag en án árangurs. 24.4.2006 20:10
Vegstyttingu framhjá Blönduósi hafnað Umhverfisráðherra hefur fallist á sjónarmið Austur-Húnvetninga um að hafna einhverri arðbærustu framkvæmd sem völ er á hérlendis; þrettán kílómetra styttingu hringvegarins fram hjá Blönduósi. Einkahlutafélagið Leið hefur hins vegar óskað eftir umhverfismati til að fá að leggja veginn sem einkaframkvæmd. 24.4.2006 19:05
Minnst 30 fórust í sprengingum í Egyptalandi Að minnsta kosti 30 fórust og um 150 særðust í þremur sprengingum í ferðamannabænum Dahab í Egyptalandi síðdegis í dag. 24.4.2006 18:57
Var Alþingi blekkt? Beittu menn vísvitandi blekkingum? spurði formaður Samfylkingarinnar á Alþingi í dag, þegar hún rifjaði upp rök sem færð voru fyrir því að ekki væri unnt að skilja grunnnetið frá þegar Landssíminn var einkavæddur. Forsætisráðherra svaraði að allir ráðgjafar hefðu eindregið mælt með því að fyrirtækið yrði selt í heilu lagi og þannig hefði mest verð fengist fyrir Símann. 24.4.2006 18:52
Tillögur um Löngusker steyta á skeri Fáránlega vitlaus hugmynd segir bæjarstjóri Kópavogs um tillögur framsóknarmanna í Reykjavík um að flytja flugvöllinn á Löngusker. Bæjarstjórum nágrannasveitarfélaga Reykjavíkur, sem hlut eiga að máli, ber saman um að tillögur framsóknarmanna í Reykjavík, um flutning á flugvelllinum úr Vatnsmýrinni á Löngusker, séu óraunhæfar. Benda þeir á að sveitarfélög þeirra eigi lögsögu yfir skerjunum og að ekki verði flugvöllur færður þangað nema með samþykki þeirra. 24.4.2006 18:48
RÚV hf. skref til einkavæðingar Frumvarpið um Ríkisútvarpið er ákveðið skref til einkavæðingar þess, sagði Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, við atkvæðagreiðslu í þinginu nú síðdegis. Pétur sagði að menn yrðu jafnhissa á því í framtíðinni að opinberir starfsmenn stunduðu fréttamennsku eins og menn væru hissa á því í dag að opinbera starfsmenn hefði þurft til að stunda bankastarfsemi. 24.4.2006 18:29
Óhæfuverk í Írak Á meðan ráðamenn í Írak ræða skipan nýrrar ríkisstjórnar hafa minnst átta Írakar fallið í röð sprengjuárása í höfuðborginni Bagdad í dag. Þá fundust 17 lík í borginni í dag og bendir allt til þess að fólkið hafi verið pyntað áður en það var myrt. 24.4.2006 17:45
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir kynnir nýtt frumvarp til laga um fjölmiðla Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er þessa stundina að kynna nýtt frumvarp til laga um fjölmiðla á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu. Í frumvarpinu er meðal annars gert ráð fyrir að Samkeppniseftirlitið geti haft afskipti af samruna fyrirtækja á fjölmiðlamarkaði. 24.4.2006 17:33
Engin rök fyrir sölu grunnnetsins hafa staðist Engin rök ríkisstjórnarinnar fyrir því að selja grunnnet Símans með fyrirtækinu hafa staðist. Þessu hélt Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, fram á Alþingi í dag. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að allir þeir ráðgjafar sem leitað hafi verið til við söluna hafi verið sammála um að réttast væri að selja Símann og grunnetið saman. 24.4.2006 17:19
Óttast ekki refisaðgerðir Ahmadinejad, Íransforseti, gaf í dag í skyna að til greina kæmi að Íranar segi sig úr Alþjóða kjarnorkumálastofnuninni ef aðild að henni geri ekkert gagn. Stofnunin vísaði kjarnorkudeilunni til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í síðasta mánuði. Íranar hafa frest fram á föstudag til að hætta auðgun úrans. 24.4.2006 17:15
Árás Maóista hrundið Öryggissveeitum í Nepal tókst í dag að hrinda árás mörg hundruð Maóista á litla borg í austur hluta landsins. Árásin hófst í nótt og skiptust uppreinsar- og hermenn á skotum í margar klukkustundir. Þegar upp var staðið lágu fimm Maóistar og einn öryggissveitarmaður í valnum. Enn hefur verið sett á útgöngubann í höfuðborginni Katmandu í dag, þar sem tugþúsundir hafa undanfarna daga mótmælt alræðisvaldi Gyanendra konungs. 24.4.2006 17:00
Sýknaðir vegna banaslyss að Kárahnjúkum Héraðsdómur Austurlands sýknaði í dag fimm yfirmenn að Kárahnjúkum vegna ákæru um að þeir bæru ábyrgð á því að ungur maður lést í vinnslysi við Kárahnhjúkastíflu í mars 2004. 24.4.2006 16:59
Skipulagsstofnun leggst gegn efnistöku úr Ingólfsfjalli. Í tilkynningu frá Skipulagsstofnun segir að álit hennar byggi á lögum um mat á umhverfisáhrifum. Það sé álit stofnunarinnar að fyrirhuguð efnistaka úr Ingólfsfjalli eins og hún sé kynnt í matsskýrslu, sé ekki ásættanleg vegna verulega neikvæðra, varanlegra og óafturkræfra sjónrænna áhrifa og áhrifa á landslag sem hún mun óhjákvæmilega hafa í för með sér. 24.4.2006 16:53
Abbas hótar Hamas-liðum Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, ætlar ekki að reka nýskipaða heimastjórn Hamas-liða þó lög heimili honum það. Hann sagði Hamas-liða verða að gera sér það ljóst að þeim sé nauðugur sá kostur að hefja friðarviðræður við ísraelsk stjórnvöld. 24.4.2006 16:30
Stór áfangi í ökukennslumálum landsmanna Ökukennarafélag Íslands og Akraneskaupstaður hafa tekið upp formlegt samstarf um undirbúning að stofnun fyrirtækis sem mun sjá um rekstur sérhannaðs aksturskennslusvæðis er staðsett verður á Akranesi. Aksturskennslusvæði þetta tekur mið af væntanlegri reglugerð samgönguráðuneytisins um aksturskennslusvæði og mun þjóna öllum landsmönnum. 24.4.2006 16:08
Ökukennslusvæði byggt á Akranesi Ökukennslusvæði verður byggt á Akranesi en þar munu ökunemar og þeir sem vilja auka ökuleikni sína geta æft sig á sérútbúnu svæði. Viljayfirlýsing þess efnis var undirrituð í dag. 24.4.2006 16:00
Húsnæðisvelta virðist á niðurleið Húsnæðisveltan á höfuðborgarsvæðinu virðist vera á hraðri niðurleið og var minni í síðustu viku en í lægðinni miklu í janúar. 24.4.2006 15:39
Tveir jeppar rákust saman á Kringlumýrabraut Árekstur varð á Kringlumýrabraut rétt fyrir klukkan þrjú í dag þegar tveir jeppar rákust saman. Engan sakaði í ósköpunum en svo virðist sem ökumaður jeppans hafi ekið í veg fyrir fólksbílinn með fyrrgreindum afleiðingum og eru báðir bílarnir mikið skemmdir. 24.4.2006 15:36
Segir LN hafa slitið kjaraviðræðum við náttúrufræðinga Félag íslenskra náttúrufræðinga segir launanefnd sveitarfélaga hafa slitið kjaraviðræðum við sig á dögunum en samningar hafa verið lausir frá því í nóvember 2004. Um er að ræða náttúrufræðinga sem starfa að skipulagsmálum, heilbrigðiseftirliti og hjá náttúrustofum. 24.4.2006 15:03
Telur skuggagjald vænlegri leið en veggjald fyrir ný göng Stjórnarformaður Spalar segir að ráðist verði í ný Hvalfjarðargöng á næstu fjórum til fimm árum til að anna þeirri auknu umferð sem hefur verið um göngin. Hann telur skuggagjald vænlegri leið en veggjald fyrir hin nýju göng. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um frekari lækkun veggjalda í núverandi göng. 24.4.2006 14:40
Halldór hitti Anders Fogh Rasmussen Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra átti í morgun fund með Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra Danmerkur en Rasmussen millilenti á Keflavíkurflugvelli á leið sinni til Grænlands. 24.4.2006 13:15
Ólíklegt að RÚV-frumvarpi verði frestað fram á haust Formaður menntamálanefndar telur ólíklegt að orðið verði við þeim kröfum stjórnarandstöðunnar að frumvarpið um Ríkisútvarpið verði ekki samþykkt á þessu þingi heldur frestað fram á haust. Þingflokksformaður Vinstri - grænna segir nauðsynlegt að gera það vegna nýrra gagna sem fram hafi komið í málinu. 24.4.2006 13:15
Mikill sigur fyrir Gíursany í Ungverjalandi Stjórnarflokkarnir héldu velli í þingkosningum í Ungverjalandi, sem fram fóru í gær. Þeirra bíður það verkefni að ná niður mesta fjárlagahalla innan Evrópusambandsins. Núverandi ríkisstjórn hlaut 210 þingsæti af 386. 24.4.2006 13:00
Samningafundur í kjaradeilu ófaglærðra á elliheimilum Samningafundur í kjaradeilu ófaglærðra starfsmanna á dvalar- og hjúkrunarheimilum hefst klukkan tvö hjá ríkissáttasemjara. Það eru fulltrúar Eflingar og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu sem sitja fundinn en þeir reyna að ná sáttum fyrir föstudag til að koma í veg fyrir að vikulangt setuverkfall skelli á og í framhaldinu fjöldauppsagnir. 24.4.2006 13:00
Skólastarf miðpunktur Reykjavíkur Skólastarf í byggingum Menntaskólans við Sund og Vogaskóla er miðpunktur búsetu í Reykjavík. Fyrir skemmstu var sagt frá því í fréttum að þungamiðja búsetu á höfuðborgarsvæðinu væri í Fossvogi. Nú hefur verið reiknað út með sömu líkönum hvar miðþunkturinn er innan borgarmarka Reykjavíkur eingöngu, vegna fjölda fyrirspurna. 24.4.2006 13:00
Síðasti bærinn á sigurgöngu Mynd Rúnars Rúnarsson Síðasti bærinn vann til verðlauna á Alþjóðlegu stuttmyndahátíðinni í Dresden núna um helgina. Myndin hlaut tvenn verðlaun. Annars vegar Golden Horse Man Youth Oscar og hins vegar verðlaun sjónvarpsstöðvarinnar ARTE fyrir bestu stuttmyndina. Rúnar tók sjálfur við verðlaununum. 24.4.2006 12:45
Bandaríkjamenn reyna að beita evrópskum bönkum fyrir sig Bandaríkjamenn íhuga að beita evrópskum bönkum og fjármálastofnunum fyrir sig til að fá Írana ofan af þróun kjarnorku. Þetta hefur tímaritið Time eftir embættismönnum sem voru viðstaddir fund Condoleezu Rice og fjármálaráðherra Bretlands og Þýskalands. 24.4.2006 12:45
Bátsrán endaði uppi í fjöru í Skerjafirði Tíu tonna hraðfiskibáti, Gísla KÓ 10, var stolið úr Kópavogshöfn í nótt og fannst hann uppi í fjöru í Skerjafirði í morgun, talsvert skemmdur. Þjófurinn hafði skorið á landfestarnar, brotist inn í stýrishúsið og náð að ræsa vélina. 24.4.2006 12:30
Bandarískir hermenn ótryggðir Mörg hundruð bandarískir hermenn sem hafa slasast í Írak og Afganistan, eru ekki tryggðir, vegna kerfisbundinna mistaka tryggingasérfræðinga Pentagon. Nærri 900 hermenn skulda nú sem svarar rúmlega einni milljón dollara vegna sjúkrakostnaðar eftir að hafa slasast í átökum. 24.4.2006 12:15
Sjö bílsprengjuárásir í Baghdad Minnst átta hafa fallið og meira en áttatíu særst í sjö bílsprengjuárásum í Baghdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Sprengjurnar hafa sprungið fyrir utan lögreglustöðvar, skrifstofur ráðuneyta og háskóla. Þetta sprengjuregn er talið tengjast hræringum í ríkisstjórn Íraka, þar sem nýr forsætisráðherra var valinn um helgina. 24.4.2006 11:45
Hlaupið í rénun Vatnsmagnið í Eldvatni er nú komið niður í um það bil 470 rúmmetra á sekúndu, sem er litlu minna en fyrra rennslismet, enda var hlaupið nú það stærsta hingað til. Þegar mest var var rennslið í Eldvatni við Ása rúmir 630 rúmmetrar á sekúndu. Áður en hlaupið hófst var rennslið í vatninu um 23 rúmmetrar á sekúndu og hefur það því næstum þrjátíufaldast þegar hæst stóð. 24.4.2006 11:00
Líst vel á Nylon Breska blaðið Sunday People spáir íslenska Nylonflokknum velgengni eftir að hafa fylgst með stúlkunum hita upp fyrir bresku poppsveitina Westlife um helgina. Þetta var upphaf tónleikaferðar Westlife um Bretland og munu Nylonstúlkurnar hita upp fyrir alla tónleikana. 24.4.2006 10:30
Harry prins má ekki fara í stríð Yngri syni Karls Bretaprins, Harry, verður líklega bannað að fylgja herdeild sinni til Íraks þegar herdeildin verður send þangað á næsta ári. Breska blaðið Times greinir frá þessu í dag. 24.4.2006 10:15
Ekki alvarleg slys á fólki á Kringlumýrarbraut Ekki urðu alvarleg slys á fólki í sex bíla árekstri sem varð á Kringlumýrarbraut, til móts við Nesti í Fossvogi um hálfníuleytið í morgun. Talsvert tjón varð hins vegar á bílum. 24.4.2006 10:00