Blóðbankinn hefur útrás 18. janúar 2005 00:01
Blóðbankinn hefur hafið útrás, líkt og aðrir íslenskir bankar. Bankinn er byrjaður að skrá sjálfboðaliða í beinmergsgjafaskrá sem verður hluti af norsku beinmergsgjafaskránni. Alþjóðlegt samstarf skiptir sköpum, segir yfirlæknir Blóðbankans. Undirbúningur að stofnun íslensku stofnfrumugjafaskrárinnar, eða beinmergsgjafaskrár, hefur tekið fimm ár. Sjálfboðaliðum verður safnað í skrána hér á landi og upplýsingar sendar til norsku beinmergsgjafaskrárinnar, en hún er hluti af alþjóðlegu samstarfi þar sem meira en níu milljónir stofnfrumugjafa eru á skrá. Stefnt er að því að skrá 500 sjálfboðaliða á þessu ári og 2.500 á næstu fimm árum. Blóðbankinn hefur hingað til sinnt svokallaðri vefjaflokkun í tengslum við ígræðslu líffæra og stofnfrumna en sjúklingar sem þurfa á stofnfrumum að halda eru oftast með illkynja blóðsjúkdóma eða æxli. Virkir blóðgjafar geta orðið stofnfrumu- eða beinmergsgjafar á Íslandi en með stofnun beinmergsgjafaskrárinnar aukast einnig líkurnar á að sjúklingur hér á landi geti fengið stofnfrumur utan úr heimi. Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir Blóðbankans, segir að það skipti Íslendinga máli að vera þátttakendur í alþjóðlegu samstarfi og Blóðbankinn líti á þetta sem útrás hans á alþjóðlegan markað. Útrás einkenni íslenskt þjóðfélag í dag og Blóðbankinn sé þátttakandi í henni. Torstein Egeland hjá Ónæmisstofnun norska ríkisspítalans segir að hér á landi séu vefjaflokkar sem nauðsynlegt sé að hafa með í þessu alþjóðlega samstarfi því það séu sjúklingar annars staðar á Norðurlöndum eða í Bandaríkjunum sem þurfi á þeim að halda. Íslenskir sjúklingar njóti þess að fá stofnfrumur utan úr heimi og því sé rétt að vera með og bjóða sjúklingum um allan heim stofnfrumur héðan.
Fréttir Innlent Mest lesið Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Innlent Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Innlent Pilturinn er fundinn Innlent Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Erlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Erlent Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent Fleiri fréttir Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Sjá meira