Erlent

Skotið á nepalska mótmælendur

Nepalar eru óhressir með Gyanendra konung sinn.
Nepalar eru óhressir með Gyanendra konung sinn. MYND/AP

Nepalska lögreglan réðst í morgun gegn andófsmönnum sem reyndu að komast að konungshöllinni í Katmandú, höfuðborg landsins. Sáttatilboð konungs virðist hafa fallið í afar grýttan jarðveg hjá þegnum hans.

Enn einn daginn logaði Katmandú í illindum og átökum. Þrátt fyrir útgöngubann freistuðu tugþúsundir mótmælenda þess í morgun að komast að höllu Gyanendra konungs og tjá honum óánægju sína með stjórnarhætti hans. Rúmt ár er liðið síðan hann tók sér alræðisvald í, að eigin sögn til að auðvelda baráttuna við skæruliða Maóista en við það hafa Nepalar ekki viljað una. Í gær bauð konungur sættir en hvorki stjórnmálamenn né almenningur telja tilboð hans fullnægjandi þar sem ekki er kveðið á um endurreisn þingræðis eða stjórnarskrár í því.

Fjórtán hafa farist í mótmælum undanfarinna tveggja vikna en nepalska hefur lögreglan ekki tekið andófsmennina neinum vettlingatökum. Dagurinn í dag var engin undantekning því nokkrar tylftir þeirra slösuðust í átökum við öryggissveitir konungs. Táragasi var skotið að fólkinu og lögreglumenn létu höggin dynja á þeim sem á vegi þeirra urðu. Farsímakerfi hafa verið gerð óvirk til að erfiðara sé að skipuleggja frekari kröfugöngur. Ekkert lát virðist þó ætla að verða á þeim í bráð.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×