Fleiri
Kólnar á Kárahnjúkum 12.11.2004 00:01 Jarðsettur í skugga óvissu Leiðtogi Palestínumanna var jarðsettur í skugga sorgar og átaka í dag. Enginn veit hvað varð Jassir Arafat að aldurtila, og þó að hann hafi verið grafinn hefur hann ekki enn verið lagður til hinstu hvílu. 12.11.2004 00:01 213 bílar keyptir 12.11.2004 00:01 Dagsyfja algeng 12.11.2004 00:01 Gullnáma fyrir grúskara 12.11.2004 00:01 Katri hin finnska slær í gegn Katri Raakel Tauriainen hefur breytt mörgum heimilum í Innlit/Útlit á Skjá einum. Hún er sögð fyrsti útlendingurinn sem slær í gegn í íslenskum sjónvarpsþætti. </font /></b /> 12.11.2004 00:01 Krefst um eins árs fangelsis Saksóknari krafðist þess að tuttugu og eins árs maður, sem framdi vopnað bankarán í útibúi Búnaðarbanka Íslands á Vesturgötu í Reykjavík 17. nóvember fyrir ári síðan, fengi í kringum tólf mánaða fangelsisdóm. Aðalmeðferð málsins lauk í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. 12.11.2004 00:01 Krefst refsingar Aðalmeðferð var í máli gegn Jóni Ragnarssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra og stjórnarformanni Lykilhótela, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Jón var ákærður af ríkislögreglustjóra fyrir umboðssvik um 37 milljón króna lán í nafni Lykilhótela. 12.11.2004 00:01 Áfram í varðhaldi Gæsluvarðhald hefur verið framlengt um tvær vikur yfir manni sem handtekinn var í lok október vegna rannsóknar á einu stærsta fíkniefnamáli síðari ára. Maðurinn var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald í lok október. 12.11.2004 00:01 Málið sent saksóknara Lögreglurannsókn á líkamsárás í Öxnadal aðfaranótt fimmta ágúst er lokið og verður málið sent ríkissaksóknara eftir helgi. Sá grunaði er talinn hafa barið annan mann með hafnaboltakylfu í höfuðið þannig að hann slasaðist alvarlega. 12.11.2004 00:01 Ekki ráðskast með Olíudreifingu Forsvarsmenn Olíufélagsins settu það skilyrði fyrir samvinnu við Samkeppnisstofnun, að ekkert yrði ráðskast með Olíudreifingu. Þetta kom fram við yfirheyrslur Ríkislögreglustjórans yfir stjórnarformanni Olíufélagsins. 12.11.2004 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Bandaríkjamanni rænt í Írak Bandaríkjamanni hefur verið rænt í Írak, og sendi írakskur hryðjuverkahópur frá sér yfirlýsingu þess efnis að hann hefði manninn í haldi. Arabísk sjónvarpsstöð sýndi myndbandsupptöku af manninum, sem starfar sem óbreyttur stjórnandi á flugvellinum í Bagdad. 12.11.2004 00:01
6 látast í jarðskjálfta Öflugur jarðskjálfti kostaði sex manns lífið í Indónesíu í morgun. Fjörutíu og sex hið minnsta slösuðust, en skjálftinn mældist sex á richter. Fjöldi bygginga varð fyrir skemmdum og nokkur fjöldi eftirskjálfta hefur mælst. Jarðskjálftans var mest vart á eynni Alor, þar sem um hundrað og sjötíu þúsund manns búa í talsverðri fátækt. Sökum frumstæðra samgöngumannvirkja eiga björgunarmenn erfitt um vik með að koma fólki til bjargar. 12.11.2004 00:01
Rússar banna reykingar Rússar hyggjast banna reykingar á opinberum vettvangi. Frumvarp liggur nú fyrir rússneska þinginu, þar sem lagt er til að reykingar verði bannaðar á vinnustöðum og sjúkrahúsum, einungis verði leyft að reykja á tilgreindum reykingasvæðum í opinberum byggingum og sala tóbaks verði bönnum í íþróttahúsum og líkamsræktarstöðvum. 12.11.2004 00:01
Blair í Hvíta húsinu George Bush, Bandaríkjaforseti, og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ræða í dag saman í Washington og verða málefni Miðausturlanda efst á baugi. Búist er við því að Bush geri við það tækifæri grein fyrir hugmyndum sínum um framtíð friðarferlisins þar eftir fráfall Jassirs Arafats. 12.11.2004 00:01
Útför í skugga óvissu Útför Jassirs Arafats fór fram í Egyptalandi í morgun í skugga óvissu um banamein hans, sögusagna um himinháar lífeyrisgreiðslur til ekkju hans og ringulreiðar um eftirmenn. Leiðtogar frá yfir fimmtíu ríkjum voru viðstaddir útförina í Kairó í morgun, en almenningur fékk ekki að taka þátt í athöfninni. 12.11.2004 00:01
Dæmdir til bóta vegna nauðgunar Þrír menn voru dæmdir til að greiða konu skaðabætur í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Konan höfðaði skaðabótamál á hendur mönnunum, og íslenska ríkinu vegna hópnauðgunar. Ríkissaksóknari hafði tvívegis neitað að taka málið upp þar sem framburður mannanna þriggja þótti vega þyngra en frásögn konunnar og framkomin gögn dygðu ekki til sakfellingar. 12.11.2004 00:01
Hart barist í Fallujah Loftárásir standa nú yfir á borgina Mósúl í Írak, og harðir bardagar standa í Fallujah. Í Bagdad berjast þjóðvarðliðar við skæruliða. Mikið mannfall hefur verið undanfarinn sólarhring. Átökin í Írak eru í raun og veru stríð. Bandaríkjamenn segjast hafa meirihluta borgarinnar Fallujah í Írak á valdi sínu, en átök við skæruliða og hryðjuverkamenn halda þó áfram í suðurhluta borgarinnar. 12.11.2004 00:01
Lax og sjóbirtingur saman í sæng Fundist hafa seiði í norsku laxveiðiánni Drivu í Swunndal, sem eru blendingar af laxi og sjóbirtingi. Samkvæmt upplýsingum norsku náttúrurannsóknastofunnar er talið sennilegt að bæði villtur lax og eldislax hafi tekið þátt í hrygningunni með sjóbirtingnum. 12.11.2004 00:01
Krefst grundvallarbreytinga Oddviti Bláskógabyggðar segir að gera verði grundvallarbreytingu á uppbyggingu og starfsemi margra sveitarfélaga, verði fólki heimilað að eiga lögheimili í sumarbústöðum, eins og Héraðsdómur Reykjavíkur komst að niðurstöðu um, í gær. 12.11.2004 00:01
Leikarnir langt fram úr áætlun Kostnaður Grikkja vegna ólympíuleikanna í sumar var helmingi meiri en áætlanir sögðu til um. Aðeins ári fyrir leikana hljóðaði kostnaðaráætlun upp á tæpa fimm milljarða evra, eða nærri fjögurhundruð og fjörutíu milljarða króna. Nú, þegar uppgjör liggur fyrir, er ljóst að leikarnir kostuðu Grikki um níu milljarða evra, um sjöhundruð og níutíu milljarða króna. 12.11.2004 00:01
29 handteknir í Hollandi Lögregla í Hollandi réðst á meintar æfingabúðir verkamannaflokks Kúrdistans í morgun og handtók þar tuttugu og níu. Talið er að skæruliðar á vegum flokksins hafi æft í búðunum. Lögregluyfirvöld í Hollandi vilja ekki tjá sig um málið, en fyrr í vikunni bannaði hollenskur dómstóll framsal eins leiðtoga flokksins til Tyrklands. 12.11.2004 00:01
Lög á kennaraverkfallið Ríkisstjórnin hefur samþykkt að setja lög á kennaraverkfallið. Alþingi var kvatt saman í morgun og samþykkt var að taka frumvarpið á dagskrá með afbrigðum. Formaður Kennarasambandsins segir að þetta sé svartur dagur fyrir kennara. 12.11.2004 00:01
Netviðskipti í gríðarlegri sókn Reiknað er með að minnsta kosti 50% aukningu á netviðskiptum í Danmörku fyrir jólin. Netviðskipti aukast sífellt og það eru ekki lengur bókaverslanir, plötubúðir og ferðaskrifstofur sem sitja einar að Netviðskiptum. Gæði og öryggi Netviðskipta hafa aukist mikið á undanförnum árum og endurspeglast það í aukinni sölu. 12.11.2004 00:01
Byssumaður gefur sig fram Belgískur byssumaður, sem drap fjóra og slasaði tvo, þegar hann gekk berseksgang með byssu sína í gær, hefur gefið sig fram og játað á sig verknaðinn að sögn lögregluyfirvalda í Belgíu. Atvikið átti sér stað í borginni Ghent í Vesturhluta Belgíu í gærkvöld og er talið að fjölskylduerjur hafi orðið þess valdandi að maðurinn sleppti sér með fyrrgreindum afleiðingum. 12.11.2004 00:01
Frumvarp verði afgreitt í dag Umræða um lög á kennaraverkfallið stendur enn yfir á Alþingi. Vonast er til að hægt verði að afgreiða frumvarpið til allsherjarnefndar í dag og afgreiða það síðan sem lög frá Alþingi. Skólahald gæti því orðið með eðlilegum hætti á mánudag. 12.11.2004 00:01
Fordómar aukast Fordómar gegn útlendingum hafa aukist mikið á Íslandi á síðustu árum, samkvæmt nýrri könnun Gallup. Þeim sem eru jákvæðir gagnvart því að leyfa fleiri útlendingum að vinna hérlendis hefur fækkað um fjórtán prósent frá síðustu könnun árið 1999. Þá voru þeir 42% en eru 28% nú. Reykvíkingar eru jákvæðari en aðrir landsmenn og jákvæðnin eykst eftir því sem menntun er meiri. 12.11.2004 00:01
Hröklast úr starfi fréttastjóra Einn þekktasti fréttamaður Ítalíu, sem er fréttastjóri á stærstu sjónvarpsstöðinni í eigu Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu, var í gær rekinn. Fréttastofan hefur haft orð á sér fyrir að vera sú sjálfstæðasta af fjölmörgum fréttastofum í eigu Berlusconis og hefur brottreksturinn vakið mikla reiði 12.11.2004 00:01
Vill skaðabætur fyrir heitt kaffi Rússnesk kona hefur höfðað mál á hendur Hamborgararisanum McDonalds í kjölfar þess að hún brenndi sig á kaffi sem hún keypti í einu af fjölmörgum hamborgaraútibúum fyrirtækisins í Moskvuborg. 12.11.2004 00:01
Ætla að hefna Arafats Skæruliðar í Palestínu, sem eru sannfærðir um að Jasser Arafat hafi verið byrlað eitur, segjast ætla að hefna sín á Ísraelsmönnum, sem þeir segja bera ábyrgð á dauða hans. Samtök skæruliðanna, sem skýrt hafa sig: „Sveit Yassers Arafat," segjast munu ráðast á kjarnann á ísraelsku samfélagi og engar málamiðlanir komi til greina. 12.11.2004 00:01
Zarqawi hvetur skæruliða til dáða Skæruliðinn Abu-Musab al-Zarqawi hefur sent frá sér upptöku, þar sem hann hvetur bardagamenn í borginni Fallujah til að láta ekki deigann síga og halda áfram að láta Bandaríkjamenn finna fyrir sér. Á upptökunni segir að vilji guðs muni á endanum koma fram og vindar hins heilaga stríðs muni blása hinum illu öflum um koll. 12.11.2004 00:01
Ríkið græddi 600 milljónir Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður telur að tekjur ríkisins af virðisaukaskatti á eldsneyti hafi aukist um 600 milljónir vegna ólögmæts samráðs olíufélaganna. Nauðsynlegt sé að aðili eins og Ríkisendurskoðun geri á því úttekt hvað mikið af ránsfeng olíufélaganna fór í ríkissjóð. 12.11.2004 00:01
Flugherinn ekki að taka við Robert McCormick nýr yfirmaður varnarliðsins er ofursti í flugher Bandaríkjanna. Hann segir í samtali við Víkurfréttir í dag að breytingin þýði ekki að flugherinn sé að taka við rekstri varnarstöðvarinnar af flughernum. 12.11.2004 00:01
Allir á vetrardekk Fyrsti snjór vetrarins sem heitið getur í Reykjavík varð til þess að örtröð hefur verið hjólbarðaverkstæðum í dag. Þegar Reykvíkingar vöknuðu í morgun voru götur borgarinnar snævi þaktar. Snjórinn var reyndar ekki mikill en þó nægilegur til að ökumenn þyrftu að aka með gát vegna hálku. 12.11.2004 00:01
Fundað meðal leikskólakennara Samninganefnd leikskólakennara hefur verið boðuð til fundar á mánudag vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem er kominn upp í kjaradeilu grunnskólakennara. Á fundinum á að taka ákvörðun um hvort vísa skuli kjaradeilu félagsins og launanefndarinnar strax til sáttasemjara og boða til atkvæðagreiðslu um verkfall leikskólakennara frá og með þriðja janúar. 12.11.2004 00:01
Byggingarleyfi fellt úr gildi Úrskurðarnefnd skipulags og byggingarmála hefur fellt byggingarleyfi vegna framkvæmda við nýtt hótel í Eimskipafélagshúsinu úr gildi. Framkvæmdir hafa því verið stöðvaðar. Nágrannar kærðu ákvörðun byggingafulltrúa um að veita takmarkað byggingarleyfi fyrir framkvæmdinni 12.11.2004 00:01
Allsherjarnefnd fundar um verkfall Fundur allsherjarnefndar vegna lagafrumvarps um kennaraverkfallið hófst klukkan fjögur. Deilendur hafa verið kallaðir til fundar við nefndina. Umræða um lög á kennaraverkfallið stóðu sleitulaust yfir á alþingi frá þvi klukkan hálf ellefu í morgun til hálf fjögur. 12.11.2004 00:01
Rykið dustað af friðarferlinu Vonir eru bundnar við það að friðarviðræður fari aftur af stað nú þegar Jasser Arafat er fallinn frá. Palestínumenn hafa 59 daga til að kjósa sér arftaka. 12.11.2004 00:01
ÓB með lægsta verðið Orkan bauð í gær lægsta verðið á 95 oktana bensíni. Lítrinn kostaði 102,6 krónur við Eiðistorg en athygli vekur að stöðin býður sama verð í Njarðvík og á Súðavík en þar opnaði Orkan nýja stöð fyrir skömmu. 12.11.2004 00:01
492 spilakassar í Reykjavík Alls eru 492 spilakassar í Reykjavík að því er fram kemur í svari borgaryfirvalda við fyrirspurn borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn, segist telja að þúsundir spilafíkla séu í borginni og ástandið sé mjög alvarlegt. 12.11.2004 00:01
Vilja fá dómi hnekkt Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hyggst freista þess að fá hnekkt fyrir Hæstarétti þeim dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem heimilar fimm manna fjölskyldu að eiga lögheimili í sumarbústað. Oddvitinn segir slíkt ekki ganga upp við núverandi aðstæður. 12.11.2004 00:01
Garðabær braut stjórnsýslulög Garðabær braut stjórnsýslulög með því að ganga ekki frá fráveitukerfinu við iðnaðahverfið í Molduhrauni á viðunandi hátt. 12.11.2004 00:01
Tæknimál yfir kjúklingum Félagar í Skýrslutæknifélaginu koma saman til hádegisverðarfundar á Grand hóteli í dag og spjalla um tungutak í tæknigeiranum. Er það í tilefni af degi íslenskrar tungu sem er á morgun. Erindi verða flutt og meðal annars kynntur staðallinn ÍST 130:2004 Upplýsingatækni - Íslenskar kröfur. 12.11.2004 00:01
Verkfall kennara bannað með lögum Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra lagði í gær fram frumvarp á Alþingi sem gerir ráð fyrir því að nærri 7 vikna löngu verkfalli kennara verði bannað þannig að kennsla í grunnskólum geti hafist á mánudag. Alþingi lögfestir frumvarpið væntanlega í dag. 12.11.2004 00:01
Láta eigið fé duga til framfærslu Fimmtán hundruð manns sem náð hafa 67 ára aldri hafa aldrei sótt um ellilífeyri til Tryggingastofnunar ríkisins. Í þeim hópi eru tveir sem verða aldargamlir á árinu. Ástæður þessa eru helst þær að viðkomandi eigi nóg til hnífs og skeiðar en ellilífeyrir er tekjutengdur og skerðist þegar fólk hefur 143 þúsund krónur í atvinnutekjur á mánuði og/eða fjármagnstekjur upp á 286 þúsund. 12.11.2004 00:01
Jarðsettur í skugga óvissu Leiðtogi Palestínumanna var jarðsettur í skugga sorgar og átaka í dag. Enginn veit hvað varð Jassir Arafat að aldurtila, og þó að hann hafi verið grafinn hefur hann ekki enn verið lagður til hinstu hvílu. 12.11.2004 00:01
Katri hin finnska slær í gegn Katri Raakel Tauriainen hefur breytt mörgum heimilum í Innlit/Útlit á Skjá einum. Hún er sögð fyrsti útlendingurinn sem slær í gegn í íslenskum sjónvarpsþætti. </font /></b /> 12.11.2004 00:01
Krefst um eins árs fangelsis Saksóknari krafðist þess að tuttugu og eins árs maður, sem framdi vopnað bankarán í útibúi Búnaðarbanka Íslands á Vesturgötu í Reykjavík 17. nóvember fyrir ári síðan, fengi í kringum tólf mánaða fangelsisdóm. Aðalmeðferð málsins lauk í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. 12.11.2004 00:01
Krefst refsingar Aðalmeðferð var í máli gegn Jóni Ragnarssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra og stjórnarformanni Lykilhótela, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Jón var ákærður af ríkislögreglustjóra fyrir umboðssvik um 37 milljón króna lán í nafni Lykilhótela. 12.11.2004 00:01
Áfram í varðhaldi Gæsluvarðhald hefur verið framlengt um tvær vikur yfir manni sem handtekinn var í lok október vegna rannsóknar á einu stærsta fíkniefnamáli síðari ára. Maðurinn var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald í lok október. 12.11.2004 00:01
Málið sent saksóknara Lögreglurannsókn á líkamsárás í Öxnadal aðfaranótt fimmta ágúst er lokið og verður málið sent ríkissaksóknara eftir helgi. Sá grunaði er talinn hafa barið annan mann með hafnaboltakylfu í höfuðið þannig að hann slasaðist alvarlega. 12.11.2004 00:01
Ekki ráðskast með Olíudreifingu Forsvarsmenn Olíufélagsins settu það skilyrði fyrir samvinnu við Samkeppnisstofnun, að ekkert yrði ráðskast með Olíudreifingu. Þetta kom fram við yfirheyrslur Ríkislögreglustjórans yfir stjórnarformanni Olíufélagsins. 12.11.2004 00:01