Innlent

Ný heilsugæslustöð

Ný heilsugæslustöð í Hafnarfirði verður til húsa að Fjarðargötu 13 til 15 í norðurturni verslunarhússins Fjarðar. Samningur um leiguhúsnæðið var undirritaður milli heilsugæslunnar og Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda í dag. Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, staðfesti samninginn við þetta tækifæri. Miðað er við að hönnun húsnæðisins hefjist strax eftir áramót og að hafist verði handa við að innrétta húsnæðið í febrúar. Áætlað er að framkvæmdum ljúki í síðasta lagi 1. ágúst 2005 og að starfræksla stöðvarinnar geti hafist nokkrum vikum síðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×