80 hitamet slegin 13. október 2005 14:32
Rúmlega áttatíu hitamet voru slegin í síðustu viku á veðurathugunastöðvum Veðurstofunnar. Hitabylgjan núna var sú mesta frá því mælingar hófust og fór hitinn hæst í rúmlega 29 stig. Veðustofan fór yfir hitametin í dag, nú þegar hitabylgjan er talin vera afstaðin. Í ljós kom að metin hafa fallið um allt land, samkvæmt upplýsingum frá Trausta Jónssyni veðurfræðingi. Bæði á suðvestanverðu landinu, inn til landsins og á miðhálendinu. Einnig féllu met norðantil á Vestfjörðum og á Ströndum. Fljótlegra gæti verið að telja upp þá staði þar sem met féllu ekki, eins og sums staðar við Breiðafjörð og sunnan til á Vestfjörðum. Engin met féllu heldur við norðaustur og austurströndina og einungis sums staðar í Skaftafellssýslum. Ekki eru öll metin talin merkileg vegna þess hve stutt sumar stöðvanna hafa verið lýði. Metin á Ströndum virðast einna mest afgerandi þegar litið er til langs tíma, en þar komst hitinn í 26 stig í síðustu viku. Hiti fer afar sjaldan yfir 20 stig á Ströndum, enn sjaldnar en í Reykjavík. Það sem er einnig óvenjulegt er hversu marga daga hitabylgjan stóð. Hiti komst yfir 20 stig í fjóra daga í röð í Reykjavík sem mun vera einsdæmi. Tvisvar er vitað um 20 stig þrjá daga í röð, það var í júlí 1939 og í ágúst 1893. Við lestur eldri metalista kemur enda í ljós að þessi nýafstaðna hitabylgja er ein sú almesta sem komið hefur síðan mælingar hófust. Hitabylgjan í júlí 1991 virðist ekki fjarri þessari og hitabylgjurnar í júlí 1976 og ágúst 1997 eru ekki langt undan þótt sennilega séu þær minni. Hitabylgjur fyrr á öldinni er erfiðara að meta, en landshitamet stendur þó óhaggað, frá í júní árið 1939 en eins og Trausti veðurfræðingur bendir á þá teljast íslenskar hitabylgjur frekar vesælar miðað við systur þeirra á meginlöndum og á suðrænum slóðum.
Fréttir Innlent Mest lesið „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Innlent Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Innlent Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Innlent Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Innlent Fleiri fréttir Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Sjá meira