Skoðanakannanir ráði ákvörðun 18. janúar 2005 00:01
Danska ríkisstjórnin hefur boðað til þingkosninga, mörgum mánuðum áður en kjörtímabilinu lýkur. Forsætisráðherrann segist vilja ljúka kosningum fyrir sveitarstjórnarkosningar í haust, en stjórnmálaskýrendur segja hagstæðar skoðanakannanir hafa sitt að segja. Danskir fjölmiðlar hafa undanfarið boðað að kosningar væru í vændum. Klukkan eitt í dag tilkynnti Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra og formaður Venstre-flokksins, úr ræðustól á danska þinginu að kosið yrði eftir 3 vikur. Skoðanakannanir undanfarið hafa verið hagstæðar fyrir forsætisráðherrann og flokk hans. En Rasmussen sagði sjálfur í dag að nauðsynlegt væri að ljúka þingkosningum fyrir sveitarstjórnarkosningar í haust. Þeim fylgi mikil forvinna við sameiningu sveitarfélaga, sem verði að ljúka á vordögum. Til stóð að kjósa í janúar en því var frestað vegna náttúruhamfaranna í Asíu. Jost Lytje Hansen námsmaður segir að sér lítist vel á að kosningar séu fram undan og hann voni að Danir kjósi stjórnarandstöðuna. Anders Fogh Rasmussen viti hvað hann sé að gera og hafi valið tíma sem henti honum. Á blaðamannafundi kl. 14 kynnti Rasmussen stefnumál Venstre og lagði áherslu á vísindarannsóknir, barnafjölskyldur og skattastoppið svokallaða, þ.e. að heildarskattprósenta hækki ekki. Kosningabaráttan hefur rúllað af stað og notuðu höfuðandstæðingar Venstre, Sósíaldemókratar, helgina til að kynna nýjar tillögur í atvinumálum sem miða að því að fjölga störfum í Danmörku um 50.000. Kosningabaráttan mun ekki síður snúast um menn en málefni, ekki síst frammistöðu Rasmussens á fyrsta kjörtímabili sínu sem forsætirsáðherra. Lars Gruhn deildarstjóri telur að Rasmussen hafi verið skynsamur forsætisráðherra en segir að hann sé ekki sammála stjórnmálastefnu hans. Hvað sem öllu líður er búið að gefa grænt ljós á kosningar í Danmörku, 8. febrúar.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Innlent Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Erlent Fleiri fréttir Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Sjá meira