Innlent

Tillögur um Löngusker steyta á skeri

Fáránlega vitlaus hugmynd segir bæjarstjóri Kópavogs um tillögur framsóknarmanna í Reykjavík um að flytja flugvöllinn á Löngusker. Bæjarstjórum nágrannasveitarfélaga Reykjavíkur, sem hlut eiga að máli, ber saman um að tillögur framsóknarmanna í Reykjavík, um flutning á flugvelllinum úr Vatnsmýrinni á Löngusker, séu óraunhæfar. Benda þeir á að sveitarfélög þeirra eigi lögsögu yfir skerjunum og að ekki verði flugvöllur færður þangað nema með samþykki þeirra.

Það hefur komið fram í fréttum að fjögur nágrannasveitarfélög Reykjavíkur hafa hagsmuna að gæta komi til flutnings flugvallarins til Lönguskerja. Bæjarstjórar Seltjarnarness, Kópavogs og Álftanes ber saman um að óraunhæft sé að tala um flugvöll á Lönguskerjum nema í samráði við þeirra sveitarfélög enda eigi þau öll lögsögu yfir skerjunum. Að auki munu fluglínur samkvæmt tillögunum liggja yfir þessi bæjarfélög með tilheyrandi raski.Því sé það að ekki Reykjavíkurborgar að taka einhliða ákvörðun um að setja flugvöllinn á skerin.

Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi segir að flugvöllur á Lönguskerjum myndi hafa veruleg áhrif lífsgæði og hagsmuni Seltyrnesinga, bæði vegna sjónmengunar og hávaðamengunar. En málið varðar einnig lögsögu.

Jónmundur segir að málið snerti einnig Vesturbæinn því völlurinn hefði mikil áhrif á líf íbúa við Ægissíðu og í Skerjafirði.

Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi segir að lögsaga Kópavogsbæjar narti einnig í skerin. Hann spyr einnig útí kostnað sem hljóti að hlaupa á tugum milljarða. Hann segir hugmyndina arfavitlausa.

 

Bæjarstjóri Álftaness er á sömu línu og kollegar hans. Lögsaga hans bæjarfélags nái einnig til Lönguskerja.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, tekur í sama streng. Hann bendir á hafa verði samráð við Garðabæ um svona tillögur þar sem flug yfir bæinn valdi hávaða og því fylgi kvaðir um hæð bygginga. Bærinn vinni nú að því að bæta lífsgæði bæjarbúa með því að draga úr hávaða






Fleiri fréttir

Sjá meira


×