Fleiri fréttir

Ekkert ákveðið um frekari aðstoð

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að ákvörðun um frekari fjárhagsaðstoð íslenskra stjórnvalda vegna flóðanna við Indlandshaf verði tekin í byrjun nýs árs. Þegar hefur verið safnað tugum milljóna hér á landi. Ríkisstjórnin hefur boðið Norðurlöndunum aðstoð við að flytja slasaða frá hamfarasvæðunum.

Engin brenna á Seyðisfirði

Búið er aflýsa brennu og flugeldasýningu sem vera átti á Seyðisfirði í kvöld. Að sögn Tryggva Harðarsonar bæjarstjóra var sú ákvörðun tekin vegna þess afleita veðurs sem spáð er að verði á Seyðisfirði og víðar á Austurlandi í kvöld.

Engin brenna við Eyjafjörð

Öll leyfi fyrir brennum á Eyjafjarðarsvæðinu í kvöld hafa verið afturkölluð vegna veðurs að sögn lögreglunnar á Akureyri. Brennan og flugeldasýningin sem vera áttu við Réttarhvamm verða haldnar á morgun klukkan 20.30. Engar áramótabrennur verða heldur í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði eða Seyðisfirði.

Ósmekklegt af Vinstri - grænum

Davíð Oddsson utanríkisráðherra segir það ósmekklegt af Vinstri - grænum að gera hörmungarnar við Indlandshaf að pólitísku máli. Davíð segir fjárframlag Íslands til hjálparstarfsins ekki skipta sköpum.

Gölluð flugeldategund innkölluð

Landsbjörg og lögreglan hafa innkallað eina tegund flugelda vegna galla. Mikil sala hefur verið á skoteldum en lögreglan biður forráðamenn barna og unglinga að gæta vel að því að þeir séu ekki að nota flugeldana á annan hátt en ætlast er til. Tvö alvarleg slys urðu í gær þegar skoteldar voru teknir í sundur. 

Tala látinna hækkar enn

Hátt í hundrað og þrjátíu þúsund manns eru nú taldir af eftir hamfarirnar við Indlandshaf á annan í jólum og er talið víst að sú tala eigi eftir að hækka töluvert. Heilbrigðisráðherra Indónesíu segir að líklega séu fleiri en hundrað þúsund látnir í landinu.

Ofsaveður um tíma á landinu

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur spáir ofsaveðri, eða 23-28 metrum á sekúndu, suðvestanlands síðdegis og um norðaustanvert landið í kvöld. Í slíku veðri getur verið hættulegt að vera úti við, lausir hlutir taka að fjúka og skemmdir geta orðið á föstum hlutum.

Líklega yfir 100 þúsund látnir

Æ fleiri lík finnast á flóðasvæðunum við Indlandshaf og útlitið er svart. Rauði krossinn býst við að rúmlega hundrað þúsund manns hafi dáið og kappkostar að koma vistum til eftirlifenda og sporna við farsóttum. </font /></b />

Bush lofar dyggum stuðningi

George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði á þriðjudag að Bandaríkin, Indland, Ástralía og Japan hefðu myndað alþjóðlegt bandalag sem myndi hafa umsjón með neyðaraðstoð og uppbyggingarstarfi á hamfarasvæðinu við Indlandshaf.

Bólusetning engin trygging

Mjög skæð inflúensa herjar nú á landsmenn og er víst að margir liggja í bælinu á milli jóla og nýárs. Þúsundir Íslendinga létu bólusetja sig í haust en í mörgum tilvikum dugar það ekki til, bólusettir leggjast samt í flensu.

Metár í fjölda fíkniefnabrota

Lögregla og tollayfirvöld tóku mun meira magn af amfetamíni og kókaíni heldur en í fyrra og síðustu ár þar á undan. </font /></b />

Varað við frekari flóðbylgjum

Indversk stjórnvöld vöruðu í morgun við nýjum flóðbylgjum á þeim svæðum Indlands, sem verst urðu úti í flóðbylgjunum á annan í jólum. Lögreglubílar óku þar um með gjallarhorn, þar sem fólk var hvatt til að forða sér frá ströndinni og sjónarvottar segja að skelfingu lostnir íbúar forði sér nú inn í land til öryggis.

7 uppreisnarmenn drepnir

Sádi-Arabískar öryggisveitir drápu í gær sjö herskáa uppreisnarmenn, þegar þær réðust inn í hús í Riyadh, stuttu eftir að tvær bílsprengjur sprungu í borginni. Bílarnir sem sprengdir voru í loft upp voru fyrir utan innanríkisráðuneytið og miðstöð öryggissveita í borginni. Fjórir menn særðust alvarlega í sprengingunum.

Aukafundur vegna uppsagnar

Bankaráð Íslandsbanka hefur verið boðað til aukafundar, eftir að Bjarni Ármannsson forstjóri bankans rak staðgengil sinn og aðstoðarforstjóra, Jón Þórisson, úr starfi í gær, en hann hætti þegar í stað. Ástæðan var sögð óbrúanlegur ágreiningur á milli þeirar tveggja.

Þúsunda Svía saknað

Óttast er að fórnarlömb hamfaranna við Indlandshaf seú á annað hundrað þúsund manns, því stöðugt finnast feliri látnir og nákvæmar fréttir hafa ekki borist frá öllum héruðum, þar sem flóðbylgjur gengu á land. Mun fleiri Svía er saknað á hamfarasvæðunum í Tælandi en þeirra 1400 sem yfirvöld hafa talið hingað til.

Snjóflóð úr Ólafsfjarðarmúla

Snjóflóð féll úr Ólafsfjarðarmúla um kvöldmatarleitið í gærkvöldi og lokaði veginum. Engin var á ferð um veginn þegar það féll og ruddu Vegagerðarmenn veginn í gærkvöldi. Upp úr hádegi í gær féllu nokkur snjóflóð á vegina um Óshlíð og á Súðavíkurveg við Ísafjarðardjúp og voru vegirnir ekki opnaðir á ný fyrr en á sjötta tímanum

Brunaði á sleða framan á bíl

Fimm ára stúlka fékk heilahristing þegar hún brunaði á sleða framan á bíl, sem ekið var eftir Seljalandsvegi á Ísafirði um átta leitið í gærkvöldi. Hún var þegar flutt á sjúkrahúsið en reyndist ekki meidd að öðru leiti. Hún var látin gista á sjúkrahúsinu í nótt til öryggis.

Stálu áfengi til skemmtanahalds

Lögreglan á Selfossi handtók sjö ungmenni í gær, grunuð um innbrot í þjónustumiðstöð Gesthúsa í bænum, þaðan sem fjórum kössum af bjór og fjörutíu áfengisflöskum var stolið. Í ljós kom að fyrst var brotist þar inn til að sækja vínföng í teiti, sem fólkið var í, og síðan var sótt meira eftir því sem á nóttina leið.

Dæmdur fyrir samræði við tólf ára

Ágúst Fannar Ágústsson hefur verið dæmdur í árs fangelsi fyrir samræði við tólf ára telpu sem var gestkomandi á heimili Ágústs á Akureyri í desember 2002. Hann var þá tvítugur að aldri. Ágúst hefur áður verið dæmdur fyrir að ganga í skrokk á kærustu sinni sem neitaði að fara fyrir hann út í sjoppu.

Snjór á óvenjulegum slóðum

Sjaldgæf sjón blasti við íbúum í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í morgun. Mikill snjór var í fjöllum í grennd við borgina Ras al-Kæma sem er í norðurhluta furstadæmana, en slíkri ofankomu eru íbúar á svæðinu ekki vanir, enda hitabeltisloftslag þar nánast allt árið um kring.

Íslendingar leggi sitt af mörkum

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs telur einboðið að Íslendingar leggi með myndarlegum hætti sitt af mörkum til hjálpastarfs og síðan uppbyggingar á hamfarasvæðunum í Suðaustur-Asíu. Flokkurinn segir Íslendinga þekkja af eigin raun þær fórnir sem sambúð við óblíð náttúruöfl geti kostað.

Óttast að 200 þúsund missi vinnu

Óttast er að minnst tvö hundruð þúsund manns sem störfuðu við ferðaþjónustu í Taílandi missi vinnuna sína vegna hamfaraflóðanna í suð-austur Asíu. Þetta kemur fram í taílenska dagblaðinu The Nation í dag. Ferðaþjónusta hefur verið mikilvægur iðnaður í landinu um árabil og skilað þjóðarbúinu sem samsvarar um sjö hundruð milljörðum íslenskra króna í tekjur árlega.

2 Íslendingar komnir í leitirnar

Tveir þeirra tíu íslendinga sem átti eftir að staðsetja eftir flóðin á Indlandshafi eru komnir í leitirnar en eitt nafn í viðbót er komið á listann. Þannig á enn eftir að staðsetja níu íslendinga á flóðasvæðunum. Íslenskt par sem statt var í grennd við Bangkok er nú komið í leitirnar en enn er leitað að öðru íslensku pari með barn.

Yfir 90 þúsund látnir

Mikil skelfing hefur gripið um sig á Indlandi vegna viðvörunar yfirvalda í landinu um að önnur flóðbylgja kunni að ríða yfir fljótlega. Hamfaraflóðin í Suðaustur Asíu hafa kostað hátt í hundrað þúsund mannslíf, þar af rúmlega fimmtíu þúsund bara á Indónesíu.

Styðja ákvörðunina

Meirihluti bankaráðs Íslandsbanka styður þá ákvörðun Bjarna Ármannssonar forstjóra bankans, að reka Jón Þórisson, staðgengil sinn, eins og hann gerði í gær. Um leið og fréttist af brottrekstrinum var gerð sú krafa að banakráð yrði kallað saman til aukafundar vegna málsins. Hann hófst klukkan hálftíu í morgun og stóð í röska klukkustund.

4 þúsund Svía saknað

Talið er að allt að fjögur þúsund Svía sé enn saknað eftir flóðin við Indlandshaf. Hátt í fimm hundruð Norðmanna er einnig saknað. Fregnir herma að mun fleiri Svía sé saknað á hamfarasvæðunum í Taílandi, en þeirra fjórtán hundruð, sem yfirvöld hafa talið hingað til.

5 milljónir allt of lág upphæð

Vinstri grænir segja fimm milljónir, sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita til hjálparstarfsins á hamfarasvæðunum, allt of litla upphæð, miðað við að þetta séu einhverjar mestu hörmungar sögunnar. Þeir skora á stjórnvöld að veita minnst þrjú hundruð milljónum króna til hjálparstarfsins.

Ekki vitað um snjóflóð í nótt

Ekki er vitað til þess að nein snjóflóð hafi fallið í nótt eftir að flóð féll úr Ólafsfjarðarmúla um kvöldmatarleitið í gærkvöldi og lokaði veginum. Engin var þar á ferð þegar það féll og ruddu Vegagerðarmenn veginn í gærkvöldi.

Mengunarslys rannsakað

Lögreglan á Patreksfirði rannsakar nú mengunarslys sem varð í höfninni þar í gærkvöldi, en tildrög þess eru með öllu ókunn. Menn urðu þess fyrst varir að ekki var allt með felldu, þegar megnan díselolíufnyk lagði með hægum andvara inn yfir bæinn. Við athugun kom í ljós að talsvert var af olíu í höfninni.

Ólátabelgir dregnir til ábyrgðar

Bæjarráð Grindavíkur ákvað á fundi sínum í gær að leita leiða til að draga þá menn til ábyrgðar sem stóðu fyrir ólátum sem urðu í bænum á jóladag. Sem kunnugt er var kveikt í áramótabrennu bæjarins í miklum skrílslátum sem brutust þar út.

Veitukapphlaupið heldur áfram

Jarðorkurisarnir Orkuveita Reykjavíkur og Hitaveita Suðurnesja halda áfram kapphlaupi sínu um að kaupa veitur vítt og breitt um Suðvesturlandið. Nýjasti leikurinn er að Orkuveita Reykjavíkur hefur keypt Austurveitu í Ölfusi sem er bændaveita með borholu í landi Gljúfurárholts, en þaðan er dreift heitu vatni á þónokkra bæi í Ölfusi.

Morgunkornið lækkar

Bandarískt morgunkorn sem keypt er til landsins fyrir dollara hefur lækkað í verði um 16% í sumum tilvikum. Könnun neytendasamtakanna sýnir að allar verslanir hafa lækkað verð á morgunkorni sé það borið saman við verð í byrjun ársins.

Staðfest að 115 þúsund hafi látist

Tala látinna vegna flóðbylgjunnar af völdum jarðskjálftans við Súmötru hefur skyndilega hækkað upp í meira en 115 þúsund. Skýringin á þessari miklu hækkun eru nýjar upplýsingar frá Indónesíu, þar sem áður hafði verið talið að 52 þúsund manns hefðu týnt lífi í flóðunum miklu.

Hafa eyðilagt efnahagslífið

Mikhail Khodorkovsky, fyrrverandi forstjóri Yukos olíurisans, sem nú situr í fangelsi, segir stjórnvöld í Kreml hafa skemmt rússneskt efnahagslíf með því að þvinga Yukos til gjaldþrots. Khodorkosvky segist ekki vera harmi sleginn þó að fyrirtæki hans sé nú á leið undir hendur hins opinbera og hann segist þakklátur fangelsisvistinni, sem hafi gert sér kleyft að íhuga og endurskoða líf sitt.

Vistir safnast upp á flugvöllum

Hjálparsamtök og erlend ríki kappkosta við að senda mat og lyf til hamfarasvæðanna við Indlandshaf, en dreifing vistanna er óskilvirk vegna samgönguerfiðleika og birgðirnar safnast upp á flugvöllum.

Aðsúgur gerður að ráðherra

Íbúar í norðurhluta Srí Lanka gerður aðsúg að Mahinda Rajapakse, forsætisráðherra landsins, þegar hann kom á svæðið til að bera eyðilegginguna af völdum flóðsins augum. Fólkið hafði verið að segja ráðherranum frá vandræðum sínum og hvað það skorti helst þegar tilkynning barst úr hátalarakerfi þar sem fólk var beðið um að tala ekki við hann.

Tveir dæmdir fyrir að eiga hass

Tveir menn voru dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða 28000 króna sekt fyrir að hafa haft í fórum sínum annars vegar 0,2 grömm af hassi og hins vegar hálft gramm af hassi. Ellegar sæti mennirnir sem eru um tvítugt sex daga fangelsi.

Ný heilsugæslustöð

Ný heilsugæslustöð í Hafnarfirði verður til húsa að Fjarðargötu 13 til 15 í norðurturni verslunarhússins Fjarðar. Samningur um leiguhúsnæðið var undirritaður milli heilsugæslunnar og Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda í dag. Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, staðfesti samninginn við þetta tækifæri.

Minnsti afli í 6 ár

Afli íslenskra skipa á árinu 2004 er áætlaður 1725 þúsund lestir, samkvæmt samantekt fiskistofu. Það er minnsti afli síðan 1998 þegar aflinn var 1678 þúsund lestir. Mestur var aflinn 1997 eða 2199 þúsund lestir. Þorskaflinn 2004 var 20 þúsund lestum meiri en árið 2003. Ýsu- og ufsaafli var líka talsvert meiri en árið áður.

Meiriháttar niðurskurður

Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna mun á næstu sex árum skera niður kostnað sinn um 60 milljarða Bandaríkjadala. Meðal niðurskurðaraðgerða sem fyrir dyrum standa er fækkun flugmóðursskipa og eins verður þróunarverkefnum fyrir hönnun hátæknivopna seinkað.

Fríhöfnin tekur við rekstri

Fríhöfnin ehf., nýstofnað dótturfélag Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf., tekur við verslunarrekstri Flugstöðvarinnar núna um áramótin. Fríhafnarverslunin verður þar með aðskilin rekstri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, bæði stjórnunar- og rekstrarlega. Fasteignarekstur flugstöðvarinnar, ásamt stoðsviðum, heyrir áfram undir Flustöðina.

Ljósleiðaranet á Seltjarnarnesi

Seltjarnarnesbær og Orkuveita Reykjavíkur undirrituðu í dag samning um uppbyggingu ljósleiðaranets á Seltjarnarnesi. Í samningnum er gert ráð fyrir að a.m.k. 85% húsa á Seltjarnarnesi verði tengd ljósleiðarakerfi Orkuveitunnar í lok næsta árs og öll hús í bæjarfélaginu verði tengd um mitt ár 2006.

Mesta mannfall á friðartímum

Fjölskyldur hafa tvístrast, foreldrar hafa misst börn sín og börn eru orðin munaðarlaus eftir hamfarirnar við Indlandshaf. Norðurlandaþjóðirnar hafa orðið illa úti. Þetta er mesta mannfall á friðartímum í Skandinavíu.

Þjóðarsorg í Skandinavíu

Gríðarleg óánægja er með framgöngu sænskra og norskra stjórnvalda eftir hamfarirnar í löndunum við Indlandshaf um jólin. Búið er að lýsa yfir þjóðarsorg í Noregi og Svíþjóð á nýársdag. Sænsk fyrirtæki senda stuðning í stórum stíl á hamfarasvæðið. </font /></b />

Sigur Júsjenkós stendur

Hæstiréttur Úkraínu hafnaði í dag kröfu Viktors Janúkóvíts, forsætisráðherra, um að forsetakosningarnar á sunnudag yrðu dæmdar ógildar. Rétturinn taldi að Janúkóvíts hefði ekki tekist að sýna fram á að kosningarnar hefðu verið ólöglegar.

Sjá næstu 50 fréttir