Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vörubílstjórar taka ekki þátt Landssamband vörubifreiðastjóra tekur ekki þátt í mótmælum gegn breytingum á þungaskattinum sem áformuð eru fyrir verslunarmannahelgina. Formaður sambandsins segir þungaskattinn einungis hafa veruleg áhrif á ákveðna félagsaðila. 25.7.2005 00:01
Bygging sumarbústaða heldur áfram Ekkert hefur dregið úr byggingu nýrra sumarbústaða þrátt fyrir stóraukna fjárfestingu í íbúðarhúsnæði og að vextir af lánum til sumarbústaða séu talsvert hærri en af lánum til íbúðarhúsnæðis. 25.7.2005 00:01
Landamæradeila Kanada og Danmerkur Kanadamenn og Danir eru að lenda í landamæradeilu um Hans-eyju, norðaustur af Grænlandi. Deilan tók nýja stefnu í síðustu viku eftir að Bill Graham, varnarmálaráðherra Kanada, steig þar á land og hermenn reistu kanadíska fánann, en danski fáninn var þar fyrir. 25.7.2005 00:01
Með bensínbirgðir á stuðaranum Varnarliðsmönnum á Keflavíkurflugvelli óar svo bensínverðið á Íslandi að þeir fylla alla koppa og kyrnur af bensíni uppi á velli og hafa það með sér þegar þeir leggjast í ferðalög um landið. Þannig náðu Víkurfréttir mynd af varnarliðsjeppa í hliðinu upp á völl þar sem sjö bensínbrúsum hafði verið raðað á grind sem fest var við afturstuðarann. 25.7.2005 00:01
Óánægja með nýja leiðakerfið Fyrsti virki dagur nýs leiðakerfis hjá Strætó bs. hefur ekki gengið sem skyldi. Frítt var í strætisvagna alla helgina og gafst farþegum þá tækifæri til að kynna sér nýju leiðirnar en það virtist ekki vera nóg. 25.7.2005 00:01
Hrakningar sígaunanna halda áfram Ekkert lát er á hrakningum sígaunahópsins sem kom hingað til lands í síðustu viku og óskaði eftir pólitísku hæli. Eins og fram er komið var þeim vísað strax aftur úr landi með skipinu. 25.7.2005 00:01
Vinsældir hreindýraveiða aukast Nítján hreindýrstarfar hafa verið veiddir á síðustu tíu dögum. 800 leyfi voru gefin út í ár en tvöfalt fleiri umsóknir bárust, eða um 1600, og verða vinsældir þessa áhugamáls sífellt meiri. 25.7.2005 00:01
Blair eyðir fúlgum í snyrtivörur Það skiptir máli að líta vel út, koma vel fyrir og snyrta sig. Púður og kinnalitur eru lykilatriði. Í það minnsta er erfitt að komast að annarri niðurstöðu þegar litið er til reikninga Tony Blairs, forsætisráðherra Bretlands. 25.7.2005 00:01
Ánægja með reykingabann í Noregi Þann 1. júní í fyrra urðu allir veitinga- og skemmtistaðir í Noregi reyklausir. Nú er komin út skýrsla þar sem kemur fram að breytingarnar hafi gengið mjög vel fyrir sig og að 10% starfsmanna hafi hætt að reykja. 25.7.2005 00:01
Samkomulag náðist við Spútnik báta Samkomulag hefur náðst á milli Spútnik báta og Verkalýðsfélags Akraness en að undanförnu hefur verið deilt um heimild fyrirtækisins til að fá til starfa erlenda verkamenn á grundvelli þjónustusamnings við erlenda starfsmannaleigu. 25.7.2005 00:01
5 handteknir vegna sprenginganna Lögreglan í London hefur nú handtekið fimm menn í tengslum við rannsóknina á hryðjuverkaárásunum í borginni í síðustu viku. Tilkynnt var um handtöku tveggja manna nú síðdegis en þrír voru þegar í haldi lögreglu. 25.7.2005 00:01
22% aukning farþega á Bakka Ný flugstöð verður vígð á Bakkaflugvelli á morgun. Nýja flugstöðin er 250 fermetrar og leysir af hólmi eldri byggingu frá árinu 1997 sem er aðeins 45 fermetrar. Á fyrstu fimm mánuðum þessa árs hefur farþegum sem fara um flugvöllinn fjölgað um 22% miðað við sama tímabil í fyrra. 25.7.2005 00:01
Fyrsti dagurinn gengur vel Fyrsti virki dagur nýs leiðakerfis hjá Strætó bs. hefur gengið vel að sögn talsmanna Strætó og hafa engir stórir hnökrar komið upp á nýja leiðakerfinu. Þó eru dæmi um að fólk hafi þurft að bíða lengi eftir vögnum eða ekki fundið nýjar biðstöðvar og segja sumir að kerfið sé orðið mun flóknara en áður. 25.7.2005 00:01
Þrjátíu flóttamenn til Reykjavíkur Undirbúningur fyrir komu 31 flóttamanns hingað til lands stendur yfir og gengur vel að sögn Atla Viðars Thorstensen, verkefnisstjóra hjá Rauða krossi Íslands. Nákvæm dagsetning liggur ekki fyrir en vonast er til þess að fólkið komi áður en grunnskólar hefjast þann 22. ágúst. 25.7.2005 00:01
Ræða við lögreglu Hópur óánægðra vörubifreiðastjóra ætlar að hittast við Hús verslunarinnar annað kvöld að sögn Sturlu Jónssonar, eins bílstjóranna. Þar ætla þeir að ræða fyrirhuguð mótmæli vegna hækkunar olíuverðs sem felast í að loka aðalumferðaræðum út úr Reykjavík skömmu fyrir helgina. 25.7.2005 00:01
Borgin stuðlar að fækkun gesta Þegar mest var um ferðir til Viðeyjar árið 2000 komu þangað yfir 28.000 gestir, og flestir yfir sumarið. Síðan þá hefur þeim fækkað jafnt og þétt og það sem af er þessu ári hafa um 7500 gestir komið. Meginástæða fækkunarinnar mun vera að Reykjavíkurborg ákvað að hætta að styrkja veitingarekstur í Viðeyjarstofu. 25.7.2005 00:01
Hætt við ferðir til Sharm el-Sheik Íslenskar ferðaskrifstofur hafa hætt við ferðir sem fara átti til egypska ferðamannabæjarins Sharm el-Sheik við Rauðahafið eftir að hryðjuverk urðu þar tæplega níutíu manns að bana í síðustu viku. 25.7.2005 00:01
Áfram flogið til Grænlands Flugfélag Íslands hefur náð samkomulagi við heimastjórnina í Grænlandi um að halda áfram áætlunarflugi milli Íslands og Grænlands. Samningurinn er til fimm ára og með möguleika á áframhaldi í önnur fimm ár. Flogið verður tvisvar í viku til Kulusuk og Constablepynt. 25.7.2005 00:01
Drepin af ásettu ráði Lögmenn fjölskyldu kanadísks ljósmyndara, sem lést í haldi yfirvalda í Íran fyrir tveimur árum, fullyrða að ljósmyndarinn, Zahra Kazemi að nafni, hafi verið drepinn af ásettu ráði. Zahra var handtekin fyrir utan fangelsi í Tehran, höfuðborg Írans, þar sem hún var að taka myndir en margir fanganna sem þar sitja inni hafa unnið sér það eitt til saka að vera andvígir stefnu stjórnvalda í landinu. 25.7.2005 00:01
Átök halda áfram í Súdan Nokkurt mannfall varð á meðal íbúa þorpa í Darfúr-héraði í Súdan í gær þegar uppreisnarmenn gerðu árás á þorpin. Ekki liggur fyrir hve margir eru látnir en auk þeirra sem biðu bana eru þónokkrir særðir, eftir því sem Reuters-fréttastofan greindi frá síðdegis. 25.7.2005 00:01
Ólétt af syni djöfulsins Ítalskt par stal 50 þúsund evrum af 47 ára gamalli konu í borginni Palermo á Sikiley eftir að hafa fullvissað hana um að þau væru vampírur sem myndu gera hana ólétta af syni djöfulsins ef hún borgaði þeim ekki. Parið stal peningunum af konunni á fjögurra ára tímabili með því að selja henni pillur á 3000 evrur sem áttu að koma í veg fyrir óléttuna. 25.7.2005 00:01
Niðurstöður Skerjafjarðarflugslyss Niðurstöður rannsóknarnefndar sem samgönguráðherra skipaði til að fara yfir alla þætti flugslyssins í Skerjafirði í ágúst árið 2000 verða kynntar á föstudaginn. Nefndin hefur verið að störfum í rúmlega tvö og hálft ár. 25.7.2005 00:01
Ásakanir ekki svara verðar Kolbrún Aðalsteinsdóttir skipuleggjandi Iceland Fashion Week segir ásakanir Sunnu Ásgeirsdóttur og Hörpu Einarsdóttur ekki svara verðar en þær sögðust hafa hætt við þátttöku í hátíðinni vegna vanefnda Kolbrúnar 25.7.2005 00:01
Íhuga skuldbreytingu Vatnsveita Hafnarfjarðar og Fráveita Hafnarfjarðar gætu hagnast um 18 milljónir króna árlega ef langtímalán stofnananna yrðu endurfjármögnuð. Að þessari niðurstöðu kemst Áhættunefnd erlendra lána Hafnarfjarðarbæjar og var bókun þessa efnis samþykkt á bæjarráðsfundi í síðustu viku. 25.7.2005 00:01
Umsóknarfrestur runninn út Í gær rann út umsóknarfrestur um stöðu forstjóra Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu verður tilkynnt um það hverjir sótt hafa um stöðuna fljótlega á næstu dögum eða þegar ljóst þykir að allar umsóknir hafi borist. Auglýst var eftir umsóknum í byrjun þessa mánaðar. 25.7.2005 00:01
Forsetanum mótmælt Gloria Arroyo forseti Filippseyja flutti árlegt þingávarp sína í gær við allsérstæðar aðstæður. Stjórnarandstaðan var ekki viðstödd athöfnina og utan við þinghúsið voru saman komnir tugir þúsunda mótmælenda. 25.7.2005 00:01
Ófrísk en heiladauð Susan Torres, 26 ára Bandaríkjamaður, féll í dá í maí síðastliðinn eftir að óuppgötvað heilaæxli olli henni heilablóðfalli þar sem hún sat við kvöldverðarborðið heima hjá sér. 25.7.2005 00:01
Vopnuð átök um helgina Til vopnaðra átaka kom í Darfur-héraði í vesturhluta Súdan nú um helgina. Þetta hafa yfirmenn hersins þar í landi viðurkennt. 25.7.2005 00:01
Leita fimm Pakistana Lögregla í Egyptalandi leitar nú fimm Pakistana sem grunaðir eru um að bera ábyrgð á hryðjuverkunum í Sharm el-Sheik um helgina. Öryggisfulltrúum á Sínaískagasvæðinu var mörgum hverjum sagt upp í kjölfar árásanna og þeir sagðir hafa sofið á verðinum. 25.7.2005 00:01
Súnníar aftur með í ferlinu Súnní-Arabar hafa aftur tekið sæti sín í nefnd sem fjallar um stjórnarskrá fyrir Írak. Þeir höfðu sniðgengið nefndina í tæpa viku til að mótmæla morðum á tveimur samstarfsmanna þeirra, Súnnía sem sæti áttu í nefndinni. 25.7.2005 00:01
Álagningarseðlar á föstudag Einhverjir munu kætast og aðrir ekki á föstudaginn kemur en þá verða álagningarseðlar skattstjóra í landinu bornir út til almennings. 25.7.2005 00:01
Bólar ekkert á ákærum í Baugsmáli Enn bólar ekkert á ákærunum í Baugsmálinu en til stóð að þær yrðu birtar fyrir tveimur vikum. Fimmmenningunum sem ákærðir eru var birt ákæra þann 1. júlí. 25.7.2005 00:01
Skemmdarverk ekki verið kærð Engar kærur hafa borist lögregluyfirvöldum vegna skemmdarverka þeirra er unnar hafa verið á skiltum og mannvirkjum á virkjunarsvæði Kárahnjúka undanfarna sólarhringa. 25.7.2005 00:01
Hryðjuverkamannanna leitað Átök brutust út þegar egypska lögreglan umkringdi tvö þorp þar sem talið var að hryðjuverkamenn héldu til. Alþjóðlegum hryðjuverkamönnum er kennt um tilræðin í Sharm el Sheikh sem kostuðu áttatíu og átta lífið. 25.7.2005 00:01
Breytingar á óhentugum tíma "Það hefði verið hentugra að skipta um leiðarkerfi á öðrum tíma en núna er nær helmingur starfsmanna er í sumarfríum," segir Valdimar Jónsson trúnaðarmaður hjá Strætó. Kalla þurfti nokkra bílstjóra skyndilega úr sumarfíum til að manna vagna í nýja leiðarkerfi Strætó. 25.7.2005 00:01
Hæð Hvannadalshnjúks mæld í dag Í dag munu rannsóknarmenn á vegum Landmælinga Íslands fljúga með mælitæki upp á Hvannadalshnúk í þeim tilgangi að mæla nákæmlega hæð hans en síðast var hæðin mæld fyrir rúmlega hundrað árum. 25.7.2005 00:01
Sjatnar í Jöklu Vatnsborð Jöklu hefur sjatnað til muna eftir að vatnsmagn hennar náði hámarki í fyrrakvöld með þeim afleiðingum að það flæddi yfir brúnna við Kárahnjúkastíflu í annað sinn á einu ári. 25.7.2005 00:01
Áheitaróður á hættuslóðum Kjartan Jakob Hauksson sem rær nú umhverfis landið lenti í óhappi á erfiðasta kafla ferðarinnar þegar fótstig brotnaði skammt frá Hornafirði og því afréð hann að leita í land í Skinneyjarhöfða því ekki væri á það hættandi að fara þessa leið á varafótsigi sem aðeins er ætlað í neyðartilfellum. 25.7.2005 00:01
Drógu kæru til baka Verkalýðsfélag Akraness, sem kært hafði fyrirtækið Sputnikbátar fyrir að hafa fimm pólska verkamenn í vinnu án tilskilinna leyfa, hefur dregið kæruna til baka. 25.7.2005 00:01
Ys og þys vegna breytinga "Ég var nýbúin að læra á það hvaða vagna ég ætti að taka og svo fór ég í vikufrí og þá er allt breytt og ég þarf að læra allt upp á nýtt," sagði Inga Berghäuser sem vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar hún beið eftir sínum vagni á Hlemmi í gær. 25.7.2005 00:01
Lax úr Breiðdalsá talinn eldislax Flest bendir til þess að eldislax hafi veiðst á stöng í Breiðdalsá síðastliðinn miðvikudag. Um er að ræða nærri 14 punda hrygnu sem veiddist í svonefndum Mið Eyjakrók og hafa hreistursýni úr laxinum verið send Veiðimálastofnun. 25.7.2005 00:01
Ögurstund rennur senn upp Klukkan tifar og senn líður að því að Davíð Oddsson utanríkisráðherra taki stefnumarkandi ákvörðun um það hvort Ísland standi við fyrri áform sín um að sækja um aðild að öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og hefji kosningabaráttu í því skyni. 25.7.2005 00:01
Kveikt í íbúðarhúsi á Egilsstöðum Lögregla telur víst að um íkveikju hafi verið að ræða þegar eldur kviknaði við íbúðarhús við Bláskóga á Egilsstöðum í gær. Mildi þykir að eldsins varð vart áður en hann læsti sig í húsið sjálft. 25.7.2005 00:01
Flóðið hefur náð hámarki sínu Flóðið í Jöklu við Kárahnjúka hefur náð hámarki sínu og er rennsli í ánni farið að minnka. Mest náði það um það bil hundrað og áttatíuföldu meðalrennsli Elliðaánna en eftir flóðið í fyrra var ekki búist við öðru flóði í Jöklu fyrr en eftir tíu til tuttugu ár. 25.7.2005 00:01
Kennsl borin á tvo tilræðismenn Vitað er hverjir tveir hryðjuverkamannanna eru sem gerðu tilraun til árásar í London í síðustu viku. Lundúnalögreglan handtók í dag tvo menn en tilræðismannanna er leitað og óttast að þeir leggi á ráðin um fleiri tilræði. 25.7.2005 00:01