Þjóðarsorg í Skandinavíu 30. desember 2004 00:01
Svíar krefjast þess að Laila Freivalds utanríkisráðherra segi af sér. Hún liggur undir ámæli fyrir að hafa farið á óperusýningu á sunnudagskvöldið eftir að flóðið varð. Sendiráðið í Bangkok hafi látið vita um flóðin aðfaranótt sunnudags. Um morguninn hafi verið ljóst að hundruð hafi látið lífið og að 15 þúsund Svíar hafi verið á svæðinu. Ættingjar hafi hringt í utanríkisráðuneytið. Starfsmenn sendiráðsins í Bangkok hafi farið á svæðið en utanríkisráðherrann hafi ekki verið látinn vita fyrr en rétt fyrir hádegi á sunnudag. Hún hafi svo ákveðið að sjá óperusýninguna "Góði uppreisnarmaðurinn" á sunnudagskvöld þó að tala látinna hafi numið um 10 þúsund. Ráðherrann segist ekki hafa hugsað út í að það væri kannski ekki við hæfi að sækja slíka sýningu við þessar aðstæður. Starfsmenn sendiráðs Svía eru líka harðlega gagnrýndir. Svíar sem hafa haft samband við sendiráðið segjast hafa fengið þau svör að haft yrði samband. Það hafi aldrei orðið. Aðrir segjast hafa fengið þau svör frá sendiráðsstarfsmönnunum að þeir hafi það jafn slæmt og það fólk sem leitar eftir aðstoð. Í vefmiðlum birtast neyðaróp frá slösuðum Skandinövum í löndunum við Indlandshaf, beiðni um aðstoð og flutning heim. Fyrstu Norðmennirnir og Svíarnir lentu rétt fyrir hádegi í gær og var búist við að straumurinn yrði stöðugur. Slasaðir og börn voru látnir ganga fyrir. Svíar búast við að hafa ferjað allt sitt fólk heim á þriðjudag og Norðmenn á sunnudag. Björgunaraðgerðir Finna hafa gengið vel. Finnarnir voru færri en Norðmennirnir og Svíarnir. Skandinavísku þjóðirnar eru harmi slegnar. Búið er að lýsa yfir þjóðarsorg í Noregi og Svíþjóð á nýársdag. Fánar verða dregnir í hálfa stöng og skorað á almenning að gera slíkt hið sama. Fyrirtæki í Svíþjóð senda stuðning í stórum stíl á hamfarasvæðið, lyf, fatnað, teppi og aðrar nauðsynjar sem geta komið sér vel við björgunarstörfin. Samtök atvinnulífsins í Svíþjóð hafa skorað á fyrirtæki að senda peninga eða annan stuðning.
Asía - hamfarir Fréttir Innlent Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Konan sem var borin út er látin Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira