Íran sagt næsta skotmark 18. janúar 2005 00:01
Næsta skotmark Bandaríkjastjórnar er Íran. Þessu heldur bandarískur rannsóknarblaðamaður fram og segir Bush forseta haka við löndin sem hann sagði hluta öxulveldis hins illa. Íranar segjast búnir undir árás. Öxull hins illa er nafnið sem Bush Bandaríkjaforseti gaf Írak, Norður-Kóreu og Íran í janúar árið 2002. Ári síðar hófst innrásin í Írak og nú heldur hinn þekkti rannsóknarblaðamaður Seymour Hersh því fram að nágrannaríkið Íran sé næst á dagskrá. Hersh segist hafa komist að því að Bandaríkjamenn hafi stundað miklar njósnir frá því í sumar til þess að safna upplýsingum um það sem Bush-stjórnin telji víðtæka, óupplýsta og leynilega kjarnorkuvopnaáætlun. Í augum ríkisstjórnar Bandaríkjanna ráði Íranar ekki aðeins yfir kjarnavopnum heldur hvetji þeir einnig til hryðjuverkastarfsemi og styðji í ríkari mæli uppreisnina í Írak. Þess vegna sé Íran skotmark nú. Aðspurður um hvort þetta komi í framhaldi af yfirlýsingu Bush um öxulveldi hins illa segist Hersh telja að svo sé. Hann telji að forsetinn hafi búið til lista yfir slík ríki. Hersh segir Bush og ráðgjafa hans hafa náð meira valdi yfir her og leyniþjónustum Bandaríkjanna en fordæmi séu um síðan spennan var sem mest á tímum Kalda stríðsins. Þessi verkfæri séu notuð til að réttlæta hverjar þær aðgerðir sem gripið hafi verið og verði til. Bush forseti neitar þessu. Hann segist ekki hafa lesið grein Hersh en varnarmálaráðuneytið hafi hafnað því sem fram hafi komið í henni og sagt það ósatt. Stefnan í málefnum Írans sé að eiga diplómatísk samskipti við ríkið og vinna með þjóðum heims að því að sannfæra Írana um að þróa ekki kjarnavopn. Það verði ávallt að tala skýrt um þessi mál og minna íranskan almenning á að í huga Bandaríkjamanna sé lýðræðið affarasælasti lífsmáti allra og að þeir standi með umbótasinnum í Íran. Sjálfir virðast Íranar ekki vissir um fyrirætlanir Bandaríkjamanna og varnarmálaráðherra landsins sagði í morgun að her Írans væri nógu öflugur til að takast á við innrásarlið.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Innlent Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Erlent Fleiri fréttir Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Sjá meira