Fleiri fréttir

Ölvaður á veghefli

Lögreglan á Egilsstöðum var á Fljótsdalsheiði við framkvæmdasvæði Kárahnjúka í gærmorgun þegar hún stöðvaði veghefilsstjóra sem var þar við vinnu grunaðan um ölvun í starfi.

Par með fíkniefni

Par var handtekið grunað um að fíkniefnamisferli. Það var lögreglan í Keflavík sem handtók parið. Fólkið hafði ekið í bíl eftir Reykjanesbrautinni, misst stjórn á honum og ekið út af.

Engin truflandi áhrif í útboði

"Í útboðsgögnunum voru engin skilyrði um að fyrirtæki mættu skila inn aðeins einu tilboði og í ljósi þess skiluðu nokkrir inn fleiri tilboðum og við getum ekki gert athugasemdir við það," segir Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri í Garðabæ, um gagnrýni á útboð bæjarins á byggingarlóðum við Bjarkarás.

Börkur í sjö og hálfs árs fangelsi

Börkur Birgisson, 25 ára Hafnfirðingur, var dæmdur í sjö og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir tilraun til manndráps og fjölda líkamsárása.

Hafnarfjörður lækkar álagningu

Bæjarráð Hafnafjarðar samþykkti í gær að leggja til við bæjarstjórn að lækka álagningarprósentu fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði um sjö prósent.

Féll á milli brúa

Maður um tvítugt var fluttur með minniháttar meiðsli á slysadeild eftir að hafa gert á milli tveggja brúa viðMiklubraut. Litlu munaði að bíllinn félli niður á Sæbraut fyrir neðan brýrnar.

Skoðanakannanir ráði ákvörðun

Danska ríkisstjórnin hefur boðað til þingkosninga, mörgum mánuðum áður en kjörtímabilinu lýkur. Forsætisráðherrann segist vilja ljúka kosningum fyrir sveitarstjórnarkosningar í haust, en stjórnmálaskýrendur segja hagstæðar skoðanakannanir hafa sitt að segja.

Vill gögn um ákvörðunartöku

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, vill fá tæmandi lista yfir símtöl, samtöl, fundi og samskipti vegna ákvörðunarinnar um stuðning Íslands við innrásina í Írak. Hann segir blasa við að lög hafi verið brotin við framkvæmdina og að forystumenn ríkisstjórnarinnar séu orðnir margsaga í málinu.

Renna hýru auga til Helguvíkur

Nýjasta álver Íslendinga gæti risið á Reykjanesi. Bandarískt álfyrirtæki hefur skoðað möguleika á byggingu álvers í Helguvík og brasilískt fyrirtæki skoðar einnig uppbyggingu manganverksmiðju á svæðinu.

Rannsaka erfðafræði áfengissýki

Íslensk erfðagreining og SÁÁ hafa snúið bökum saman með samstarfssamningi um rannsóknir á erfðafræði áfengissýki. Evrópusambandið styrkir verkefnið um 330 milljónir króna, sem er hæsta upphæð sem sambandið hefur veitt til rannsókna hér á landi.

Spilavíti og líkamsrækt í Airbus?

Hún er bæði of þung og of dýr en hún á samt að komast í loftið, risaþotan A380 sem var frumsýnd í dag. Um borð í henni verða í boði lystisemdir og líkamsrækt, að minnsta kosti svo lengi sem flugfélögin kjósa ekki að nota allt rýmið undir farþega og troða átta hundruð manns um borð.

Blóðbankinn hefur útrás

Blóðbankinn hefur hafið útrás, líkt og aðrir íslenskir bankar. Bankinn er byrjaður að skrá sjálfboðaliða í beinmergsgjafaskrá sem verður hluti af norsku beinmergsgjafaskránni. Alþjóðlegt samstarf skiptir sköpum, segir yfirlæknir Blóðbankans.

Íran sagt næsta skotmark

Næsta skotmark Bandaríkjastjórnar er Íran. Þessu heldur bandarískur rannsóknarblaðamaður fram og segir Bush forseta haka við löndin sem hann sagði hluta öxulveldis hins illa. Íranar segjast búnir undir árás.

Skilja illa ráðningarsamninga

Meira en 40 prósent innflytjenda á Austurlandi og Vestfjörðum hafa áhuga á að stofna til eigin reksturs. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem einnig leiðir í ljós að nærri tveir þriðju hlutar sama hóps skilja illa eða alls ekki ráðningarsamning sinn.

Hættan margfaldast við blæðingar

Hættan á að íþróttakonur slíti krossbönd margfaldast þegar þær eru á blæðingum eða hafa egglos, samkvæmt nýlegum rannsóknum. Verið er að undirbúa rannsókn á krossbandasliti hjá kvenfólki hér á landi.

Úttekt vegna lóðakaupa borgarinnar

Borgarfulltrúar R-listans samþykktu í gær tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar verði falið að gera úttekt á kaupum borgarinnar á svokölluðum Stjörnubíósreit við Laugaveg 86 - 94.

Vilja sameinast Austurbyggð

Niðurstöður skoðanakönnunar sem IMG-Gallup vann fyrir Fjarðabyggð voru kynntar bæjarráði í fyrradag. Í könnuninni var leitað eftir afstöðu íbúa til þess hvort selja ætti félagsheimilin í Fjarðabyggð og hvort sameina ætti nágrannasveitarfélög Fjarðabyggð. 

Veiðafæralaus skip með mokafla

Ekkert lát er á góðri loðnuveiði en veiðisvæðið er nú um 50 mílur út af Austfjörðum. Til að koma í veg fyrir að útgerðirnar brenni inni með óveiddan kvóta í lok vertíðar hafa sumar útgerðir, sem einnig eiga verksmiðjur, brugðið að það ráð að senda veiðarfæralaus skip á miðin til að sækja afla sem önnur skip hafa veitt.

Hordauður fugl við strendurnar

Náttúrufræðistofnun Íslands hefur beðið fuglaáhugamenn vítt og breitt um landið að láta vita ef vart verður við dauðan eða deyjandi svartfugl. Allt bendir til að svartfugl sé að drepast úr hor við Ísland, fjórða veturinn í röð, en fyrir þremur árum drápust tugir eða hundruð þúsunda svartfugla við strendur landsins vegna skorts á æti.

Verðir gæta eitt hundrað milljóna

Í Listasafninu á Akureyri gefur nú að líta það sem flesta dreymir um en fæstir fá; brakandi peningaseðla í bunkatali. Samtals 108 þúsund íslenskir peningaseðlar. Von er á fjölmörgum erlendum blaðamönnum til að fjalla um sýninguna. </font /></b />

Vara við hryðjuverkum í Aceh

Danska utanríkisráðuneytið sendi seint í gærkvöldi frá sér viðvörun til norrænna hjálparstarfsmanna um hugsanleg hryðjuverk í Aceh-héraði á Indónesíu í dag.

Mesic kjörinn forseti Króatíu

Stipe Mesic var endurkjörinn sem forseti Króatíu í gær. Hann hafði hlotið um 66 prósent atkvæða þegar nærri öll atkvæði höfðu verið talin. Jadranka Kosor, leiðtogi íhaldsmanna í Króatíu og keppinautur Mesic, hlaut 34 prósent atkvæða.

38 þúsund látnir á Srí Lanka

Yfirvöld á Srí Lanka segja að meira en 38 þúsund manns hafi farist í landinu vegna hamfaranna á annan í jólum. Vel á áttunda þúsund hefur því bæst á lista falinna í landinu síðan í gær. Tala látinna vegna hamfaranna er nú komin yfir 175 þúsund og hækkar enn.

Þrettán falla í árásum í Írak

Að minnsta kosti þrettán féllu í valinn í tveimur árásum uppreisnarmanna í Írak í morgun. Rétt utan við borgina Bakúba létust sex írakskir hermenn þegar uppreisnarmenn réðust að bækistöð þeirra. Skömmu síðar létust að minnsta kosti sjö þegar bílsprengja sprakk við lögreglustöð í borginni Baiji.

Zhao Zhiang látinn

Zhao Zhiang, fyrrverandi leiðtogi kommúnista í Kína, lést í nótt 85 ára að aldri. Dánarorsökin hefur ekki verið gefin upp en að sögn fréttamiðla í Kína hafði leiðtoginn fyrrverandi þjáðst af hjartakvillum og öndunarfærasjúkdómum um skeið. Zhiang var í stofufangelsi í fimmtán ár eftir að honum hafði verið komið frá völdum í kjölfar byltingarinnar á Torgi hins himneska friðar árið 1989.

Sporin komu upp um þjófana

Þrír menn voru handteknir undir morgun eftir að hafa brotist inn á skrifstofur Borgarskipulags og stolið þaðan tölvubúnaði. Lögregla rakti spor þeirra frá innbrotsstaðnum að heimili eins þeirra þar sem þeir voru allir gripnir og þýfið fannst.

Senda skip til að sækja afla

Góð loðnuveiði er enn norðaustur af landinu og hafa skipin að mestu sloppið við krappar lægðir að undanförnu. Eftir að kvóti var aukinn til muna í síðustu viku þurfa kvótahæstu útgerðirnar að nýta öll tækifæri til að ná afla sínum. Þær hafa nú gripið til þess ráðs að senda verkefnalaus skip á miðin til að sækja afla frá veiðiskipunum svo þau tefjist ekki við að sigla í land til löndunar.

Sjór flæddi upp á hringtorg við JL

Sjór flæddi upp á hringtorgið við JL húsið vestast á Hringbraut í nótt og drapst á nokkrum bílum þegar þeir óku út í vatnselginn. Lögregla aðstoðaði ökumenn og lokaði nærliggjandi götum á meðan starfsmenn borgarinnar hreinsuðu vettvanginn með stórvirkum vinnuvélum.

Illviðri víða um land

Illviðri brast á upp úr klukkan níu í gærkvöldi á Hellisheiði og varð að loka leiðinni en greiðfært var um Þrengslin. Vegurinn var ruddur snemma í morgun og opnaður á ný. Um svipað leyti gerði afleitt veður á Holtavörðuheiði þannig að ökumenn sem voru á leið á heiðina sneru við. Þar er enn stórhríð og ófært.

Erfiðleikar vegna veðurs í BNA

Gríðarleg ofankoma og hálka sem henni fylgir heldur áfram að valda íbúum víðs vegar um Bandaríkin erfiðleikum. Á laugardaginn urðu meira en hundrað árekstrar í norðvesturhluta Oregon vegna glerhálku og slæms skyggnis. Þá óku einnig fjölmargir ökumenn bílum sínum út af vegum vegna hálkunnar.

140 slasast í lestarslysi

Um 140 manns slösuðust, sumir lífshættulega, þegar troðfullri farþegalest var ekið á tóma flutningalest í neðanjarðarlestarkerfinu í Bangkok í Taílandi í morgun. Skelfing greip um sig meðal farþeganna sem ruddust út úr lestarvögnunum eftir áreksturinn. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir en aðeins er hálft ár síðan lestarkerfið var tekið í notkun.

Mengun getur aukið líkur á krabba

Ný rannsókn hefur leitt í ljós að mengun getur aukið líkurnar á því að barn fái krabbamein. Svo virðist sem börn sem eru í mengandi umhverfi á meðan þau eru í móðurkviði séu líklegri til að látast úr krabbameini fyrir sextán ára aldur.

Hvatt til aukinnar þróunaraðstoðar

Ef ríkustu þjóðir heims tvöfölduðu þróunaraðstoð sína væri hægt að bjarga lífi 30 milljóna barna og koma í veg fyrir að 250 milljónir manna liðu hungur. Þetta kemur fram í nýrri og viðamikilli skýrslu um þróunarmál sem birt var á vegum Sameinuðu þjóðanna í dag.

Fyrirskipar aðgerðir gegn herskáum

Mahmoud Abbas, nýkjörinn forseti Palestínu, hefur fyrirskipað palestínskum öryggissveitum að koma í veg fyrir árásir herskárra palestínskra samtaka á ísraelsk skotmörk. Þetta er stefnubreyting hjá palestínskum stjórnvöldum því hingað til hafa þau ekki gripið til aðgerða gegn hryðjuverkum heldur sagt að það sé ekki á þeirra valdi.

Varað við snjóflóðum við Ísafjörð

Vegagerðin hefur sent frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að snjóflóðahætta sé á vegum í nágrenni Ísafjarðar. Er fólk beðið um að vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu. Þetta á sérstaklega við um Óshlíð, Súðavíkurhlíð og Flateyrarveg.

Afsökunarbeiðni birt í vikunni

Afsökunarbeiðni til íröksku þjóðarinnar vegna stuðnings Íslands við innrásina í Írak mun birtast í bandaríska dagblaðinu New York Times í þessari viku, þeirri sömu og George W. Bush Bandaríkjaforseti verður settur í embætti.

Fólk hugi að smáfuglum

Fuglavernd hvetur fólk til að huga að smáfuglum þar sem þeir eiga erfitt með að ná sér í fæðu vegna snjóalaga. Einkum eiga skógarþrestir, sem hafa vetursetu hér á landi, erfitt uppdráttar við þessar aðstæður og sömuleiðis svartþrestir.

Danir glaptir inn á lúxussjúkrahús

Dæmi eru um að Danir, sem hafa legið hálfósjálfbjarga eftir slæmar byltur í Austurrísku-Ölpunum, láti glepjast af tilboðum björgunarmanna um að flytja þá á fyrsta flokks sjúkrahús til aðhlynningar. Danirnir og sjálfsagt fleiri þiggja þetta með þökkum en eru svo útskrifaðir með himinháa reikninga á bakinu.

Bandaríkjamenn inn á Evrópumarkað

Bandarískir útvegsmenn leita nú sem aldrei fyrr inn á Evrópumarkað með sjávarafurðir sínar í samkeppni við íslenskar afurðir vegna sterkrar stöðu evrunnar gagnvart dollaranum.

Rúm 1700 skiptu um trúfélag

1705 Íslendingar skiptu um trúfélag á síðasta ári eða 0,6 prósent landsmanna. Hlutfallið er svipað því sem verið hefur undanfarin ár, samkvæmt tölum frá Hagstofunni. Af þeim sögðu 66 prósent sig úr þjóðkirkjunni eða um ellefu hundruð manns. Nýskráningar voru flestar í Fríkirkjuna í Reykjavík, Fríkirkjuna í Hafnarfirði og kaþólsku kirkjuna.

Frjálslyndir eina alvöruandstaðan

Charles Kennedy, formaður Frjálslynda flokksins í Bretlandi, hóf kosningabaráttuna með látum í dag þegar hann lýsti því yfir að Íhaldsflokkurinn væri ekki lengur aðalstjórnarandstöðuflokkurinn í landinu. Eina raunhæfa andstaðan við Verkamannaflokkinn væru frjálslyndir.

Viðbúnaðarástand á Vestfjörðum

Almannavarnanefndir á norðanverðum Vestfjörðum, í samráði við Veðurstofu Íslands, lýstu fyrir stundu yfir viðbúnaðarástandi í öllum þéttbýlisstöðum á svæðinu vegna snjóflóðahættu.

Segir hættuna ekki mikla

Dönsk yfirvöld hafa varað danska þegna við yfirvofandi hryðjuverkaárás í Aceh-héraði í Indónesíu. Íslenskur hjálparstarfsmaður í héraðinu segir hins vegar að það sé almennt mat manna að hættan sé ekki mikil.

Þáðu eftirlaun í fullu starfi

Sjö fyrrverandi ráðherrar þáðu sautján milljónir króna í eftirlaun á síðasta ári á sama tíma og þeir gegndu fullu starfi á vegum hins opinbera. Launagreiðslurnar eru tilkomnar vegna lagabreytinga sem meðal annars höfðu það markmið að draga úr sókn gamalla þingmanna í embætti í stjórnkerfinu. Ráðherrarnir fyrrverandi eiga heima í almennum lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins að mati formanns BSRB.

Kristinn útilokar ekki framboð

Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir forystu flokksins úr takti við almennan vilja flokksmanna. Hann útilokar ekki að gefa kost á sér sem varaformaður flokksins.

Sjá næstu 50 fréttir