Erlent

Fjölmenn mótmæli í Palestínu

Mótmælendurnir á Gaza voru óárennilegir.
Mótmælendurnir á Gaza voru óárennilegir. MYND/AP

Þúsundir fylgismanna Fatah-hreyfingar Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, efndu til mótmæla á Vesturbakkanum og Gaza-ströndinni í dag. Mótmælendurnir létu ófriðlega og skutu úr byssum sínum upp í loftið. Í borginni Nablus réðust þeir inn í dómshús og lögðu það undir sig í stutta stund. Orsök uppþotanna eru svikabrigsl Khaleds Mashaals, leiðtoga Hamas-samtakanna, á hendur Abbas en sá síðarnefndi beitti í gær neitunarvaldi sínu til að koma í veg fyrir áform Hamas um að setja á fót sérstakar hersveitir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×