Fleiri fréttir

Of stuttur fyrirvari á landsþingi

Ungir jafnaðarmenn í Hafnarfirði ætla ekki að mæta á landsþing Ungra jafnaðarmanna um næstu helgi, vegna stutts fyrirvara. Þingið verður haldið í Hveragerði um næstu helgi. Þar mun fara fram málefnustarf, lagabreytingar og kosið í stjórnir. Andrés Jónsson, núverandi formaður, er einn í framboði til formanns, og því sjálfkjörinn.

Bati í rekstri Flugleiða

Flugleiðasamstæðan hagnaðist um 12 milljónir króna eftir skatta á fyrri helmingi ársins. Á sama tíma í fyrra var rúmlega 900 milljóna tap. Þetta er í þriðja skipti frá stofnun félagsins sem hagnaður er af rekstrinum á fyrri hluta ársins, en miklar árstíðasveiflur eru jafnan í rekstrinum. Þrátt fyrir tap á fyrstu 6 mánuðum ársins í fyrra var hagnaðurinn 1,4 milljarðar.

Aðeins einn umsækjandi

Séra Bolli Pétur Bollason er eini umsækjandinn um embætti prests í Seljakirkju í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra sem auglýst var laust frá 1. september næstkomandi. Umsóknarfrestur rann út 11. ágúst síðastliðinn.

Amazing Race á Svartsengi

Nú er verið að taka upp sjöttu seríu hins heimsfræga raunveruleikaþáttar The Amazing Race á Íslandi. Serían verður frumsýnd í Bandaríkjunum þann 25. september næstkomandi. Það var ljósmyndari Víkurfrétta sem komst á snoðir um tökurnar við Svartsengi í gær, en í morgun þustu keppnisliðin í átt til Reykjavíkur, nema eitt lið sem villtist til Reykjanesbæjar.

Tvöföldun Hallsvegar skipulagsslys

Grafarvogsbúar eru margir ósáttir við tvöföldun Hallsvegar og tengingu nýs hverfis við Sundabraut um hann. Þetta þýðir 60 þúsund bíla umferð á sólarhring í gegnum skipulagt hverfi, og er skipulagsslys, segir einn íbúanna.

Grilla til fyrir fanga í svelti

Yfirstjórn fangelsis í Ísrael hefur ákveðið að reyna að lokka palestínska fanga úr mótmælasvelti, með því að grilla lambasteikur fyrir utan klefa þeirra. Fangarnir eru 1500 talsins, og neituðu að borða til þess að leggja áherslu á kröfur sínar um betri aðbúnað.

Hóta verkfalli á ferðahelgi

Starfsmenn breska flugfélagsins British Airways hóta að leggja niður vinnu í sólarhring á einni mestu ferðahelgi ársins í Bretlandi í lok ágúst, og krefjast rúmlega tíu prósenta launahækkunar. Um er að ræða ríflega 3000 starfsmenn við innritun. Þeir hafa þegar hafnað einu tilboði, en búist er við að nýtt tilboð verði lagt fram fljótlega.

Málverkastuldur og hundsbit

Síðdegis á sunnudag var lögrelunni í Reykjavík tilkynnt um innbrot í hús á Kjalarnesi þar sem stolið var fjórum málverkum að verðmæti um 3 milljóna króna. Tvö hundsbit voru tilkynnt um helgina. Á föstudaginn var bréfberi bitinn af hundi í austurborginni og um miðjan laugardag var tilkynnt að hundur hefði bitið barn til blóðs í sama borgarhluta.

Sprengingar í Nepal

Nokkrar sprengingar urðu nálægt lúxúshóteli í miðborg Katmandú í Nepal í dag. Ekki er vitað um mannfall en lögreglumenn eru komnir á staðinn. Vitni telja að sprengingarnar hafi verið fjórar og urðu þær með nokkurra mínútna millibili.

Tilkynnti brotthvarf hermanna

George Bush, Bandaríkjaforseti, tilkynnti í dag að milli 60 og 70 þúsund bandarískir hermenn verði kallaðir heim frá Evrópu og Asíu á næstu 10 árum. Þetta er viðbót við fyrri áætlanir um brotthvarf hermanna frá Evrópu, sem meðal annars snerta Ísland.

Sjö sóttu um stöðu ráðneytisstjóra

Sjö sóttu um stöðu ráðuneytisstjóra í Félagsmálaráðuneytinu, en umsóknarfrestur rann út þann 10. ágúst síðastliðinn. Hermann Sæmundsson var settur ráðuneytisstjóri í Félagsmálaráðuneytinu þegar Berglind Ásgeirsdóttir fór í leyfi og hefur starfað sem slíkur í um tvö ár.

Chavez áfram forseti

Hugo Chavez, forseti Venesúela, vann afgerandi sigur í kosningum um helgina. Kosið var um vantrauststillögu á forsetann og virðist sem nálægt sextíu prósent þjóðarinnar hafi hafnað kröfu um afsögn.

Mikill viðbúnaður á Menningarnótt

;Dagskráin sem haldin er undir heitinu Menningarnótt spannar allt að sólarhring, að minnsta kosti hjá lögreglunni," segir Karl Steinar Valsson hjá lögreglunni í Reykjavík. Gert er ráð fyrir miklum mannfjölda á Menningarnótt og verður umtalsverður viðbúnaður hjá lögreglunni.

Ákærður fyrir manndráp af gáleysi

Fjörtíu og fjögurra ára Þjóðverji hefur verið ákærður af sýslumanninum í Hafnarfirði fyrir manndráp af gáleysi og ölvun við akstur þegar hann velti bíl sem hann ók laugardaginn 24. júlí. Einn farþeganna í bílnum lést af völdum áverka sem hann hlaut í bílveltunni.

Sjö vitni að barsmíðunum

Sjö vitni eru að líkamsárás sem var í Öxnadal aðfaranótt fimmta ágúst. Sá sem grunaður er um árásina er talinn hafa barið annan mann með hafnarboltakylfu í höfuðið þannig að hann slasaðist alvarlega.

Hafnaði uppboðskröfu

"Sýslumaðurinn í Reykjavík stöðvaði uppboð jarðarinnar Brautarholts á Kjalarnesi þar sem jörðin lúti lögum um óðalsjarðir.

Kapphlaupið mikla á Íslandi

Keppendur raunveruleikasjónvarpsþáttarins Amazing Race komu til Íslands um helgina. Keppendurnir gistu á Svartsengi við Bláa lónið. Einn hópur var dæmdur úr leik í fyrrakvöld en hinir ellefu yfirgáfu landið með sömu flugvél laust eftir hádegi í gær.

Þeir teygja sig yfir til okkar

Bæjarstjórinn í Kópavogi segist aldrei hafa verið í vafa um að Vatnsendakrikar væru í landi Kópavogs og telur Gvendarbrunna á gráu svæði. Borgarlögmaður segir Kópavog nema vatn á landi sem Reykjavíkurborg hafi tekið eignarnámi fyrir 55 árum og greitt bætur fyrir.

Ekki aftur til fortíðar

Frekari fundahöld framsóknarkvenna um fyrirhuguð ráðherraskipti innan flokksins eru meðal þess sem rætt verður á fundi framkvæmdastjórnar Landssambands framsóknarkvenna (LFK) í dag.

Má ekki gefa blóð í mánuð

Til að forðast sýkingu vesturnílarveiru hefur Blóðbankinn ákveðið að fólk sem ferðast hefur til Norður-Ameríku á tímabilinu frá 1. júní til 30. nóvember ár hvert gefi ekki blóð fyrr en mánuði eftir heimkomu.

Óttast stökkbreytingu á veirunni

Hjá landlæknisembættinu liggur fyrir viðbúnaðaráætlun vegna fuglaflensu sem geisað hefur í Asíu. Þrír hafa látist í Víetnam á árinu eftir smit úr hænsnafuglum. Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir viðbúnaðarstig sem í gildi er hér miða við að ný tegund veiru sé farin að smita menn en smitist ekki enn manna á milli.

Ofurhugi í háloftunum

Fyrrverandi orrustuflugmaður skelfdi gesti á loftbelgjahátíð í Bretlandi um helgina, með því að ganga á mjórri málmstöng, á milli tveggja loftbelgja, með bundið fyrir augun. Ofurhuginn heitir Mike Howard og er 38 ára gamall. Hann hefur gaman af því að vera hátt uppi, í orðsins fyllstu merkingu.

Fornt stefni skips fundið

Búið er að finna stefnið af breska herskipinu Mary Rose, sem sökk undan suðurströnd Englands, eftir sjóorrustu við frönsk herskip, fyrir tæpum 460 árum. Mary Rose var smíðuð á árunum 1509-1511 og þótti mikið stríðstól.

Óttast ekki öryggi áhorfenda

Formaður KSÍ segist engar áhyggjur hafa af öryggi gesta á Laugardalsvellinum á miðvikudaginn, en þá á að slá aðsóknarmet. Íslendingar leika þá vináttulandsleik við Ítali og er búist við að allt að því 20 þúsund manns komi á völllinn.

Chavez enn forseti Venesúela

Hugo Chavez, virðist hafa staðið af sér atlögu þeirra sem vildu reka hann úr embætti forseta Venesúela, í þjóðaratkvæðagreiðslu. Stjórnarandstaðan sakar hann um stórfellt kosningasvindl. Chaves er vinstri sinnaður fyrrverandi hermaður, og lítill vinur Bandaríkjanna, sem hann sendir ósjaldan tóninn.

Kröfur kennara eðlilegar

Laun grunnskólakennara hafa hækkað svipað og jafnvel meira en laun annarra starfshópa á síðustu árum. Þeir fara engu að síður fram á meiri hækkun en um samdist hjá félögum ASÍ í vor og er verkfall grunnskólakennara yfirvofandi í næsta mánuði takist ekki að semja.

Ekki enn boðað til sumarfunda

Þingflokkar stjórnarflokkanna hafa enn ekki verið boðaðir til árlegs sumarfundar, þar sem meginlínur fjárlagagerðar hafa jafnan verið kynntar. Það hefur verið fastur liður síðla sumars að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur kölluðu þingflokka sína til fundar til að undirbúa haustþing.

Árásarmaður laus úr haldi

Tuttugu og fimm ára maður sem er grunaður um að hafa gengið í skrokk á öðrum manni með hafnaboltakylfu, í Öxnadal nýlega, var látinn laus úr gæsluvarðhaldi á föstudaginn, - þremur dögum áður en gæsluvarðhaldsúrskurðurinn yfir honum rann út. Börn mannsins sem ráðist var á, voru viðstödd þegar til átakanna kom.

Milljónir horfa á Latabæ

Milljónir Bandaríkjamanna horfðu á fyrsta þáttinn af Latabæ sem sendur var út í Bandaríkjunum í dag. Framleiðandi þáttanna segir þegar hafa verið rætt um framhald á þáttagerðinni. Hann segir öruggt að þættirnir verði sýndir víða um Evrópu þegar á næsta ári.

80 hitamet slegin

Rúmlega áttatíu hitamet voru slegin í síðustu viku á veðurathugunastöðvum Veðurstofunnar. Hitabylgjan núna var sú mesta frá því mælingar hófust og fór hitinn hæst í rúmlega 29 stig. Veðustofan fór yfir hitametin í dag, nú þegar hitabylgjan er talin vera afstaðin.

500 metra frá mosku al-Sadr

Bandarískir skriðdrekar eru nú aðeins 500 metra frá moskunni, þar sem múslímaklerkurinn Múktada al-Sadr, er í felum ásamt liðsmönnum sínum. Þúsundir óbreyttra borgara gætu tafið lokasóknina gegn honum.

Mótmæla með auglýsingu

Framsóknarkonur óttast að formaður flokksins ætli að setja Siv Friðleifsdóttur, umhverfisráðherra, út úr ríkisstjórninni. Þær hafa keypt heilsíðuauglýsingu í dagblöðum á morgun þar sem skorað verður á þingflokk Framsóknar að virða lög flokksins um jafnrétti.

Halldór fagnar ákvörðun Davíðs

Halldór Ásgrímsson, verðandi forsætisráðherra, fagnar þeirri ákvörðun Davíðs Oddssonar að taka við utanríkisráðuneytinu. Hann segir eðlilegt og nauðsynlegt að oddvitar stjórnarflokkanna gegni þessum embættum.

Undirbúa málsókn gegn Norðmönnum

Íslensk stjórnvöld ákváðu í dag að hefja undirbúning að málssókn gegn Norðmönnum fyrir Alþjóðadómstólnum vegna Svalbarðamálsins. Utanríkisráðherrar landanna munu ræða deiluna á fundi í næstu viku.

Samningur í kjaradeilu

Samið hefur verið í kjaradeilu Sólheima í Grímsnesi og um þrjátíu starfsmanna Sólheima sem eru í stéttarfélaginu Bárunni á Árborgarsvæðinu.

70 þúsund hermenn kallaðir heim

Að minnsta kosti 70 þúsund bandarískir hermenn verða kallaðir heim frá herstöðvum í Evrópu og víðar í umfangsmestu breytingum á bandaríska heraflanum frá lokum Kalda stríðsins.

Íslensk geðrækt best

Geðrækt, verkefni Landlæknisembættisins, Geðhjálpar, Landspítala - háskólasjúkrahúss og Heilsugæslunnar í Reykjavík, hefur hlotið sérstaka útnefningu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) í Genf og Alþjóðageðheilbrigðissamtakanna (WFMH) sem fyrirmyndarverkefni á sviði geðræktar.

Tryggja ekki heimalagnir fólks

Nokkuð algengt er að fólk verði fyrir verulegu tjóni af völdum vatns ef heimlögn að híbýlum þess bilar eða fer í sundur. Það sem kemur hins vegar á óvart er að tjónþolar geta ekki tryggt sig fyrir slíku hjá tryggingafélögum sínum, þótt þeir eigi og beri ábyrgð á þessum lögnum.

Lokanir á hreindýraveiðar

"Við verðum að meta stöðuna eftir veiðitímann og sjá hvaða endi málið fær," sagði Áki Ármann Jónsson forstöðumaður veiðistjórnunarsviðs Umhverfisstofnunar eftir heimsóknir til bænda á hreindýrajörðum á Austurlandi.

Þrjú handtekin vegna fíkniefna

Lögreglan á Ísafirði handtók tvo karlmenn og konu á almannafæri á laugardagskvöld vegna gruns um fíkniefnamisferli.

Skemmdarverk í Ólafsfirði

Hluti húsa í Ólafsfirði varð kaldavatnslaus á sunnudag eftir að skrúfað var fyrir rennsli í vatnsleiðslum úr Burstabrekkudal. Víða fylltust síur af leir og drullu auk þess sem vandkvæði voru með þvottavélar.

Vígslu minningarreits frestað

Vígslu minningarreits vegna þeirra sem fórust í snjóflóðinu í Súðavík árið 1995 hefur verið frestað fram á vor. Til stóð að vígja reitinn 21. ágúst.

Vígslu minningarreits frestað

Vígslu minningarreits vegna þeirra sem fórust í snjóflóðinu í Súðavík árið 1995 hefur verið frestað fram á vor. Til stóð að vígja reitinn 21. ágúst.

Kajak farar langt komnir

Fjórmenningarnir sem róa kajak bátum eftir austurströnd Grænlands að vesturströndinni eru tæplega hálfnaðir á leið sinni.

Sjá næstu 50 fréttir