Styðja ákvörðunina 30. desember 2004 00:01
Meirihluti bankaráðs Íslandsbanka styður þá ákvörðun Bjarna Ármannssonar forstjóra bankans, að reka Jón Þórisson, staðgengil sinn, eins og hann gerði í gær. Um leið og fréttist af brottrekstrinum var gerð sú krafa að banakráð yrði kallað saman til aukafundar vegna málsins. Hann hófst klukkan hálftíu í morgun og stóð í röska klukkustund. Einar Sveinsson formaður bankaráðs sagði í viðtali við Morgunblaðið í morgun að Bjarni hafi tilkynnt sér um brottreksturinn áður en hann var gerður opinber, en tjáði sig ekki um það hver hefði óskað eftir aukafundi í bankaráði, en eftir því sem fréttaastofan kemst næst mun það hafa verið Helgi Magnússon, en ekki náðist tal af honum nú fyrir fréttir. Eftir fundinn sagði Einar Sveinsson að Bjarni Ármannsson nyti fulls trausts bankaráðsins, þannig að brottreksturinn stendur óbreyttur. Bjarni Ármannsson sagði hinsvegar eftir fundinn að þar hafi verið tekist á og það hafi ekki allir gengið sáttir af fundinum. Hann vísaði einnig á bug þeirri fullyrðingu Jóns Þórissonar að brottreksturinn hafi löngu verið ákveðinn, eða allt frá því að Jón lýsti þeirri skoðun sinni í haust að vel kæmi til greina að sameina Íslandsbanka og Landsbankann, en Bjarni er því andvígur. Þá vildi Bjarni ekki svara því hvort ráðning Jóns á Sveini Hannessyni í stöðu útibússtjóra hefði haft eitthvað að segja, en Einar Sveinsson formaður bankaráðs segir að Bjarni hafi ráðningamál á sínum höndum. Niðurstaða bankaráðs hafi verið að lýsa fullum stuðningi við hann.
Fréttir Innlent Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira