Erlent

Bruni í Þrándheimi

Stórbruni varð í miðborg Þrándheims í Noregi í gærkvöld. Enginn slasaðist en nokkur hús gjöreyðilögðust. Flytja þurfti á annað hundrað manns á brott af hótelum á hættusvæðinu. Að sögn Aftenposten stendur slökkvistarf enn yfir. Eldsupptök eru ókunn og yfirheyrir lögregla nú vitni.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×