Fleiri fréttir Stjórnarflokkar halda velli í Úkraínu 24.4.2006 09:00
Sjá næstu 50 fréttir
Unglingar á ofsaferð Sautján ára unglingur var stöðvaður eftir að hafa ekið bíl sínum á 144 kílómetra hraða eftir Reykjanesbraut í Kópavogi í gærkvöldi, þar sem hámarkshraði er sjötíu. Hann var því á meira en tvöföldum hámarkshraða og með aðeins tíu daga gamalt reynsluskírteini, sem hann missti umsvifalaust. 24.4.2006 08:53
Sala fasteigna hrapar Húsnæðisveltan á höfuðborgarsvæðinu er í frjálsu falli aðra vikuna í röð og var minni í síðustu viku en í lægðinni miklu, í síðustu vikum janúarmánaðar. 24.4.2006 08:30
Sjatnar í Skaftá Talsvert er farið að sjatna efst í Skaftá en rennsli er enn mikið neðantil í ánni eins og á Kirkjubæjarklaustri. Vatnsmagnið efra er nú komið niður í um það bil 500 rúmmetra á sekúndu, sem jafngildir fyrra rennslismeti, enda var hlaupið nú, það stærsta hingað til. 24.4.2006 08:15
Hálka á sumardaginn fimmta Sumardagurinn fimmti rann upp alhvítur á höfuðborgarsvæðinu með jólasnjó á trjágreinum. Þetta kom mörgum ökumönnum í bobba í morgunsárið því nú er komið sumar samkvæmt almanakinu og nagladekkin almennt komin inn í bílskúra og geymslur. 24.4.2006 08:04
Þjófsflótti á reiðhjóli Innbrotsþjófur á stolnu reiðhjóli var gripinn glóðvolgur í Þingholtunum í Reykjavík í nótt, þrátt fyrir tilraun til að stinga lögregluna af. Hann var búinn að brjóta rúðu í íbúð við Þingholtsstræti þegar húsráðandi vaknaði, en við það kom styggð að þjófnum, en þó ekki meiri en svo að hann náði að stela reiðhjóli húsráðanda, sem geymt var utandyra. En allt kom fyrir ekki, lögreglumenn óku hann uppi og handtóku hann. 24.4.2006 08:00
Hlaupið í Skaftá það allra stærsta Vatnamælingamaður Orkustofnunar segist aldrei hafa séð eins mikið vatn í Eldvatni við Ása og í dag. Hlaupið í Skaftá hefur að öllum líkindum náð hámarki, en það er einstakt að ýmsu leyti. Þrýstingurinn sem myndaðist í eystri Skaftárkatli virðist hafa verið meiri nú en í öðrum hlaupum sem gerði það að verkum að vatnið braut sér leið í gegnum ísmassan og nánast sprengdi hann. Við það dreifðist hlaupið á stærra svæði, var mjög ákaft og hljóp meðal annars í Tungnaá. 23.4.2006 16:04
Ungverska stjórnin hélt velli Jafnaðarmannastjórnin í Ungverjalandi hélt velli í þingkosningum í landinu, en síðari umferð þeirra fór fram í dag. 23.4.2006 19:45
Björgólfur Thor 32. auðugasti maður Bretlands Breska blaðið Sunday Times metur eignir Björgólfs Thors Björgólfssonar á liðlega 214 milljarða króna og segir þær hafa fjórfaldast á einu ári. Hann er samkvæmt þessu þrítugasti og annar ríkasti maður Bretlandseyja. 23.4.2006 19:13
Fréttablaðið fimm ára Fréttablaðsmenn fagna í dag fimm ára afmæli blaðsins. Gunnar Smári Egilsson segir sterka stöðu þess nú ekki frábrugðna því sem hann hefði getað ímyndað sér þegar farið var af stað með blaðið. 23.4.2006 18:45
Rúnar Helgi fékk þýðingarverðlaunin Rúnar Helgi Vignisson hlaut í dag Íslensku þýðingarverðlaunin fyrir þýðingu sína á bókinni Barndómur eftir J.M. Coetzee. Rúnar Helgi tók við sigurlaununum úr hendi herra Ólafs Ragnars Grímssonar forseta á Gljúfrasteini nú síðdegis. 23.4.2006 17:44
Vilja auka val, gæði og árangur í þjónstu borgarinnar Sjálfstæðismenn í Reykjavík kynntu í morgun fjölskyldustefnu sína fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Markmið hennar er að sögn frambjóðenda flokksins að auka val, gæði og árangur í þjónustu Reykjavíkurborgar. Sjálfstæðismenn kynntu líka niðurstöður viðhörfskönnunar sem bendir mjög eindregið til þess að borgarbúar vilji eyða meiri tíma með fjölskyldunni. 23.4.2006 17:30
Aparnir fá að fara til heimkynna sinna Allt útlit er fyrir að fimmtíu og fjórir órangútan-apar, sem taldir eru vera frá Indónesíu, fái loks að snúa aftur til heimkynna sinna. Taílensk yfirvöld fundu apana í þarlendum safarí-dýragarði fyrir nokkrum misserum en þá höfðu þeir verið látnir stunda hnefaleika, gestum garðsins til skemmtunar. 23.4.2006 17:00
Vill fresta skattalækkunum og stóriðju Jón Sigurðsson seðlabankastjóri kallar á sameiginlegar aðgerðir bankans og stjórnvalda til að slá á þennslu í íslensku hagkerfi. Hann segist hiklaust vilja líta til upptöku Evru hér á landi - en að það kalli á inngöngu í Evrópusambandið. 23.4.2006 16:45
Góð kosningaþátttaka í Ungverjalandi Allgóð kjörsókn hefur verið í síðari umferð ungversku þingkosninganna sem hófst í morgun. Útlit er fyrir að ríkisstjórnin haldi meirihluta sínum. Þegar kjörstaðir voru opnaðir snemma í morgun höfðu þegar myndast biðraðir fyrir utan og það sem af er degi hefur kjörsókn verið býsna góð. Stöðugleiki hefur hingað til ekki verið helsta einkenni ungverskra stjórnmála því síðan járntjaldið féll árið 1990 hefur sitjandi ríkisstjórn aldrei náð að halda völdum. 23.4.2006 16:20
Vilja auka val, gæði og árangur Sjálfstæðismenn í Reykjavík kynntu í hádeginu fjölskyldustefnu sína fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Markmið hennar er, -að sögn frambjóðenda flokksins, -að auka val, gæði og árangur í þjónustu Reykjavíkurborgar. 23.4.2006 15:15
Enn mótmælt í Nepal Enn einn daginn í röð fylktu mótmælendur liði í Katmandú, höfuðborg Nepals. Andófsmennirnir höfðu útgöngubann yfirvalda að engu heldur reyndu að komast inn á bannsvæði í miðborginni þar sem konungshöllin er. 23.4.2006 15:00
Bin Laden segir Vesturlönd í krossför gegn islam Arabíska sjónvarpsstöðin al-Jazeera birti í morgun ávarp frá Osama bin Laden, leiðtoga al-Kaída hryðjuverkanetsins. Í ávarpinu sagði hann tilraunir ríkisstjórna á Vesturlöndum til að einangra Hamas-samtökin og átökin í Darfur dæmi um krossför Vesturlanda gegn íslam. Bin Laden bætti því við að almenningur á Vesturlöndum bæri einnig ábyrgð á þessari aðför gegn trú sinni. 23.4.2006 14:16
Hlaupið líklega búið að ná hámarki Hlaupið í Skaftá nú er einstakt í söguni því þetta er fyrsta sinn sem hlaupið úr Skaftárkötlum hleypur fram á tveimur stöðum, í Skaftá og Tungnaá. Að sögn Odds Sigurðssonar jarðfræðings, þá virðist sem hlaupið hafi náð hámarki en við upphaf þess var krafturinn í hlaupinu svo mikill að vatnið sprautaðist upp úr sprungum á jöklinum. 23.4.2006 12:12
Skemmdarverk unnin á bílum Skemmdarverk voru unnin á sjö bílum við Suðurbugt í Reykjavíkurhöfn í morgun. Rúður bílanna voru brotnar og rótað í bílunum en litlu ef einhverju stolið. Mikið var að gera hjá lögreglunni seinni hluta nætur og í morgun og á tímabili hafði lögregla vart undan. 23.4.2006 11:54
Hálka á vegum Hálka er víða á vegum fyrir vestan og norðan. Á Holtavörðuheiði og í Bröttubrekkum er hálka og skafrenningur, hálkublettir eru á heiðum á Vesturlandi og hálka eða hálkublettir á Vestfjörðum og Norðausturlandi. 23.4.2006 10:56
Mikill reykur en lítil hætta Talsverðan reyk og brunalykt lagði yfir Fitjar í Reykjanesbæ í gær en engin hætta var á ferðum því vaskir slökkviliðsmenn hjá Brunavörnum Suðurnesja voru við æfingar í gamalli steypustöð. 23.4.2006 10:45
Miklar skemmdir í eldsvoða Eldur kom upp í íbúðarhúsi í Grindavík rétt fyrir klukkan tíu í gærkvöld. Miklar skemmdir urðu á húsinu vegna elds og reyks en húsið var mannlaust þegar eldurinn kom upp. 23.4.2006 10:09
Skaftárhlaup eykst enn Hlaupið í Skaftá heldur enn áfram að aukast. Sjálfvirkir mælar eru óvirkir en vatnsmælingamenn eru á leið að ánni til að meta stöðuna. Að sögn staðkunnugra er vatnselgurinn mikill og rennslið með því allra mesta sem gerist í Skaftárhlaupum. 23.4.2006 10:05
Litlu flokkarnir sækja í sig veðrið Sjálfstæðisflokkur tapar töluverðu fylgi og litlu flokkarnir sækja á í Reykjavík samkvæmt könnun Fréttablaðsins sem birtist í dag. 23.4.2006 10:02
Fréttablaðið í fimm ár Fréttablaðið er fimm ára í dag. Á þessum stutta tíma hefur blaðið unnið sér sess á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Það er mest lesna dagblað á Íslandi, mikið notaður fjölmiðill sem frá upphafi hlaut góðar viðtökur lesenda þótt margir hafi haft uppi hrakspár um framtíð blaðsins fyrst eftir að blaðið hóf göngu sína. 23.4.2006 08:00
Skotið á nepalska mótmælendur Nepalska lögreglan réðst í morgun gegn andófsmönnum sem reyndu að komast að konungshöllinni í Katmandú, höfuðborg landsins. Sáttatilboð konungs virðist hafa fallið í afar grýttan jarðveg hjá þegnum hans. 22.4.2006 21:00
Settur á fleka gegn vilja sínum Norskt olíuskip á leið til Svíþjóðar sigldi í gær fram á mann á fleka á Skagerak, um fimmtíu kílómetra norður af Jótlandi. 22.4.2006 20:15
Rekin frá CIA vegna uppljóstrana Bandaríska leyniþjónustan CIA hefur leyst hátt settan starfsmann sinn frá störfum fyrir að leka upplýsingum um leynifangelsi erlendis og fangaflutninga þeim tengdum til fjölmiðla. 22.4.2006 19:45
Al-Maliki verður forsætisráðherra Vonast er til að fjögurra mánaða stjórnarkreppa í Írak sé á enda eftir að samkomulag náðist um hver tæki við embætti forsætisráðherra landsins. Jalal Talabani var endurkjörinn forseti á íraska þinginu í dag. 22.4.2006 19:20
Skerðir tengsl við félagsmenn Tengsl verkalýðshreyfingarinnar við atvinnulausa félagsmenn sína rofna ef lagafrumvarp félagsmálaráðherra um atvinnuleysistryggingasjóð verður að lögum segir formaður Eflingar. 22.4.2006 19:15
Enn vex hlaupið í Skaftá Hlaupið í Skaftá vex mjög hratt og er rennslið nú komið í tæpa 390 rúmmetra á sekúndu en búast má við að það fari í um 1400 rúmmetra þegar hlaupið nær hámarki í nótt eða fyrramálið. Rennslið hefur þrefaldast frá því hlaupið hófst í gærkvöldi. 22.4.2006 18:42
Fyrsta keppni framhaldsskóla í ökuleikni Fyrsta Íslandsmeistarakeppnin í ökukeppni framhaldsskólanna fór fram í dag og tóku tólf ungmenni þátt. Þátttakendur óku í gegnum fjórar þrautir og réðust úrslit á ökuhraða í gegnum brautirnar og villufjölda. 22.4.2006 18:16
Bruni í Þrándheimi Stórbruni varð í miðborg Þrándheims í Noregi í gærkvöld. Enginn slasaðist en nokkur hús gjöreyðilögðust. 22.4.2006 17:30
Sýkt kjöt í dönskum verslunum Dönsk heilbrigðisyfirvöld rannsaka nú hvernig á því standi að níu tonn af ítölsku kalkúnakjöti hafi ratað í 173 danskar matvöruverslanir án tilskildrar vottunar. 22.4.2006 17:00
Rangar líkamsleifar afhentar Chilesk yfirvöld hafa beðið ættingja 126 fórnarlamba herforingjastjórnarinnar illræmdu afsökunar eftir að í ljós kom að þeim voru afhentar rangar líkamsleifar. 22.4.2006 16:45
Tvöfalt tilræði í Úkraínu Fjórtán slösuðust í tveimur sprengjutilræðum sem framin voru í úkraínsku borginni Kharkív í dag. 22.4.2006 16:15
Fjölmenn mótmæli í Palestínu Þúsundir fylgismanna Fatah-hreyfingar Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, efndu til mótmæla á Vesturbakkanum og Gaza-ströndinni í dag. 22.4.2006 15:53
Jón Ingi hættur hjá AFLi Jón Ingi Kristjánsson er hættur sem formaður AFLs, Starfsgreinafélags Austurlands. Starfinu hafði hann gegnt frá því samtökin voru stofnuð fyrir rúmum fimm árum. 22.4.2006 13:45
Hlaupið í Skaftá vex mjög hratt Hlaupið í Skaftá vex mjög hratt og er rennslið í Eldvatni við Ása nú orðið tæpir 280 rúmmetrar á sekúndu.Hlaupið á upptök sín um 5-10 kílómetrum norð-vestan við Grímsvötn í eystri katli Skaftárjökuls og varð þess vart um klukkan 7 morgun. 22.4.2006 13:28
Íbúðaverð hækkar um tvö prósent Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um tæp tvö prósent í síðasta mánuði og hefur hækkað um rúm fjögur prósent fyrstu þrjá mánuði ársins. 22.4.2006 13:15
Allt að fimmtungur yfir sjötugu með hjartadrep Allt að fimmtungur fólks yfir sjötugu er með hjartadrep án þess að hafa nokkra hugmynd um það. Þetta leiða rannsóknir Hjartaverndar í ljós. Samtökin hafa nú fengið ríflega 60 milljóna króna styrk til að kanna betur áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma fólks á efri árum. 22.4.2006 12:30
Gengur 2000 kílómetra Jón Eggert Guðmundsson ætlar að ganga rúmlega tvö þúsund kílómetra um strandvegi landsins í sumar og styrkja um leið Krabbameinsfélag Íslands. 22.4.2006 12:28
Útlit fyrir stórt hlaup í Skaftá Hlaup er hafið í Skaftá og er útlit fyrir að það sé frekar stórt en vitað var að báðir katlarnir í Skaftárjökli voru orðnir fullir. Hlaupið á upptök sín um fimm til tíu kílómetrum norð-vestan við Grímsvötn í eystri katli Skaftárjökuls og varð þess vart um klukkan 7 morgun. 22.4.2006 12:23
Fá gular númeraplötur Farartæki sem mega nota gjaldfrjálsa litaða olíu verða í framtíðinni með öðruvísi númeraplötum en önnur farartæki. Samkvæmt reglugerð sem er í undirbúningi í samgönguráðuneytinu verða slík farartæki með gular númeraplötur með svörtum og brúnum stöfum. 22.4.2006 10:45