Fleiri fréttir

Einn látinn og fimm særðir

Einn fórst og fimm særðust í sprengjuárás í Írak fyrir stundu. Nokkrar sprengingar heyrðust skammt frá fundarstað þar sem val á þingi til að fylgjast með bráðabirgðastjórn Íraks fer fram en óvíst er hvort að sá fallni eða hinir særðu eru meðal fundarmanna.

Slökkviliðsdagur í Hafnarfirði

Það er slökkviliðsdagur á höfuðborgarsvæðinu í dag. Á milli klukkan 12 og 18 er almenningi boðið að kynnast starfi slökkviliðsins við verslunarmiðstöðina Fjörðinn í Hafnarfirði. Ýmislegt verður í boði fyrir bæði börn og fullorðna, fræðsla jafnt sem skemmtun.

Hitinn hættulegur páfa

Skipuleggjendur heimsóknar Jóhannesar Páls páfa II. til Lourdes í Frakklandi hafa nokkrar áhyggjur af áhrifum hitabylgju á páfa og þá þrjú hundruð þúsund pílagríma sem komnir eru til bæjarins vegna heimsóknarinnar.

Charley í Karólínu

Nú er ljóst að þrettán fórust þegar fellibylurinn Charley gekk yfir Flórídaskaga í gær. Dregið hefur úr styrk stormsins eftir að hann gekk á ný út á haf en hann skall í nótt á Suður- og Norður-Karólínu og veldur sem stendur nokkrum usla, alla leið til New York.

Góð lundaveiði í Vestmannaeyjum

Lundaveiðitímabilinu í Vestmannaeyjum lýkur um helgina. Veiðin í ár hefur verið mun betri en í fyrra og greinilegt að tíðarfarið hefur verið hagstætt fyrir lundastofninn þetta árið. Lundapysjan er komin vel á legg og ekki hefur orðið vart við pysjudauða í ár. Fréttavefur Eyjafrétta greinir frá.

Fleiri fellibylir á Flórída?

Ástæða er til að óttast að fleiri öflugir fellibylir muni ganga yfir Flórída-skaga á næstu vikum og mánuðum. Björgunarlið leitar nú fórnarlamba fellibylsins Charleys sem skildi eftir sig gríðarlegar skemmdir.

Hungurverkfall palestínskra fanga

Þúsundir palestínskra fanga sem sitja í fangelsum í Ísrael eru nú í hungurverkfalli til að mótmæla slæmum aðbúnaði. Þeir krefjast umbóta en öryggismálaráðherra Ísraels segir að sér sé sama þó að þeir svelti til dauða.

Bolli kosinn formaður Heimdallar

Bolli Skúlason Thoroddssen var kjörinn formaður Heimdallar, ungra Sjálfsstæðismanna í Reykjavík á aðalfundi í gær. Hann hlaut 495 atkvæði en Helga Árnadóttir 396 atkvæði.

Stjórnarandstaðan ánægð

Fulltrúar stjórnarandstöðu lýsa yfir ánægju með þá ákvörðun Davíðs Oddssonar að taka við embætti utanríkisráðherra 15. september þegar Halldór Ásgrímsson verður forsætisráðherra.

Bardagar byrjaðir í Najaf

Einn fórst og fimm særðust í sprengjuárás í Írak í morgun. Harðir bardagar eru á ný hafnir í borginni Najaf eftir að friðarviðræður fóru út um þúfur.

Rektor bjartsýnn en fámáll

Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, er bjartsýnn fyrir veturinn og segir fátt um tillögur varðandi háskólann sem bornar voru fram á bæjarstjórnarfundi í vikunni, að því er norðlenski fréttavefurinn Aksjón greinir frá.

Neyðarástand á Flórída

Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á Flórída eftir að fellibylurinn Charley lagði heilu byggðirnar í rúst. Björgunarsveitir leita fólks og annar öflugur stormur er á hraðferð upp að ströndum skagans.

Íslensk skip á svartan lista

Sjávarútvegsráðherra Noregs segir að öll íslensk skip, sem halda áfram veiðum við Svalbarða eftir daginn í dag, verði sett á svartan lista. Fimm íslensk skip eru nú á svæðinu. Sjávarútvegsráðherra Noregs er á Íslandi en enginn fundur er fyrirhugaður með honum og íslenska sjávarútvegsráðherranum.

Hryðjuverkum hótað á Ítalíu

Hryðjuverkamenn hóta aðgerðum á Ítalíu þar sem ítalskar hersveitir verða ekki kallaðar heim frá Írak. Abu Hafs al-Masri hersveitirnar hvetja til árása á alla Ítali í yfirlýsingu sem birt var á Netinu. Sami hópur er sagður hafa gert árásirnar í Madríd fyrr á þessu ári. Talsmenn ítalskra yfirvalda segja ekki hægt að útiloka árásir en að ekki verði hlustað á ógnanir hryðjuverkasamtaka.

Bandaríkjaförum bönnuð blóðgjöf

Þeir sem dveljast í Norður-Ameríku á tímabilinu frá byrjun júní til nóvemberloka mega ekki gefa blóð fyrr en mánuði eftir að heim er komið vegna ótta við Vesturnílarsótt.

Indverjar fagna sjálfstæðisafmæli

Indverjar fögnuðu því í dag og kvöld að fimmtíu og sjö ár eru liðin frá því að þeir hlutu sjálfstæði frá Bretum. Víða um landið fóru fram hátíðahöld en hryðjuverk vörpuðu skugga á gleðina.

Ákvörðun Davíðs eðlileg

Formenn stjórnarandstöðuflokkanna telja eðlilegt að Davíð Oddsson forsætisráðherra taki við embætti utanríkisráðherra. Formaður Vinstri grænna vonast til að utanlandsferðum utanríkisráðherra fækki og minni áhersla verði lögð á Evrópusambandið.

Páfi veikburða í Frakklandi

Jóhannes Páll páfi annar virtist afar veikburða þegar hann flutti útimessu í Lourdes í Frakklandi í dag. Bærinn er einkum þekktur fyrir helgidóm þar sem María mey er sögð birtast og líkna sjúkum. Páfi átti erfitt með að flytja prédikun sína og sagði á einum stað í henni „hjálpið mér“ á pólsku.

Minni þreifingar í Evrópumálum

Ekki má búast við jafn ítarlegri umfjöllun um Evrópumál innan utanríkisráðuneytisins og áður þegar Davíð Oddson verður utanríkisráðherra, að mati Baldurs Þórhallssonar, dósents í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.

Einkarekin glasafrjóvgunardeild

Stefnt er að því að ný einkarekin glasafrjóvgunardeild verði opnuð innan tveggja mánaða. Læknarnir sem standa að deildinni vonast til þess að eftir ár verði búið að vinna niður alla biðlista.

Furðar sig á ummælum

"Ég skil ekki hvað þeir eru að rugla," segir Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra um þær fullyrðingar að stjórnvöld hafi svikið loforð um að veiðiheimildir annarra myndu ekki skerðast vegna innkomu smábáta í kvótakerfið. Aðstaða hans leyfir þó ekki að hann ræði málið frekar.

Árásir við upphaf þings

Árásir og mannfall mörkuðu upphaf funda írakskra fulltrúa sem velja eiga nýtt þing. Þrátt fyrir friðarumleitanir halda bardagar áfram í Najaf og í Fallujah voru enn á ný gerðar loftárásir.

Mikilvægar kosningar í Venesúela

Íbúar í Venesúela greiddu í dag atkvæði um hvort reka ætti forseta landsins úr embætti. Niðurstaðna er beðið með eftirvæntingu þar sem þær gætu haft víðtæk áhrif, meðal annars hér á landi.

Tæmdi sjóði umhverfisráðuneytisins

Unnið er að endurbótum á bryggjunni í Drangey á Skagafirði. Drangeyjarjarlinn, Jón Eiríksson, segist hafa tæmt sjóði umhverfisráðuneytisins en þaðan fékk hann 100 þúsund króna styrk til verksins.

Hætta veiðum fyrst um sinn

"Við höfum ákveðið að veiða ekki um sinn, en munum endurmeta stöðuna," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ um síldveiði við Svalbarða. Fresturinn sem Norðmenn gáfu íslenskum skipum til að hætta veiðum við Svalbarða rann út á miðnætti síðustu nótt.

Slökkviliðsdagurinn í dag

Hús fullt af reyk, bílar klipptir í tætlur, öflugustu vatnsbyssur sem völ er á og gott útsýni úr körfubíl var meðal þess sem Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kynnti fyrir fólki á slökkviliðsdeginum í dag.

Minni þreifingar í Evrópuátt

Ekki má búast við jafn ítarlegri umfjöllun um Evrópumál innan utanríkisráðuneytisins og áður þegar Davíð Oddson verður utanríkisráðherra, að mati Baldurs Þórhallssonar, dósents í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.

Ekki orðnir bandamenn

Rússar og Bandaríkjamenn "eru sannarlega ekki lengur óvinir en eru sennilega ekki heldur orðnir bandamenn," sagði Sergei Ivanov, utanríkisráðherra Rússlands, þegar hann lýsti samskiptum landanna að loknum fundi sínum með Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna.

Bardagar blossa upp á nýjan leik

Bardagar í Najaf eru hafnir af krafti á nýjan leik eftir að stríðandi fylkingum mistókst að ná samkomulagi um vopnahlé.

Kristnihaldið innblástur

<em>Kristnihald undir jökli</em>, skáldsaga Halldórs Laxness, varð frönskum ljósmyndara innblástur að röð ljósmynda sem hann hefur sýnt víða um heim. Myndirnar eru nú sýndar í fyrsta sinn á Íslandi.

Eins og eftir sprengjuárás

Íbúar Flórída eru byrjaðir að hreinsa til í rústunum og byggja upp það sem eyðilagðist þegar hvirfilbylurinn Charley gekk þar yfir. Talið er að skemmdirnar megi meta á allt að 800 milljarða króna og er þá aðeins horft til þess sem íbúarnir voru búnir að tryggja áður en ósköpin gengu yfir.

Tíu milljónir skráðar á kjörskrá

"Þetta sýnir mikinn vilja afgönsku þjóðarinnar til að taka þátt í kosningunum," sagði Manoel de Almeida e Silva, talsmaður Sameinuðu þjóðanna í Afganistan, þegar hann greindi frá því að nær tíu milljónir manna og kvenna hefðu skráð sig á kjörskrá.

Fornleifaskóli barna á Þingvöllum

Fornleifafræðingar af yngstu kynslóðinni létu ljós sitt skína á Þingvöllum í dag en „Fornleifaskóli barnanna“ hefur verið starfræktur á sunnudögum í sumar.

Reyndi að flýja lögregluna

Bílar skemmdust í Keflavík í nótt þegar lögreglan elti ungan ökumann um bæinn. Lögreglan hóf eftirför eftir að ökumaðurinn, sem grunaður er um ölvun, neitaði að stöðva bifreið sína. Eftirförinni lauk í Sandgerði eftir að ökumaðurinn ók á fiskikör suður í Sandgerði en áður hafði hann keyrt utan í lögreglubifreið. Tveir voru í bílnum og eru þeir báðir heilir en bíll þeirra mikið skemmdur.

Biðlistar styttust

Biðlistar eftir skurðaðgerðum á Landspítala - háskólasjúkrahúsi styttust á fyrstu sex mánuðum ársins þrátt fyrir sparnaðaraðgerðir. Skurðaaðgerðum fjölgaði þá um 3,4 prósent samanborið við fyrri helming síðasta árs.

Pakistanar fagna sjálfstæðisafmæli

Pakistanar halda upp á fimmtíu og sjö ára afmæli sjálfstæðis síns í dag. Perves Musharraf, forseti landsins, sagði í ávarpi af því tilefni að Pakistan væri nú ógnað sem aldrei fyrr og ógnin væri hryðjuverkamenn Al-Kaída. Forsetinn hét því að herferðin gegn Al-Kaída yrði enn efld og henni haldið áfram þar til búið væri að uppræta samtökin.

Páfi í heimsókn í Frakklandi

Jóhannes Páll páfi kom í dag í tveggja daga heimsókn til frönsku borgarinnar Lourdes. Þetta er pílagrímsför fyrir páfa til þessa helga staðar kaþólskra manna þar sem vatnið er talið hafa lækningarmátt.

Ómögulegt að sporna við hækkun

Fulltrúi Írans hjá Samtökum olíuframleiðsluríkja segir að samtökin geti ekkert gert til þess að lækka hið himinháa olíuverð. Framleiðslan sé þegar 2,8 milljónir fata umfram eftirspurn og það hafi því enga þýðingu að auka framleiðsluna.

Hitametið á Vestfjörðum fallið

Hitametið á Vestfjörðum féll á Ísafirði í gær þegar hitamælir á Skeiði í Skutulsfirði fór í 25,5 stig um hálf þrjúleytið í gær að því er vestfirski fréttavefurinn Bæjarins besta greinir frá. Metið verður þó trúlega ekki skráð í sögubækur því þar er fyrir umdeild 28,8 stiga mæling frá Lambavatni á Rauðasandi.

70 þúsund hermenn heim

Bandaríkjamenn stefna að því að kalla 70 þúsund hermenn heim frá Evrópu og Asíu í náinni framtíð að sögn yfirmanns innan hersins. Þetta er tilkomið vegna endurskipulagningu hersins í kjölfar endaloka kalda stríðsins og upphafs stríðsins gegn hryðjuverkum.

Persson heimsækir Davíð

Davíð Oddsson forsætisráðherra tekur á móti Göran Persson, forsætisráðherra Svía, og eiginkonu hans á heimili sínu í Fáfnisnesi síðdegis. Persson hjónin hafa undanfarna daga verið í einkaheimsókn á Íslandi í framhaldi af fundi forsætisráðherra Norðurlanda um síðustu helgi. Fjölmiðlum hefur verið boðið að vera viðstaddir heimsóknina.

Níutíu féllu umhverfis Bagdad

Bandarískir hermenn felldu um níutíu uppreisnarmenn í borgum umhverfis Bagdad í nótt en allt var með kyrrum kjörum í Najaf þar sem sjítaklerkurinn Muqtada al-Sadr er að reyna að semja vopnahlé.

Amazing Race á Íslandi

Tökulið og keppendur frá Amazing Race sjónvarpsþættinum vinsæla eru komnir til Íslands. Í þættinum keppa nokkur pör í eins konar ratleik um heiminn og vinnur það par sem er útsjónarsamast í ferðalögum sínum og fljótast í förum.

Stórkostleg upplifun

Ólympíuleikarnir voru settir í 28. sinn í Aþenu í gærkvöld. Setningarhátíðin þótti takast sérstaklega vel. Þetta telst hafa verið ein stærsta sýning sem sett hefur verið upp með yfir fjögur þúsund listamenn. Björk Guðmundsdóttir var í stóru hlutverki en hún söng lag sitt Oceania, óð til sjávarins sem ekki gerir greinarmun á lýði eða löndum.

Tjón Charley um 70 milljarðar

Fellibylurinn Charley jafnaði hús við jörðu og reif tré upp með rótum þegar hann gekk yfir Flórída í gær. Það má segja að Charley hafi komið aftan að Flórídabúum því hann tók land miklu sunnar en við var búist.

Sjá næstu 50 fréttir